Sharon Hunt-Edwards skrifaði:
Hi! Have a quick question. Have worked the first round of the yoke where it says to work R1 by at all 4 markers and the increase on the back pieces and front. Should I just repeat these two round or am I supposed to to knit 1 round before starting another round. Thanks for your response.
01.01.2025 - 23:21DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hunt-Edwards, when you are working yoke in the round you will increase for raglan at the 4 markers a total of 3-2-7-13-13-12 times (see size), this means work 1 round with increases, 1 round without and repeat these 2 rows a total of 3-2-7-13-13-12 times. Happy knitting!
03.01.2025 - 07:33
Sharon Hunt skrifaði:
Hi! Not much luck but am not giving up. Starting again and I have two ? When the pattern says to knit two or 3 sts past MT does that include the yo. When working inc at MT (YO, K1, 🪱 k1 yo). Or should I work 3 sts after yo. Sorry 😐 if this should be obvious, but I have been ripping for a week now and not sure 🤔 what am doing 😑 wrong. Thanks for your response.
30.12.2024 - 21:34DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, the yarn overs for the raglan are not counted when indicating 3 stitches. So, apart from the yarn over, you need to work over 3 stitches from the previous round before turning. Happy knitting!
30.12.2024 - 23:43
Sharon Hunt skrifaði:
Where do I start the raglan shaping? Do I start at the beginning of the round or do I cut the yarn an start at stitch marker 3? If yes do I start with a raglan increase here? Thanks
26.12.2024 - 01:04DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, we don't need to cut any threads. The raglan is started in the neckline, where we work short rows; you can see an example in the following video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1735&lang=en. Start from the beginning of the round (that is, mid-back), work until after marker-2 and turn and work back until after marker-3 (so you work over marker-2, marker-1, marker-4 and finish after marker-3). Happy knitting!
29.12.2024 - 21:57
Alex skrifaði:
Halsausschnitt R2: wenden wenn 3M nach dem Markierer gestrickt: zählt da der gestrickte Umschlag mit? Und ich glaube, da ist ein Fehler im Text, es steht 3. Markierungsfaden, müsste aber doch der 2. sein? Noch ein Problem in R3: „wenden wenn 2 Maschen mehr als nach der vorherigen Wendestelle gestrickt wurden“ - also 5M? Woher nehme ich die, wenn das gerade gestrickte Teil ja nur 3M nach dem Markierer hat? Aus dem restlichen Strickstück? Danke für die Hilfe!
12.11.2024 - 20:21
Valeria Madau skrifaði:
Mi sembra che ci sia un errore in: SCOLLATURA ferro 7: l’aumento raglan 1 va fatto ad ogni lato dei segnapunti 3 e 4 e non i primi due. Altrimenti non si rispetta la simmetria. Aspetto una vostra risposta .Grazie
09.10.2024 - 12:04
Merete Cakmak skrifaði:
Dette er en kommentar til jeres fotos., og det gælder ikke kun denne opskrift, men den illustrerer min pointe fint for flertallet af jeres fotos: blusen er vist fra samme vinkel i alle fotos, kun modellens ansigt ses fra to forskellige sider. Jeg ville meget hellere se bluserne forfra, bagfra og fra siden. Før i tiden kunne man forstørre/zoome ind på billederne, det kan man heller ikke mere.
14.04.2024 - 16:43
Marion skrifaði:
Ik heb een proeflapje(op normale penen) gemaakt eerst op naald 4, daarna op 3,5. Het aantal steken klopte bij 3,5. Na de boord op naald 3, ben ik in tricotsteek op 3,5 verder gegaan op een rondbreinaald. Nu na 7 toeren klopt de steken verhouding niet meer. (te weinig steken).Komt dat door het verschil tussen een rondbreinaald en gewone rechte pennen? Kan ik nu gewoon verder gaan op naald nr.4, of moet ik het gebreide nu uithalen en vanaf de boord opnieuw beginnen? Wat is uw advies?
11.12.2023 - 17:28DROPS Design svaraði:
Dag Marion,
Het kan inderdaad zo zijn dat je stekenverhouding anders is op de rondbreinaald. Je zou even een proeflapje kunnen maken met de rondbreinaald nr. 4 om te kijken of het dan wel de juiste stekenverhouding is. Dan zou je inderdaad verder kunnen breien met naald nr 4. Als het verschil niet te groot is, hoef je het denk ik niet uit te halen.
13.12.2023 - 21:21
Helena Hugosson skrifaði:
Hej! Stickade om och om igen enligt mönstret, föjande; Efter halsen och de 4 markeringarna är satta kommer 7 förkortade varv. Varv 1 är rätt men varv 2, att sticka 3 maskor "efter den 3: dje" markeringen, blir FEL. Det ska vara "efter den 4:de" markeringen. Repade upp maskorna ett antal gånger. Jämförde sedan med liknande mönster och fick tillslut det att stämma perfekt. Mvh Helena
31.10.2023 - 21:19
Irina skrifaði:
Irish Dream
07.08.2023 - 06:25
Evergreen skrifaði:
The color matches with the evergreen forests.
