Radostina skrifaði:
Guten Tag. Laut Anleitung (246-2) werden die Ärmel in Krausrippe gestrickt. Auf dem Bild wurden die Ärmel allerdings mit einem anderen Strickmuster gestrickt. Wie heißt dieses Muster, bzw. wie wurden dort die Ärmel gestrickt? Liebe Grüße, Radostina
30.10.2023 - 09:47DROPS Design svaraði:
Liebe Radostina, die Ärmel beginnen Sie mit den kleineren Nadeln im Rippenmuster, dann stricken Sie 2 Krausrippen (gleichzeitig wird es bei der 1. dieser 4 Runde zugenommen), dann stricken Sie A.1 mit den grösseren Nadeln. Viel Spaß beim stricken!
30.10.2023 - 17:57
Ocean Ropes#oceanropessweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, köðlum, ísaumuðum ermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 246-2 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermi): Lykkjum er aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki (= 1 lykkja slétt). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir lykkju með prjónamerki, prjónið út umferðina og aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan lykkju með prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið. Eftir það eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Lykkja með prjónamerki er alltaf prjónuð slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi, eftir það skiptist stykkið. Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, eftir það skiptist ermin mitt að neðan og prjónað er fram og til baka að loka máli. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á stuttan hringprjón og er brotinn saman tvöfaldur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 252-264-288-312-336-372 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan og fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 250-262-286-310-334-370 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 125-131-143-155-167-185 lykkjur = hliðar. Síðan er prjónað mynstur frá byrjun umferðar þannig: A.1 yfir fyrstu 19-22-28-34-40-49 lykkjur (endið með fyrstu lykkju í A.1), prjónið A.2, A.3, A.4, A.3, A.2, prjónið A.1 yfir næstu 37-43-55-67-79-97 lykkjur (endið með fyrstu lykkju í A.1), prjónið A.2, A.3, A.4, A.3, A.2, prjónið A.1 yfir síðustu 18-21-27-33-39-48 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynstri, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 5-5-9-12-16-23 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 116-122-126-132-136-140 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 9-9-17-23-31-45 lykkjur fyrir handveg, prjónið 116-122-126-132-136-140 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 4-4-8-11-15-22 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Setjið fyrstu 116-122-126-132-136-140 lykkjur á þráð fyrir framstykki og haldið eftir síðustu 116-122-126-132-136-140 lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: = 116-122-126-132-136-140 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-73 cm, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4 = 108-114-118-124-128-132 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 40-40-42-42-44-44 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju = 33-36-37-40-41-43 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur yfir kaðal í A.2 = 31-34-35-38-39-41 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Setjið til baka 116-122-126-132-136-140 lykkjur af þræði á hringprjón 4. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 57-59-60-62-63-65 cm, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4 = 108-114-118-124-128-132 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 28-28-30-30-32-32 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. ATH! Nú er ekki lengur prjónað kaðlamynstur í A.4, lykkjur sem eru eftir af A.4 eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu. Fækkið lykkjum í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 33-36-37-40-41-43 lykkjur í umverð á öxl. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur yfir kaðal í A.2 = 31-34-35-38-39-41 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 68-70-74-76-78-80 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fækkið jafnframt um 5-4-5-4-3-2 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 63-66-69-72-75-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið A.1 hringinn – setjið 1 prjónamerki í fyrstu sléttu lykkjuna í umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 8-10-8-13-12-9 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út hvoru megin við lykkjuna með prjónamerki í – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 21-22-23-24-25-26 sinnum = 105-110-115-120-125-130 lykkjur. Þegar stykkið mælist 55-55-53-52-51-48 cm, skiptist stykkið með því að fella af lykkju með prjónamerki í. Prjónið síðan fram og til baka í mynstri eins og áður þar til ermin mælist 57 cm í öllum stærðum, það er núna klauf ca 2-2-4-5-6-9 cm efst undir ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Eftir það er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 3 og DROPS Merino Extra Fine, byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 124 til 134 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist ca 14 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oceanropessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.