Lis skrifaði:
Spørgsmål \r\nJeg forstår ikke ,hvilket mærke der henvises til i opskrift.\r\n“Der er ca 11 cm til endemål for ryg tilbage
17.01.2025 - 16:16
Paula skrifaði:
Hello, I ma a bit confused hoe the tummy and back are joined. Could you please help?
05.01.2025 - 21:42DROPS Design svaraði:
Dear Paula, after you have worked the last row from RS on tummy, you have cast on 2-3-4 new sts, so you continue working from the right side the stitches from back piece starting with the 34-48-60 sts and ending with the 2-3-4 new stitches cast on on last row = you have now 50-70-86 sts on needle, join and work in the round all stitches. Happy knitting!
06.01.2025 - 11:00
Oddrún Einarsdóttir skrifaði:
Hæ hæ, Ég er búin með kragann og er komin þar sem ég á að jafna lykkjufjöldann í 70 lykkjur. "Prjónið 1 umferð slétt og jafnið lykkjufjöldann út til 50-70-86 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í stykkið hér, til að mæla frá". Hvernig geri ég það?
15.11.2024 - 21:34DROPS Design svaraði:
Blessuð Oddrún. Þegar þú ert búin að jafna lykkjufjöldann í 70 lykkjur setur þú eitt prjónamerki. Prjónamerkið notar þú til að mæla frá. Síðan skiptir þú yfir í hringprjón 5, prjónar síðan í hring í sléttprjóni þar til stykkið mælist 4-6-8 cm frá prjónamerki. Gangi þér vel.
18.11.2024 - 09:35
Chrissi skrifaði:
Sehr gut! Vielen Dank für die schnelle Hilfe. Viele Grüße.
02.10.2024 - 11:00
Chrissi skrifaði:
Hallo, Ich bei der folgendem Satz im Rumpfteil: „In der nächsten Runde die mittleren 12-16-20 Maschen an der unteren Bauchmitte abketten (= je 6-8-10 Maschen beidseitig des Markierungsfadens) und die Reihe rechts zu Ende stricken.“ Meine Fragen lauten dazu: Wo fängt man an abzuketten? Am Anfang der Bauchmaschen oder ab der Markierung? Und was bedeutet es „die Reihe rechts zu Ende stricken“? Viele Grüße
01.10.2024 - 16:56DROPS Design svaraði:
Liebe Chrissi, beginnen Sie 6-8-10 M vor der Markierung und ketten Sie die nächsten 12-16-20 Maschen, dann stricken Sie alle restlichen Maschen der Runde; wenden und weiter in Hin- und Rückreihen stricken; gleichzeitig Maschen am Anfang jeder Reihe (Hin- sowie RückReihe) abketten. Viel Spaß beim Stricken!
02.10.2024 - 08:05
Amy skrifaði:
Hi! I’m trying to get started on this pattern but I’m stuck after the initial ribbing! It says to cast on 64 stitches, work ribbing, then “adjust” the stitch count to 86. What does that mean? I can’t figure out where the increase in stitches comes from. How do I adjust it?
18.03.2024 - 06:14DROPS Design svaraði:
Hi Amy, The "adjustment" of stitches means to increase in some sizes and decrease in others. In your size you need to increase 22 stitches evenly spaced on the knitted round. Make 1 yarn over after approx. every 2nd stitch and knit these yarn overs twisted on the next round to avoid holes. Happy crafting!
18.03.2024 - 06:38
Pernille skrifaði:
Hvilken størrelse er det strikket med til hunden i bildet ?
26.10.2023 - 17:50DROPS Design svaraði:
Hej Pernille, Du kan finde målene på de forskellige størrelser i måleskitsen nederst i opskriften. Her er det tydeligt hvor du skal måle hunden, så blusen kommer til at passe :)
27.10.2023 - 15:07
Good Girl Sweater#goodgirlsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað frá hálsi að skotti. Stærð XS - M.