04.08.2023 - 18:31
Sea Maiden Sweater#seamaidensweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-18 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Öll útaukning er gerð á undan / eftir 2 lykkjum í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma (merkiþráður situr á milli þessa 2 lykkja og þessar lykkjur eru núna kallaðar laskalínulykkjur). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir laskalínulykkjum þannig: Á UNDAN laskalínulykkjum: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR laskalínulykkjum: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir laskalínulykkjum þannig: Á UNDAN laskalínulykkjum: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR laskalínulykkjum: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. LASKALÍNA-2: Aukið út um 1 lykkju aukalega á eftir / undan laskalínulykkjum á framstykki / bakstykki (ekki á ermum). Laskalína-2 er prjónuð sem viðbót við Laskalína-1. Þetta er gert þannig: Á UNDAN 2 laskalínulykkjum: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan 2 laskalínulykkjum, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR 2 laskalínulykkjum: Prjónið 3 lykkjur fram hjá 2 laskalínulykkjum (hugsanlega er uppsláttur frá útaukningu í sömu umferð sem er ekki talinn sem lykkja hér), takið upp þráðinn á undan næstu lykkju, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Síðan er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum fram og til baka á hringprjóna. Þegar hálsmálið hefur verið prjónað til loka, prjónið afgang af berustykki í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 116-120-124-128-132-136 lykkjur með DROPS Karisma yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 4 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 3 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 11 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður JAFNFRAMT því sem fjórða hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan). Nú eru sett 4 merkiþræðir í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja (laskalínulykkja). Teljið 14-16-16-18-18-20 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 29 lykkjur (ermi), setjið 2. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 29-31-33-35-37-39 lykkjur (framstykki), setjið 3. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 29 lykkjur (ermi), setjið 4. merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 15-15-17-17-19-19 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (hálft bakstykki). HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan, byrjið mitt að aftan: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA-1 – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu merkiþræðina (4 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 2. merkiþræði (hægra megin við hálsmál, séð þegar flíkin er mátuð) = 120-124-128-132-136-140 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón (uppslátturinn frá fyrri útaukningu er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 3. merkiþræði (vinstra megin við hálsmál, séð þegar flíkin er mátuð). UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning = 128-132-136-140-144-148 lykkjur. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón, snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 merkiþræðina (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning = 136-140-144-148-152-156 lykkjur. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið sléttprjón, snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 2 fyrstu merkiþræðina (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan = 140-144-148-152-156-160 lykkjur. Stuttar umferðir hafa núna verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkiþræðina. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Það á núna að auka út fleiri lykkjur á framstykki / bakstykki en á ermum, þess vegna á að auka út til auka lykkjum á framstykki / bakstykki með jöfnu millibili (laskalína-2). Þetta er gert sem viðbót við laskalína-1. Lestu því allan kaflann um berustykki áður en þú prjónar áfram. Aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 merkiþræðina í annarri hverri umferð alls 3-2-7-13-13-12 sinnum (þ.e.a.s. 6-5-10-16-16-15 sinnum meðtaldar 3 útaukningar fyrir hálsmáli). JAFNFRAMT í fyrstu umferð, aukið út fyrir LASKALÍNA-2 á framstykki og bakstykki – lesið útskýringu að ofan (laskalína-2 er prjónuð sem viðbót við laskalína-1). Aukið út fyrir laskalína-2 í 12.-24.-18.-12.-8.-8. hverri umferð alls 4-2-3-5-7-8 sinnum. Þegar aukið hefur verið út fyrir laskalína-1 alls 3-2-7-13-13-12 sinnum eins og útskýrt er að ofan, heldur útaukning fyrir laskalína-1 áfram í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 22-26-22-18-20-24 sinnum á fram- og bakstykki (11-13-11-9-10-12 sinnum á ermum) – munið eftir laskalína-2. Nú hefur verið aukið út alls 32-33-35-39-43-47 sinnum á framstykki / bakstykki og 17-18-21-25-26-27 sinnum á ermum. Eftir alla útaukningu fyrir laskalína-1 og laskalína-2 eru 312-324-348-384-408-432 lykkjur í umferð (93-97-103-113-123-133 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki / bakstykki og 63-65-71-79-81-83 lykkjur á milli merkiþráða á ermum). Prjónið sléttprjón án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-23-24-25-27-29 cm, mælt mitt að aftan á eftir stroffi í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 47-50-52-58-62-68 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki ásamt laskalínulykkjum), setjið næstu 61-63-69-77-79-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 95-99-105-115-125-135 lykkjur sléttprjón (framstykki ásamt laskalínulykkjum), setjið næstu 61-63-69-77-79-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 48-49-53-57-63-67 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (hálft bakstykki ásamt laskalínulykkjum). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 210-222-238-262-286-310 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 10-12-14-16-18-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 19-19-20-21-21-21 cm frá skiptingu. Setjið lykkjur frá framstykki á hringprjón 3 og látið lykkjur á bakstykki hvíla á hringprjón 4. FRAMSTYKKI: = 105-111-119-131-143-155 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-36-38-40-44-50 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 139-147-157-171-187-205 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 10 cm. Fellið af, notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. BAKSTYKKI: Færið 105-111-119-131-143-155 lykkjur yfir á hringprjón 3 og prjónið á sama hátt og á framstykki. ERMI: Setjið 61-63-69-77-79-81 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 71-75-83-93-97-101 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 10-12-14-16-18-20 lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-2-2-3-3-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-1½-1½-1½ cm millibili alls 8-9-12-16-17-18 sinnum = 55-57-59-61-63-65 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 34-32-32-32-30-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 17-17-17-19-19-21 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 72-74-76-80-82-86 lykkjur. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10 cm. Fellið af á sama hátt og framstykki / bakstykki. Ermin mælist ca 44-42-42-42-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seamaidensweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.