Ann-Karin Svåsand skrifaði:
Jeg er usikker på hvor mange cm jeg skal strikke i str S. Skjønner ikke helt disse målene. "Strikk til ermet måler 30-29-28-28-26-24 " Kan dere hjelpe meg?
05.03.2025 - 15:54DROPS Design svaraði:
Hei Ann-Karin, Du strikker til ermet måler 30 cm fra oppleggskanten (i din størrelse) . God fornøyelse!
06.03.2025 - 06:36
Jane Hwang skrifaði:
How much ease is expected with this garment? Mainly asking so I can find the right size for me. Thanks!
24.02.2025 - 22:52DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hwang, measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the one in the chart (note that the measurements in the chart are in cm, convert into inches here); this is the best way to find out the matching size and the appropriate ease you'd like. Read more here. Happy knitting!
26.02.2025 - 10:20
Stefania Jordan skrifaði:
What size in British sizing [ie 10, 12 etc] does medium cover in the Painted Sky pattern please? How many 50g balls of Drops Melody would I need please ?
04.11.2024 - 12:33DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Jordan, to find out the best appropriate size measure a similar garment you have and like the size and compare these measurements to the ones in the chart at the bottom of the page. Read more here. You will find the total amount of yarn required for each size under the header, tab "Pattern"; so that in size S and M for example you need here 250 g DROPS Melody / 50 g a ball = 5 balls DROPS Melody in the both first sizes. Happy knitting!
04.11.2024 - 14:40
Carina Karlsson skrifaði:
Jag har gjort framstycket; där jag satte de mittersta m på en tråd för halsen. Men på bakstycket ska jag alltså maska av de mittersta istället? Eller? Lite ologiskt…
20.10.2024 - 17:03DROPS Design svaraði:
Hej Carina, ja det stemmer, så får du en mere markeret overgang på bagstykket :)
23.10.2024 - 15:00
Maripola skrifaði:
Die 6 cm in Rippenmuster am Anfang vom Vorder-und Rückenteil sind zu kurz im Vergleich zu dem Bild. Ich habe den Anweisungen vetraut und merke das auch im Ergebnis. Es sollten wahrscheinlich 12 cm sein.
20.09.2024 - 19:56
Painted Sky Sweater#paintedskysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með klauf í hliðum, tvöföldum kanti í hálsmáli og ¾ langar ermar. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-37 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fyrst er framstykkið og bakstykkið prjónað hvort fyrri sig þannig að það myndist klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Síðan eru stykkin sett inn á sama hringprjón og prjónað er síðan í hring upp að handvegi. Stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp. Prjónað er í hring upp að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 94-102-106-114-122-134 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Melody. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 6 cm. Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki þar til stroffið mælist 6 cm. Ekki klippa þráðinn frá, stroffið eru prjónuð saman fyrir fram- og bakstykki héðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið sléttprjón hringinn yfir lykkjur frá bakstykki og framstykki frá réttu jafnframt því sem fækkað er um 36-40-36-40-40-48 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 152-164-176-188-204-220 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og látið merkiþráðinn fylgja áfram með, merkiþráðurinn er notaður þegar fellt er af fyrir handveg. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! SKIPTING FYRIR HANDVEG: Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki, prjónið umferðina þannig: Byrjið 3-4-5-6-7-8 lykkjum á undan merkiþræði í byrjun umferðar, fellið af næstu 6-8-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-74-78-82-88-94 lykkjur, fellið af næstu 6-8-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-74-78-82-88-94 lykkjur. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka hvort fyrir sig, fram og til baka. FRAMSTYKKI: = 70-74-78-82-88-94 lykkjur. Framstykkið er prjónað í sléttprjóni fram og til baka. Í byrjun hverrar umferðar er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-1-2-2-4-6 sinnum = 64-68-70-74-76-78 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 43-45-46-48-49-51 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 18-20-20-22-22-23 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: = 70-74-78-82-88-94 lykkjur. Bakstykkið er prjónað í sléttprjóni fram og til baka. Í byrjun hverrar umferðar er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1-1-2-2-4-6 sinnum = 64-68-70-74-76-78 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti. Setjið miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl fyrir sig. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun næstu umferðar frá hálsmáli = 18-20-20-22-22-23 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMAR: Fitjið upp 52-52-56-60-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Melody. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6, prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 10-8-8-10-12-12 lykkjur jafnt yfir = 42-44-48-50-52-56 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og látið merkiþráðinn síðan fylgja með í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 9-9-8-8-8-9 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 2½-2½-2½-2½-2-1½ cm alls 8-8-8-8-9-9 sinnum = 58-60-64-66-70-74 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 30-29-28-28-26-24 cm. Í næstu umferð eru lykkjur felldar af mitt undir ermi þannig: Byrjið 3-4-5-6-7-8 lykkjum á undan merkiþræði í byrjun umferðar, fellið af næstu 6-8-10-12-14-16 lykkjur = 52-52-54-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka í umferð, jafnframt er fellt af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 4-3-2-2-3-3 sinnum, síðan eru felldar af 2-2-2-2-1-1 lykkjur í byrjun hverrar umferðar þar til ermin mælist 36 cm í öllum stærðum. Fellið af 3 lykkjur í byrjun næstu 2 umferða. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 37 cm í öllum stærðum. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi við handveg. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4,5, prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 88 til 104 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 9 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið kant í hálsmáli tvöfaldan að röngu og saumið e.t.v. niður með nokkrum sporum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #paintedskysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.