Mia Johansen skrifaði:
Skal strikkeprøven laves med pind 4.4 eller pind 5.5, og hvad hvis antallet af masker passer, men jeg har for mange pinde på 10 cm? Mvh. Mia.
15.01.2024 - 09:10
Birgitte skrifaði:
Hej. Hvilken størrelse har modellen på?
11.01.2024 - 18:59DROPS Design svaraði:
Hej Birgitte, det ser ud til at det er en str M. Men se måleskitsen nederst i opskriften og vælg den størrelse som har de mål som passer dig. :)
12.01.2024 - 12:06
Nicki skrifaði:
Guten Tag! :) Mit welcher Nadelstärke muss ich die Maschenprobe machen?
28.12.2023 - 22:12DROPS Design svaraði:
Liebe Nicki, die Maschenprobe wird mit den grösseren Nadeln glatt rechts gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2024 - 09:47
Nancy Daems skrifaði:
Ik heb de mouwen en de trui met 10cm moeten verlengen
22.12.2023 - 06:48
Nancy Daems skrifaði:
Ik heb de mouwen en de trui met 10cm moeten verlengen
21.12.2023 - 09:18
Sigrid skrifaði:
Hallo, wenn ich mit der Arbeit an der Passe beginne, habe ich in Größe L 96 Maschen auf der Nadel. Nun sollen 9x in jeder 2. Runde die Raglanzunahmen erfolgen. Das heißt, ich nehme in jeder Zunahmerunde 8 Maschen auf. So nehme ich aber insgesamt 72 Maschen zu und habe dann am Ende des Arbeitsschrittes 168 Maschen auf der Nadel und nicht wie angegeben 152 Maschen. An welcher Stelle habe ich zuviele Maschen aufgenommen?
25.11.2023 - 18:29DROPS Design svaraði:
Liebe Sigrid, man soll insgesamt 9 Mal für den Raglanzunehmen, aber damit werden die Zunahmen von den verkürzten Reihen inbegriffen. Also nach den verkürzten Reihen wird man noch 7 Mal zunehmen: 96+(7x8)=152 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
27.11.2023 - 08:41
Suzanne Boudreau skrifaði:
Bonjour, je fais l'empiècement de ce modéle aux augmentations du dos et devant après les raccourcis est-ce que je commence après le quatrième marqueur qui fais le demi-dos et que je fais la deuxi;me augmentation après l'autre demi-dos et que je fais pour le devant entre le 3 et le quatrième marqueur merci de me déprendre
09.11.2023 - 20:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Boudreau, après les rangs raccourcis, coupez le fil et joignez-le au milieu dos pour que les tours commencent au milieu dos, ainsi, vous augmenterez, dans l'ordre: à la fin du dos, avant le 1er marqueur, après le 1er marqueur au début de la manche et avant le 2ème marqueur à la fin de la manche, après le 2ème marqueur au début du devant et avant le 3ème marqueur à la fin du devant, après le 3ème marqueur au début de la 2ème manche et avant le 4ème marqueur à la fin de la manche et enfin après le 4ème marqueur au début du dos. Bon tricot!
10.11.2023 - 09:24
Jeannette skrifaði:
Kuschelig
03.08.2023 - 16:45
Hidden Forest Sweater#hiddenforestsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og háu hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-21 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 5 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma, miðjulykkjan af þessum 5 lykkjum er lykkja með prjónamerki (8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hár kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. HÁR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 124-132-132-136-144-148 lykkjur með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk yfir stuttan hringprjón 4,5 og stuttan hringprjón 5,5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5,5 og haldið lykkjunum eftir á stuttum hringprjóni 4,5 (uppfitjunin er gerð með þessum hætti til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 24 cm. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 48-52-52-52-56-56 lykkjur jafnt yfir = 76-80-80-84-88-92 lykkjur. Nú eru 4 prjónamerki sett í stykkið eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert án þess að prjóna. Hvert prjónamerki er sett í slétta lykkju (ekki á milli lykkja) og prjónamerkin eru notuðu þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar = ca mitt að aftan. Teljið 11-12-12-13-14-15 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22-24-24-26-28-30 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, það eru eftir 11-12-12-13-14-15 lykkjur í lok umferðar (hálft bakstykki). HÁLSMÁL: Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Byrjið mitt að aftan: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við fyrstu 2 prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 4 lykkjur fram hjá öðru prjónamerki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið þegar prjónaðar hafa verið 4 lykkjur fram hjá síðasta prjónamerki. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin, (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan. Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 2 sinnum fyrir laskalínu við hvert prjónamerki = 92-96-96-100-104-108 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt. BERUSTYKKI: Byrjið umferð við merkiþráð mitt að aftan og prjónið hringinn yfir allar lykkjur í sléttprjóni. JAFNFRAMT heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 7-8-9-12-11-9 sinnum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum) = 132-144-152-180-176-164 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 14-14-16-14-18-22 sinnum á fram- og bakstykki (7-7-8-7-9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 21-22-25-26-29-31 sinnum á fram- og bakstykki og 14-15-17-19-20-20 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 216-228-248-264-284-296 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni án útaukningar þar til stykkið mælist ca 24-25-28-30-33-36 cm frá miðju að aftan (eftir stroff). Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 33-35-38-40-44-47 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 42-44-48-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóni (í hlið undir ermi), prjónið 66-70-76-80-88-94 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 42-44-48-52-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-12-14-16-18 lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 33-35-38-40-44-47 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-164-176-188-208-224 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 23-24-23-23-22-21 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-44-48-52-56 lykkjur jafnt yfir = 188-204-220-236-260-280 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI. Setjið 42-44-48-52-54-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56-60-66-70-72 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 10-12-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6½-5-4-2½-2-1½ cm millibili alls 5-6-7-10-11-11 sinnum = 42-44-46-46-48-50 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 35-35-33-30-28-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 41-41-39-36-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hiddenforestsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.