Lucie skrifaði:
Mám problém s velikostí pro 2 roky. Trup má 168 ok, tj. 80 cm (pokud zkušební vzorek má 21 ok= 10 cm), tj. spíš pro dospělého. Sedlo - mám přidat 19x v každé druhé řadě = 38 řad, tj. 13,5 cm (podle zkušebního vzorku). Pak mám pokračovat bez přidávání do 14 cm, tedy jen další 2 řady? Mám DROPS merino extra fine, jehlice 3. Lze přepočítat na tuto vlnu, aby sedělo na 2 leté dítě? Děkuji
12.11.2023 - 11:44
Joanna skrifaði:
Jak rozumieć "Dodawać na reglan z każdej strony każdej z 4 nitek markerów – patrz powyżej, w sumie 3-3-4-3-3-5 razy co 2 okrążenia"? Dodajemy PO dwóch okrążeniach czyli w trzecim? Czy dodajemy w co drugim okrążeniu?
08.10.2023 - 10:05DROPS Design svaraði:
Witaj Joanno, dodawać oczka co 2 okrążenia oznacza, że w jednym okrążeniu nie dodajesz oczek, a w drugim okrążeniu dodajesz oczka, itd. Możesz jeszcze zobaczyć kurs DROPS TUTAJ. Pozdrawiamy!
09.10.2023 - 08:35
Gunilla Holmgren Schmieg skrifaði:
Varför går det inte att se diagrammet?
19.09.2023 - 09:04DROPS Design svaraði:
Hej Gunilla. Tack för info, nu ska du kunna se diagrammet. Mvh DROPS Design
19.09.2023 - 12:14
Chocolate Puff#chocolatepuffsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Lima eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 47-11 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan / eftir 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma, merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja (8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt / brugðið, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (lykkja með merkiþræði), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-88-88-88-88 lykkjur með DROPS Lima eða DROPS Daisy yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 4 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Prjónið síðan áfram berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 4 merkiþræði í stykkið eins og útskýrt er að neðan, jafnframt því sem aukið er út jafnt yfir. ATH: Hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja slétt og merkiþræðirnir merkja laskalínu. (Byrjun á umferð er á milli bakstykkis og hægri ermi). Setjið 1. merkiþráð í byrjun á umferð, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 18 lykkjur og aukið út 1 lykkju – lesið ÚTAUKNING (hægri ermi), prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 2. merkiþráð á milli þessa 2 lykkja, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur og aukið út 9-9-9-9-13-13 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 27-27-31-31-35-35 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 3. merkiþráð á milli þessa 2 lykkja, prjónið slétta lykkju yfir næstu 18 lykkjur og aukið út 1 lykkju (vinstri ermi), prjónið 2 lykkjur slétt og setið 4. merkiþráð á milli þessa 2 lykkja, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur og aukið út 9-9-9-9-13-13 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 27-27-31-31-35-35 lykkjur fyrir bakstykki), prjónið 1 lykkju slétt = 100-100-108-108-116-116 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn með 2 lykkjur sléttprjón í hverri laskalínu og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina – lesið útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 3-3-4-3-3-5 sinnum = 124-124-140-132-140-156 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 16-18-18-20-20-20 sinnum á framstykki/bakstykki (8-9-9-10-10-10 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 19-21-22-23-23-25 sinnum á framstykki/bakstykki og 11-12-13-13-13-15 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 220-232-248-252-260-276 lykkjur á prjóni. Prjónið mynstur sem áður og útaukningu þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm mælt eftir stroff í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið 43-45-47-47-47-51 fyrstu lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-9-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 67-71-77-79-83-87 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið 43-45-47-47-47-51 næstu lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-7-9-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir síðustu 67-71-77-79-83-87 lykkjur eins og áður (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-156-168-176-184-192 lykkjur. Haldið áfram hringinn með mynstri. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24-27-29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-24-28-28-28 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 168-180-192-204-212-220 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá öxl. ERMI: Setjið 43-45-47-47-47-51 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-9-9-9 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-54-56-56-60 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 7-7-7-9-9-9 nýjar lykkjur. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið mynstur eins og áður hringinn. Þegar ermin mælist 2-3-3-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 2½.-3.-4.-4½.-5½.-7. hverjum cm alls 5 sinnum = 40-42-44-46-46-50 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 14-19-22-25-29-34 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-8-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 19-24-27-30-34-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chocolatepuffsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.