Blanca skrifaði:
Es precioso este jersey.
08.02.2024 - 10:09
Liliana skrifaði:
Cornflower field
22.01.2024 - 08:54
Rodica skrifaði:
Azure sky
21.01.2024 - 22:00
Nonne skrifaði:
Blue sky
21.01.2024 - 13:27
KAROLINA skrifaði:
CLOUR NO9
21.01.2024 - 11:26
Maria Roshed Sandström skrifaði:
Arctic summer
21.01.2024 - 09:01
Judith skrifaði:
Forget-me-not
20.01.2024 - 09:59
Linnea skrifaði:
Zara
19.01.2024 - 14:53
Patrycja Młynarska skrifaði:
Fable cable
19.01.2024 - 09:19
Ana Almeida skrifaði:
Céu azul- it's means blue Sky in portugueses.
19.01.2024 - 05:37
Aisling Sweater#aislingsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og klukkuprjónslykkju á ermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-13 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma, merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Fyrst er prjónað hálsmál fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar sem fitjaðar eru upp nýjar lykkjur í hvorri hlið til að forma hálsmálið. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmálið og prjónaður er kantur í hálsmáli sem brotinn er tvöfaldur að röngu og saumaður niður. HÁLSMÁL: Fitjið upp 70-70-70-78-78-78 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu og hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja, þannig: Teljið 3 lykkjur (framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 12-12-12-16-16-16 lykkjur, setjið 1 merki hér (mitt að aftan), teljið 12-12-12-16-16-16 lykkjur (bakstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 20 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 3 lykkjur (framstykki). Prjónið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið slétt yfir lykkjur á framstykki og bakstykki, prjónið A.1 yfir 20 lykkjur á hvorri ermi, jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina – lesið útskýringu að ofan (8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu og 7 lykkjur fleiri í hverju A.1), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 94-94-94-102-102-102 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið yfir lykkjur á framstykki og bakstykki, prjónið síðustu umferð í A.1 yfir lykkjur á hvorri ermi, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 96-96-96-104-104-104 lykkjur. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á framstykki og bakstykki og A.2 yfir A.1 á ermum, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 106-106-106-114-114-114 lykkjur. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 108-108-108-116-116-116 lykkjur. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður, aukið út fyrir lasalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 118-118-118-126-126-126 lykkjur. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 120-120-120-128-128-128 lykkjur. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 6-6-6-14-14-14 nýjar lykkjur í lok umferðar = 134-134-134-150-150-150 lykkjur. Snúið stykkinu og prjónið að merki mitt að aftan. Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan, frá miðju að aftan. Haldið áfram með A.2 og sléttprjón. BERUSTYKKI: Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu (8 lykkjur fleiri) 2 sinnum til viðbótar (alls 6 sinnum ásamt útaukningu í hálsmáli) = 150-150-150-166-166-166 lykkjur. Síðan heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 18-22-26-26-30-30 sinnum á fram- og bakstykki (9-11-13-13-15-15 sinnum á ermum). Nú eru 258-282-306-322-346-346 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en nú er einungis aukið út á fram- og bakstykki, útaukningu fyrir ermum er lokið. Aukið út í annarri hverri umferð alls 2-1-0-0-0-4 sinnum (ekki er aukið út í stærð L, XL, XXL). Nú hefur verið aukið út alls 26-29-32-32-36-40 sinnum á fram- og bakstykki og 15-17-19-19-21-21 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 266-286-306-322-346-362 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.2 þar til stykkið mælist ca 24-26-29-29-33-36 cm, mælt mitt að aftan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið fyrstu 38-41-44-48-52-56 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 57-61-65-65-69-69 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-96-104-112 lykkjur (framstykki), setjið næstu 57-61-65-65-69-69 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 38-41-44-48-52-56 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-196-216-236-256 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 18-18-17-19-17-16 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 208-224-240-264-288-312 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMAR: Setjið 57-61-65-65-69-69 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-71-75-77-83-85 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón og haldið áfram með A.2 hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í ca hverjum 5-3½-2½-2½-2-1½ cm alls 6-8-9-10-11-11 sinnum = 55-55-57-57-61-63 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 34-33-32-31-28-25 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-5-7-7-7-9 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-68-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 42-41-40-39-36-33 cm frá skiptingunni. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að aftan og prjónið upp frá réttu ca 88 til 104 lykkjur í kringum hálsmálið á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4 – stillið af að stroffið passi með að laskalínulykkjur haldi áfram sem sléttar lykkjur (séð frá réttu) í kanti í hálsmáli. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 11 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og saumið niður með nokkrum sporum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #aislingsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.