Boreal Circle Cardigan#borealcirclecardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-3 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 139 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d.16) = 7,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, prjónið ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. KANTLYKKJUR: Í byrjun á umferð eru prjónaðar 2 kantlykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í lok umferðar eru prjónaðar 2 kantlykkjur þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Endurtakið þetta í byrjun og í lok hverrar umferðar. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-10-8½-9-9 cm millibili. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 127-135-141-145-151-155 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum ljós eik í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 6 cm, eru fitjaðar upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 139-147-153-157-163-167 lykkjur. Haldið áfram með stroff, en prjónið KANTLYKKJUR – lesið útskýringu að ofan – yfir 2 ystu lykkjur í hvorri hlið og garðaprjón yfir 5 lykkjur innan við kantlykkjur – þ.e.a.s. það eru 7 kantlykkjur að framan, þær 2 ystu af þessum 7 lykkjum eru prjónaðar eins og kantlykkjur. Kantlykkjur að framan eru alltaf prjónaðar í litnum ljós eik (ef liturinn ljós eik er ekki notuð í mynstri, er þræðinum snúið á milli kantlykkja að framan og lykkja í mynstri til að koma í veg fyrir göt, til að sleppa við að draga þráðinn yfir allar lykkjur í umferð, er hægt að nota litlar dokkur fyrir kantlykkjur að framan í hvorri hlið). Þegar stroffið mælist 12 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-18-18-20-20 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) – lesið ÚTAUKNING / ÚRTAKA, í þessari umferð byrjar einnig affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 123-131-135-139-143-147 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, kantar að framan halda áfram eins og áður. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi á sama hátt), 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út þannig: ÖR 1: aukið út 24-28-28-32-36-40 lykkjur jafnt yfir = 147-159-163-171-179-187 lykkjur. ÖR 2: aukið út 24-28-32-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 171-187-195-207-215-227 lykkjur. ÖR 3: aukið út 24-28-32-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 195-215-227-243-251-267 lykkjur. ÖR 4: aukið út 24-28-32-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 219-243-259-279-287-307 lykkjur. ÖR 5: aukið út 28-28-32-36-40-40 lykkjur jafnt yfir = 247-271-291-315-327-347 lykkjur. ÖR 6: aukið út 28-28-32-36-40-40 lykkjur jafnt yfir = 275-299-323-351-367-387 lykkjur. ÖR 7: aukið út 28-32-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 303-331-355-387-407-431 lykkjur. ÖR 8: aukið út 31-31-31-35-39-43 lykkjur jafnt yfir = 334-362-386-422-446-474 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og með litnum ljós eik. Þegar stykkið mælist 21-24-25-26-28-30 cm, mælt eftir stroffi í hálsmáli, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTIÐ STYKKINU FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR ÞANNIG: Prjónið 56-61-64-69-74-80 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 98-108-114-124-134-146 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 56-61-64-69-74-80 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 222-242-258-278-302-330 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið með litnum ljós eik þar til stykkið mælist 25-24-25-26-26-26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 71-73-79-87-97-101 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 293-315-337-365-399-431 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig. 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 8 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMI: Setjið 62-66-72-80-82-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós eik. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 9-8-4-2½-2-2 cm millibili alls 4-4-7-10-11-12 sinnum = 60-64-66-68-70-72 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 35-32-32-31-30-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-20-22-22-22 lykkjur jafnt yfir = 80-84-86-90-92-94 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 43-40-40-39-38-36 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op mitt framan í köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #borealcirclecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.