DROPS 245-32 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá hálsi að skotti. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón. Stykkið skiptis til að gera op fyrir framfætur. Magastykki og bakstykki er prjónað fram og til baka þar til opið hefur verið prjónað til loka. Síðan er stykkið prjónað í hring þar til magastykkinu er skipt upp, stykkið er síðan prjónað fram og til baka. Prjónaður er kantur meðfram neðri kanti á peysu og prjónaður er upp kantur í kringum op fyrir framfætur. KANTUR Í HÁLSMÁLI OG BERUSTYKKI: Fitjið upp 52-56-64 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 með DROPS Nepal í litnum rauður. Prjónið stroffprjón í hring (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9-10-11 cm. Prjónið 1 umferð slétt og jafnið lykkjufjöldann út til 50-70-86 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í stykkið hér, til að mæla frá. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5 og litinn kirsuber, prjónið í hring í sléttprjóni þar til stykkið mælist 4-6-8 cm frá prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 2-3-4 lykkjur slétt fyrir opi fyrir framfætur, prjónið 12-16-18 lykkjur slétt og setjið þessar lykkjur á þráð eða á auka prjón (magastykki), fellið af 2-3-4 lykkjur slétt fyrir opi fyrir framfætur og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Nú er bakstykkið og magastykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 34-48-60 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan (1. umferð = ranga). Prjónið svona fram og til baka þar til stykkið mælist 9-10-13 cm frá skiptingu. Í næstu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 2-3-4 nýjar lykkjur í lok umferðar = 36-51-64 lykkjur. Klippið þráðinn, geymið stykkið og prjónið magastykki. MAGASTYKKI: = 12-16-18 lykkjur. Setjið lykkjur á sokkaprjón 5, prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 9-10-13 cm frá skiptingu. Setjið einn merkiþráð mitt í umferð (6-8-9 lykkjur hvoru megin við merkiþráð) = mitt undir maga – látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, hann er notaður síðar þegar fella á af fyrir miðju á magastykki. Í næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp 2-3-4 nýjar lykkjur í lok umferðar = 14-19-22 lykkjur. Nú á að prjóna magastykki saman með bakstykki, ekki klippa þráðinn frá, það á að nota hann síðar. MAGA- OG BAKSTYKKI: Síðasta umferð sem var prjónuð á magastykki var frá réttu, nú er prjónað áfram yfir lykkjur frá bakstykki frá réttu = 50-70-86 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 5-5-8 cm frá þar sem stykkið var sett saman, nú eru eftir 3 cm að loka máli undir maga og ca 8-11-11 cm á baki. Mátið e.t.v. flíkina á hundinn og prjónið að óskaðri lengd áður en stykkið skiptist undir maga. Í næstu umferð eru felldar af miðju 12-16-20 lykkjur undir maga (6-8-10 lykkjur hvoru megin við merkiþráð) og prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Nú er stykkið prjónað fram og til baka í sléttprjóni jafnframt því sem lykkjur eru felldar af í hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2 sinnum, 1 lykkja 1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni. Eftir alla úrtöku eru 16-22-34 lykkjur í umferð, stykkið mælist ca 23-29-37 cm frá prjónamerki (mælt meðfram baki). Klippið þráðinn frá og setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. KANTUR NEÐAN Á PEYSU: Nú á að prjóna upp lykkjur í kringum allan kantinn neðst á peysunni. Byrjið frá réttu mitt undir maga, notið sokkaprjón eða hringprjón 4 og litinn kirsuber. Prjónið upp ca 18-27-31 lykkjur meðfram hlið á maga- og bakstykki fram að lykkjum sem sitja á þræði / hjálparprjóni frá maga- og bakstykki, prjónið 16-22-34 lykkjur frá maga- og bakstykki slétt, prjónið upp ca 18-27-31 lykkjur meðfram hlið á maga- og bakstykki fram að miðju undir maga. Nú eru ca 52-76-96 lykkjur í umferð (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4, ef lykkjufjöldinn passar ekki alveg þegar lykkjur eru prjónaðar upp, er hægt að auka / fækka lykkjum í næstu umferð). Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT: Notið sokkaprjóna 4 og litinn rauður. Prjónið upp ca 36 til 52 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum annað opið fyrir framfót (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4, ef lykkjufjöldinn passar ekki alveg þegar lykkjur eru prjónaðar upp, er hægt að auka / fækka lykkjum í næstu umferð). Prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4-5-6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goodgirlsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.