Päivi skrifaði:
Jatkona edelliseen kysymykseeni. Miten koon XXL 131s täsmää annettuihin kuvioihin ensimmäisellä kuviokerroksella? Ohje on sekava vaikka tähän on monta päivää käyttänyt, että ymmärtäisi ja pääsisi alkuun :(
16.09.2023 - 20:06
Päivi skrifaði:
Ensimmäisellä kuviokerroksella koossa XXL pitäisi olla 16s mutta ohjeen mukaan saan vain 11s. A6+A7+A3=11s :( Miten ratkaisen ongelman?
12.09.2023 - 18:00
Sylvain GLIOZZO skrifaði:
Pour XL : nbr de m au premier rang de l'empiècement selon diagramme= 109 m +12 m de bordures (123m au total) pour XL 127 m après aug des 25 m après col. que faire des 4 mailles de trop ? Merci de me répondre car je me calcule recalcule....et je veux faire ce beau gilet
08.09.2023 - 21:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gliozzi, en taille L, vous aurez bien 123 mailles. mais en taille XL vous devez avoir 127mailles que vous allez tricoter ainsi: 6 m point mousse, A.1 (=1 m), A.2(= 5m ), A.3 (=4 m) pour le devant gauche, puis A.4 (16 m), A.5 (5 m), A.4 (16 m) pour la manche, puis: A.6 (5 m), A.7 (11 m) et A.3 (4 m) pour le dos, A.4 (16 m), A.5 (5 m), A.4 (16 m) pour l'autre manche et A.6 (5 m), A.7 (5 m), A.1 (1 m) et 6 m point mousse soit pour le devant droit, soit: 6+1+5+4+16+5+16+5+11+4+16+5+16+5+5+1+6= 127 mailles. Bon tricot!
11.09.2023 - 08:27
Sjoukje skrifaði:
Very nice
07.09.2023 - 13:00
Mebarki skrifaði:
White september
04.08.2023 - 23:03
Conni Foged skrifaði:
Just Fine
04.08.2023 - 16:52
Sveta skrifaði:
Snow-white
04.08.2023 - 15:03
Cindy skrifaði:
Just elegant.
03.08.2023 - 16:30
Winter Owl Cardigan#winterowlcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-2 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.3 og A.6. . Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á berustykki. Síðan er fellt af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 10-10-9-9-8-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-82-86-90-94-98 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Flora og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 lykkjur slétt. Prjónið stroff svona fram og til baka þar til stykkið mælist 5 cm. Í næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 6 nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar – nýjar lykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan (kantlykkjur að framan) = 90-94-98-102-106-110 lykkjur. Haldið áfram með stroff og kantlykkjur að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist ca 10 cm (kantur í hálsmáli er síðar brotinn saman tvöfalt þannig að kanturinn verði 5 cm). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 23 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 113-117-121-125-129-133 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki innan við kantlykkjur að framan í annarri hliðinni, berustykkið er mælt héðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið mynstur frá réttu þannig: Prjónið yfir vinstra framstykki þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2 (yfir 5-5-5-5-5-10 lykkjur), A.3. Prjónið yfir vinstri ermi þannig: Prjónið A.4, A.5 og A.4. Prjónið yfir bakstykki þannig: Prjónið A.6, A.7 (yfir 11-11-11-11-11-21 lykkjur) og A.3. Prjónið yfir hægri ermi þannig: Prjónið A.4, A.5 og A.4. Prjónið yfir hægra framstykki þannig: Prjónið A.6, A.7 (yfir 5-5-5-5-5-10 lykkjur), A.1 og prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – í þessari umferð byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.3, A.5 og A.6 (þ.e.a.s. lykkjur eru auknar út við hvert A.4, aukið er út alls 8 lykkjur í hverri umferð frá réttu). Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum snúnar inn í mynstur, það á ekki að myndast gat. Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Mynsturteikning A.1, A.2, A.4 og A.7 er endurtekin á hæðina. Þegar mynsturteikning A.3, A.5 og A.6 hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina heldur útaukning áfram á sama hátt og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og áður. Aukið út eins og útskýrt er að ofan þar til aukið hefur verið út alls 17-19-23-25-27-30 sinnum (meðtalin útaukning sem er sýnd í A.3, A.5 og A.6) = 249-269-305-325-345-373 lykkjur. Síðan er haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón og sléttprjón yfir sléttprjón þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 37-39-44-48-51-57 lykkjur sléttprjón (vinstra framstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 76-80-90-98-104-116 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 43-49-57-59-63-65 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 8-10-10-10-10-8 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 38-40-45-49-52-58 lykkjur sléttprjón og endið með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 179-191-211-227-239-259 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 33-33-34-34-34-33 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem aukið er út um 23-27-27-31-31-35 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið yfir kantlykkjur að framan) = 202-218-238-258-270-294 lykkjur. Síðan er prjónað stroff þannig (fyrsta umferð er frá réttu): Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm frá kanti í hálsmáli. ERMI: Setjið 43-49-57-59-63-65 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-10-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 51-59-67-69-73-73 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 6-4-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 5-7-11-11-13-12 sinnum = 41-45-45-47-47-49 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-31-31-29-28-25 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-7-7-9-9-11 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af þegar ermin mælist 39-37-37-35-34-31 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterowlcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.