Claire skrifaði:
Pour la taille S il faut monter 96 mailles Cependant pour l’empiecement il faut diviser les mailles ainsi : 14+19+27+ 19+13 = 92 mailles. Il manque 4 mailles. N’y a t’il pas une erreur ?
19.02.2024 - 20:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Claire, notez que les marqueurs sont placés dans une maille (pas entre les mailles) autrement dit vous aurez: 14 + 1 m avec marqueur + 19 + 1 m avec marqueur + 27 + 1 m avec marqueur + 19 + 1 m avec marqueur + 13 m = 96 mailles. Bon tricot!
20.02.2024 - 16:00
Mayola skrifaði:
Bonjour pouvez vous m'éclaircir les augmentations est-ce que l'on fait d'abord les augmentations raglan puis ensuite les augmentations devant-dos (tous les 2 rangs) et les augmentations manches (tous les 4 rangs) merci de votre retour
18.02.2024 - 17:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Mayola, on va d'abord augmenter 8 mailles (dos, devant et manches) tous les 2 tours (9 à 21 fois, cf taille), puis on va augmenter alternativement 4 mailles (dos & devant seulement) et 8 mailles (dos, devant et manches comme avant), et cela 11-14-10-11-10-10 fois au total autrement dit, vous augmenterez encore 11-14-10-11-10-10 fois pour le devant et le dos mais seulement 5-7-5-5-5-5 pour les manches. Bon tricot!
19.02.2024 - 09:32
Lemon Glaze#lemonglazesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-28 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir lykkju með merki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN LYKKJU MEÐ MERKI: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn verður snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn er núna snúinn, þannig að ekki myndist gat). Á EFTIR LYKKJU MEÐ MERKI: Prjónið uppsláttinn snúinn. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og er prjónað ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Kantur í hálsmáli er brotin tvöfalt að röngu og saumaður niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-96-100-104-104-108 lykkjur með 3 þráðum DROPS Kid-Silk á hringprjóna 5. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (uppfitjunin er gerð á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn þar til stykkið mælist 9 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli tvöfaldan og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Nú er sett 1 merki mitt að aftan, berustykkið er nú mælt héðan. BERUSTYKKI: Setjið 4 merki í stykkið án þess að prjóna þannig: Teljið 14-14-16-16-18-20 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 19-19-17-17-13-13 lykkjur (= ermi) og setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 27-27-31-33-37-39 lykkjur (= framstykki) og setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 19-19-17-17-13-13 lykkjur (= ermi) og setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru 13-13-15-17-19-19 lykkjur á eftir síðasta merki og fram að byrjun umferðar (= hálft bakstykki). Athugið að allar lykkjur með merki er 1 lykkja slétt. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn, jafnframt því í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Aukið út alls 9-8-13-15-19-21 sinnum í annarri hverri umferð = 168-160-204-224-256-276 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið er út til skiptist 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 11-15-10-11-10-10 sinnum á framstykki/bakstykki (5-7-5-5-5-5 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 20-23-23-26-29-31 sinni á framstykki/bakstykki og 14-15-18-20-24-26 sinnum á ermum = 232-248-264-288-316-336 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn án þess að auka út, þar til stykkið mælist 20-22-24-25-28-30 cm frá merki á eftir kanti í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 35-38-40-43-48-52 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 47-49-53-57-61-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 69-75-79-87-97-103 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 47-49-53-57-61-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 34-37-39-44-49-51 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-166-178-194-214-234 lykkjur. Umferðin byrjar núna mitt í nýju lykkjum í hlið undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 19-19-20-21-21-21 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á hringprjón 3.5 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 14-16-20-22-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 168-182-198-216-240-262 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 47-49-53-57-61-65 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á hringprjóna / sokkaprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-10-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 55-57-63-67-71-79 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur og prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 5-4-3-3-3-3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 6-5-4-3-2½-2 cm alls 6-7-9-11-11-14 sinnum = 43-43-45-45-49-51 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 39-38-36-35-32-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 7-7-9-9-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 50-50-54-54-58-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lemonglazesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.