DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 902.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9724.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Hidden Forest Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og háu hálsmáli. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 243-21

#hiddenforestsweater

DROPS Design: Mynstur fa-534
Garnflokkur A + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-350 g litur 650, skógur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
175-175-200-225-225-250 g litur 27, regnskógardögg

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
15 lykkjur á breidd og 18 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 902.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9724.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 5 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma, miðjulykkjan af þessum 5 lykkjum er lykkja með prjónamerki (8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hár kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna.

HÁR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 124-132-132-136-144-148 lykkjur með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk yfir stuttan hringprjón 4,5 og stuttan hringprjón 5,5 sem haldið er saman.
Dragið út stutta hringprjón 5,5 og haldið lykkjunum eftir á stuttum hringprjóni 4,5 (uppfitjunin er gerð með þessum hætti til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 24 cm. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 48-52-52-52-56-56 lykkjur jafnt yfir = 76-80-80-84-88-92 lykkjur.

Nú eru 4 prjónamerki sett í stykkið eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert án þess að prjóna. Hvert prjónamerki er sett í slétta lykkju (ekki á milli lykkja) og prjónamerkin eru notuðu þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar = ca mitt að aftan.
Teljið 11-12-12-13-14-15 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22-24-24-26-28-30 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru eftir 11-12-12-13-14-15 lykkjur í lok umferðar (hálft bakstykki).

HÁLSMÁL:
Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Byrjið mitt að aftan:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við fyrstu 2 prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 4 lykkjur fram hjá öðru prjónamerki.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið þegar prjónaðar hafa verið 4 lykkjur fram hjá síðasta prjónamerki.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin, (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan.
Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 2 sinnum fyrir laskalínu við hvert prjónamerki = 92-96-96-100-104-108 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt.

BERUSTYKKI:
Byrjið umferð við merkiþráð mitt að aftan og prjónið hringinn yfir allar lykkjur í sléttprjóni.
JAFNFRAMT heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 7-8-9-12-11-9 sinnum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum) = 132-144-152-180-176-164 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 14-14-16-14-18-22 sinnum á fram- og bakstykki (7-7-8-7-9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 21-22-25-26-29-31 sinnum á fram- og bakstykki og 14-15-17-19-20-20 sinnum á ermum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 216-228-248-264-284-296 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni án útaukningar þar til stykkið mælist ca 24-25-28-30-33-36 cm frá miðju að aftan (eftir stroff).

Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 33-35-38-40-44-47 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 42-44-48-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóni (í hlið undir ermi), prjónið 66-70-76-80-88-94 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 42-44-48-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-14-16-18 lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 33-35-38-40-44-47 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 152-164-176-188-208-224 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 23-24-23-23-22-21 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 188-204-220-236-260-280 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI.
Setjið 42-44-48-52-54-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56-60-66-70-72 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 10-12-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6½-5-4-2½-2-1½ cm millibili alls 5-6-7-10-11-11 sinnum = 42-44-46-46-48-50 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 35-35-33-30-28-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm.
Fellið af. Ermin mælist ca 41-41-39-36-34-32 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Kirsti skrifaði:

Hei! Jeg holder på med denne nå, men kan ikke forstå at de oppgitte garnmengdene kan stemme. Når hele genseren skal strikkes med dobbel tråd, må man vel ha like lang tråd av hvert garn? Nå er jeg på det tredje nøstet med Brushed Alpaca Silk, men har ikke brukt mer enn litt over ett nøste av Fabel. Har dere endret størrelse på nøstene og glemt å oppdatere oppskriften?

22.10.2024 - 16:19

DROPS Design svaraði:

Hej Kirsti, i Fabel har du 50g pr nøgle, så 5x205=1025 meter og i DROPS Brushed Alpaca Silk har du 25 g pr nøgle, så 7x140= 980 meter til den mindste størrelse :)

24.10.2024 - 09:38

country flag Makulamene-Merveille Tandu skrifaði:

Gibt es die Möglichkeit, dass man die Anleitung für eine Größe XS umändert? Wenn ja, wie? Liebe Grüße!

