Nicole skrifaði:
Guten Tag Müssen Rücken- und Vorderteil nicht gleich lang sein, bevor man sie als Rumpfteil zusammenstrickt? Angabe für XXXL Rückenteil 19cm und Vorderteil 29cm. Danke für die Antwort!
16.03.2025 - 16:15DROPS Design svaraði:
Siehe unten :)
17.03.2025 - 09:34
Nicole skrifaði:
Guten Tag Müssen Rücken- und Vorderteil nicht gleich lang sein, bevor man sie als Rumpfteil zusammenstrickt? Angabe für XXXL Rückenteil 19cm und Vorderteil 29cm. Danke für die Antwort!
16.03.2025 - 16:14DROPS Design svaraði:
Liebe Nicole, wenn man solche Pullover mit europäischen Schulter strickt, werden die Länge beim Rückenteil immer kürzer als beim Vorderteil da die Schulter etwas schräng hinten legen werden - schauen Sie mal unserer Videos/Lektion (siehe Tab oben nach Tab "Anleitung"), dort zeigen wir, wie man so einen Pullover strickt. Viel Spaß beim Stricken!
17.03.2025 - 09:34
Jamina skrifaði:
Hallo, ich verstehe die Maschenaufnahme für die Ärmel nicht. Am unteren Rand wurden beim Zusammensetzen von Vorder- und Rückenteil 6 Maschen angeschlagen. Diese Maschen sollen jetzt nicht für den Ärmel aufgenommen werden? ("Maschen ab der Schulter nach unten aus dem Armausschnitt des Rückenteils auffassen, d.h. aus dem unteren, waagerechten Rand des Armausschnitts werden keine Maschen aufgefasst")
15.01.2025 - 21:34DROPS Design svaraði:
Liebe Jamina, in diesen 6 Maschen nehmen Sie keine Masche für die Ärmel auf; dh die Maschen für die Ärmel werden nur am Armloch (in die Reihen Vorder- + Rückenteil) auffassen, dann stricken Sie 2 cm (2. Größe) in Hin- und Rückreihen => diese 2 cm werden am Armloch (= an den 6 neuen Maschen) genäht (siehe Skizze: B= Armloch / b = die 2 cm) dann stricken Sie in der Runde weiter. Viel Spaß beim Stricken!
16.01.2025 - 10:06
Pernilla skrifaði:
I mönstret står det att bakstycket ska ökas efter markören i början av varvet (sett från rätsidan) . Avigsidan ska stickas på samma sätt. Innebär det att ökningen ska ske efter markören i början av varvet även från avigsidan?
17.06.2024 - 20:20DROPS Design svaraði:
Hei Pernilla. Fra retten skal det økes både før merket (på slutten av pinnen) og etter merket (på begynnelsen av pinne). Fra vrangen økes det på samme måte. Husk les: ÖKNINGSTIPS FRÅN RÄTSIDAN og ÖKNINGSTIPS FRÅN AVIGSIDAN. Ta gjerne en titt på hjelpevideoene som vise hvodan man strikker et plagg med Europeisk axel. mvh DROPS Design
25.06.2024 - 06:42
Hson skrifaði:
I mönstret står det att man börjar plocka upp maskor i vänster axel, men videon visar högra axeln, blir det någon skillnad?
30.12.2023 - 09:39DROPS Design svaraði:
Hei Hson. Om du ser videoen slik at du får en oversikt over teknikken, og deretter strikker du slik det er forklart i oppskriften (DROPS 245-24). Videoen er en generell video og oppskrifter kan variere litt fra oppskrift til oppskrift. mvh DROPS Design
08.01.2024 - 13:58
Wiola skrifaði:
PRZÓD: Przerabiać w tę i z powrotem dżersejem, aż długość robótki wynosi 23-25-26-27-28-29 cm, mierzyć wzdłuż podkroju rękawa. - gdzie jest podkroj rękawa? Odkąd dokładnie to liczymy? Dopiero zaczynam prace ze wzorami, dziękuje za odpowiedz :)
29.10.2023 - 17:36DROPS Design svaraði:
Witaj Wiolu, mierzysz od nabranych oczek na lewe/prawe ramię przodu i dalej w dół, wzdłuż brzegu przodu. Pozdrawiamy!
30.10.2023 - 08:17
Stormy Evening Sweater#stormyeveningsweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni, með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og háu hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-24 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf. Prjónað er fram og til baka að loka máli. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrist prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í kringum hálsmál í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 26-28-28-30-32-32 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun umferðar (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er auki út á sama hátt – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu alls 26-28-30-32-32-34 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 78-84-88-94-96-100 lykkjur í umferð. Héðan er nú stykkið mælt! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 15-15-16-17-18-19 cm, mælt yst meðfram handveg. Klippið þráðinn, geymið stykkið og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 26-28-30-32-32-34 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu eins og útskýrt er að ofan, aukið út á eftir 3 lykkjum (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 30-32-34-36-36-38 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu, klippið þráðinn og geymið stykkið. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 26-28-30-32-32-34 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 5 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu eins og útskýrt er að ofan, aukið er út á undan 3 lykkjum (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út 1 lykkju alls 4 sinnum = 30-32-34-36-36-38 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 30-32-34-36-36-38 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 18-20-20-22-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 30-32-34-36-36-38 lykkjur frá vinstra framstykki = 78-84-88-94-96-100 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 23-25-26-27-28-29 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón yfir 78-84-88-94-96-100 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-6-8-8-14-18 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 78-84-88-94-96-100 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-6-8-8-14-18 nýjar lykkjur í lok umferðar = 164-180-192-204-220-236 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í nýjar lykkjur í hvorri hlið – það á að nota merkiþræðina þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Byrjið umferð við 4 lykkjur á undan merkiþræði í annarri hliðinni. Nú eru prjónaðar 8 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, í hvorri hlið (þ.e.a.s. 4 lykkjur hvoru megin við hvorn merkiþráð), aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm (stillið af að síðasta umferð sé umferð þar sem lykkjur í hliðum eru prjónaðar slétt). Nú skiptist stykkið við merkiþræðina. Setjið 82-90-96-102-110-118 lykkjur frá bakstykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið áfram yfir lykkjur frá framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 82-90-96-102-110-118 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: 4 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og aukið út 44-44-50-52-56-60 lykkjur jafnt yfir (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð) yfir næstu 74-82-88-94-102-110 lykkjur og prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni. Það eru 126-134-146-154-166-178 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff frá röngu þannig: 4 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 4 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist alls 58-60-62-64-66-68 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. BAKSTYKKI: Setjið 82-90-96-102-110-118 lykkjur af þræði / hjálparprjóni á hringprjón 6 og prjónið á sama hátt og framstykkið. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 6 og 1 þráð DROPS Fabel og 1 þráð DROPS Brushed Alpaca Silk (2 þræðir), prjónið upp frá réttu 33-35-36-38-40-41 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 21-21-22-24-24-27 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 54-56-58-62-64-68 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-2-3-3-5-6 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 6 – afgangur af ermi er prjónað í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-4-4-4-5-7 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5-5-4-4-3 cm millibili alls 6-6-6-7-7-8 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-34-34-33-33-33 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-4-6-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 44-44-44-43-43-43 cm frá prjónamerki. Prjónið hina ermin á sama hátt, en prjónið upp lykkjur á gagnstæða vegu, þ.e.a.s. prjónið upp 21-21-22-24-24-27 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 33-35-36-38-40-41 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 76 til 96 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir sléttar lykkjur. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið það niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stormyeveningsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.