11.10.2024 - 23:15

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Tandu, hier finden Sie alle unsere Pullover in XL, Kategorie "Basics" mit der Maschenprobe derselben Gruppe. Ein von den kann Ihnen sicher inspirieren. Viel Spaß beim Stricken!

14.10.2024 - 07:50

country flag Maria Letizia Pianese skrifaði:

Buongiorno, nella sezione SPRONE si parla di aumentare 14 volte sul corpo e 7 volte sulle maniche. Significa che si intende che per il "corpo" si faranno aumenti sul marcapunto 1 e 4, mentre per "maniche" si faranno aumenti sui 4 marcapunti? Grazie di una risposta, buon lavoro a tutte

29.09.2024 - 11:37

DROPS Design svaraði:

Buonasera Letizia, per gli aumenti su tutto il lavoro (corpo + maniche) si aumenta a ogni lato di tutti i segnapunti quindi 8 aumenti, per quelli solo sul corpo, non si aumenta sul lato del segnapunti che da sulla manica. Buon lavoro!

06.10.2024 - 23:30

country flag Christiane skrifaði:

Wie muss ich bei den verkürzten Reihen die Umschläge am Hals nach dem Wenden und zurückstricken abstricken? Ich bin dann ja bei linken Maschen, aber stricke ich die Umschläge dann trotzdem rechts verschränkt? Danke für die Hilfe. Christiane

22.09.2024 - 13:09

DROPS Design svaraði:

Liebe Christiane, die Umschlägen stricken Sie bei den Rückreihen links verschränkt, und bei den HinReihen und in Runde rechts verschränkt. Viel Spaß beim Stricken!

23.09.2024 - 08:27

country flag Susanne Olsen skrifaði:

"BÆRESTYKKE: Start omgangen ved mærketråden midt bagpå, og strik rundt over alle masker i glatstrik. SAMTIDIG fortsætter udtagningen til raglan på hver 2.omgang til der er taget ud totalt 7-8-9-!12-11-9! gange (inklusive udtagningerne i de forkortede pinde) = 132-144-152-!180-176-164! masker. Fortsæt i glatstrik og".. Er der nogle talrækker der er smuttet eller kan det passe at, der skal færre masker til en større størrelse?

17.03.2024 - 08:09

DROPS Design svaraði:

Hej Susanne, ja det stemmer, fortsæt ifølge opskrifterne, så får du flere masker jo større størrelser :)

19.03.2024 - 15:16

country flag Bettina Nordland skrifaði:

Ich verstehe die verkürzten Reihen bei dieser Anleitung nicht. Ich beginne in der hinteren Mitte und wende nach dem 2. Markieren. Dann stricke ich zurück über die Mitte und wende nach dem letzten Markierer. Aber welcher ist das? Der direkt vor der Mitte? Danke für die Hilfe. Bettina

05.03.2024 - 22:13

DROPS Design svaraði:

Liebe Bettina, bei der Rückreihe striken Sie bis 4 Maschen nach der 3. Markierung (Vorderteil ist zwischen 2. und 3. Markierung in die Strickrichtung, von der Vorderdseite gesehen). Viel Spaß beim Stricken!

06.03.2024 - 08:20

country flag Mia Johansen skrifaði:

Skal strikkeprøven laves med pind 4.4 eller pind 5.5, og hvad hvis antallet af masker passer, men jeg har for mange pinde på 10 cm? Mvh. Mia.

15.01.2024 - 09:10

country flag Birgitte skrifaði:

Hej. Hvilken størrelse har modellen på?

11.01.2024 - 18:59

DROPS Design svaraði:

Hej Birgitte, det ser ud til at det er en str M. Men se måleskitsen nederst i opskriften og vælg den størrelse som har de mål som passer dig. :)

12.01.2024 - 12:06

country flag Nicki skrifaði:

Guten Tag! :) Mit welcher Nadelstärke muss ich die Maschenprobe machen?

28.12.2023 - 22:12

DROPS Design svaraði:

Liebe Nicki, die Maschenprobe wird mit den grösseren Nadeln glatt rechts gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2024 - 09:47

country flag Nancy Daems skrifaði:

Ik heb de mouwen en de trui met 10cm moeten verlengen

22.12.2023 - 06:48