Elisabet Ciprián skrifaði:
Hola, no he trabajado nunca con agujas de doble punta. Los 74-82-90 puntos al inicio de la labor se distribuyen en varias agujas supongo? En cuántas? Cómo se distribuyen los puntos? No son múltiplos de 4 ni de 3, excepto 90. Gracias!
21.11.2024 - 00:42DROPS Design svaraði:
Hola Elisabet, sí, tienes que distribuirlos de forma más o menos equitativa en las 4 agujas (mientras trabajas con la 5ª aguja), no importa que no sea un múltiplo exacto. Es decir, puedes tener 18 18 19 y 19, para la talla pequeña, o 20 20 21 21 para la talla mediana o 22 22 23 23 para la talla grande. Al final, el patrón se trabajará según la propia labor y los aumentos y disminuciones dependen de la parte del calcetín que se está trabajando; en qué aguja se encuentra qué punto no es importante. Puedes ver en el siquiente video cómo montar con agujas de doble punta: https://www.garnstudio.com/video.php?id=42&lang=es.
24.11.2024 - 19:38
Carmen skrifaði:
Hola. Yo tejo con aguja circular pero vuestros calcetines son con juegos de agujas. Cómo podría hacerlos en circular?Muchísimas gracias por la respuesta y por el magnífico trabajo que hacéis. Un saludo.
19.11.2024 - 17:57DROPS Design svaraði:
Hola Carmen, para trabajar con una aguja circular en vez de agujas de doble punta puedes usar la técnica "magic loop" o círculo mágico. Puedes ver una explicación de esta técnica en el siguiente video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=120&lang=es. También puedes trabajar con dos agujas circulares, como si fueran las agujas de doble punta.
24.11.2024 - 18:26
Emma skrifaði:
Hello! I worked the leg decreases following the 'decrease tip 1' - this says to work the decreases around the stitch marker. The stitch marker is placed at the beginning of the round. Is this also the position of the 'mid back'? Thank you!
08.01.2024 - 23:14DROPS Design svaraði:
Hi Emma, Yes, the beginning of the round and the marker are mid-back of leg. Happy knitting!
09.01.2024 - 06:42
Veronica skrifaði:
Not sure you got the question I just sent. Above is written: your comment is too long. Basically I need help with DECREASE TIP-1 of this pattern. Thanks.
11.11.2023 - 09:00DROPS Design svaraði:
Dear Veronica, it seems your previous question didn't go through since it was too long. You can see a general example on how to work the decrease indicated here in this video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=736&lang=en. So, you slip without working the 2 stitches before and the stitch with the marker. Then, you knit together the next 2 stitches. Finally, you pass over the 3 slipped stitches over the 2 stitches knit together. This way, you should have decreased 4 stitches. Happy knitting!
12.11.2023 - 20:25
Alexandra skrifaði:
What does it mean when it says "Decrease like this on every round 4 times in total and then on every other round 6-6-7 times in total = 57-61-65 stitches."?
28.04.2023 - 14:53DROPS Design svaraði:
Dear Alexandra it means that you need to decrease as stated above on every round for the next 3 rounds (the first one used as an explanation is included in this). After working these 4 rounds, you will decrease on alternate rounds; that is, work 1 round without decreases, the next one with decreases, another one without decreases, the next one with decreases, e.t.c, until you have worked 6 or 7 (depending on your size) more rounds with decreases. Happy knitting!
30.04.2023 - 20:36
Amber skrifaði:
Die Maschenanzahl stimmt nicht .. ist VIIIEL zu groß, könnte man das noch korrigieren ?
16.04.2023 - 20:03DROPS Design svaraði:
Liebe Amber, so wurden die Socken im Foto gestrickt, beachten Sie, ob Ihre Maschenprobe stimmt, dann sollten die Socken passen. Viel Spaß beim stricken!
17.04.2023 - 10:08
Tina skrifaði:
Something good for the energy crisis right now. Longer than usely socks. Maybe call them Nanok (polarbear in Inuit language)
22.01.2023 - 13:25
Susanna skrifaði:
Hienot lumenvalkeat sukat.
19.01.2023 - 09:39
Véronique skrifaði:
Indémodable, et belle hauteur, comme le modèle précédent( fa-529) . Les explications dans toutes les pointures, s'il-vous-plaît .
18.01.2023 - 20:06
Nina skrifaði:
Simplicity
18.01.2023 - 18:37
Coconut Cream#coconutcreamsocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir háir sokkar úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni. Stærð 35 - 43.
DROPS 238-26 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-16-16 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA-1: Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, lyftið næstu 3 lykkjum (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið 3 lyftu lykkjunum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (4 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið aðeins laust upp 74-82-90 lykkjur á sokkaprjón 3 með DROPS Nord. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-17-16 cm, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur mitt að aftan – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 2-3-4 sinnum = 66-70-74 lykkjur. Haldið áfram með stroffprjón þar til stykkið mælist 23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 17-17-19 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið stroffprjón (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) yfir næstu 33-35-37 lykkjur (stroffprjónið á að halda fallega áfram yfir lykkjur og byrjar / endar með 1 lykkju brugðið), prjónið 16-18-18 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 59-63-67 lykkjur. Haldið áfram hringinn með 26-28-30 lykkjur sléttprjón að aftan og 33-35-37 lykkjur stroffprjón framan á sokknum þar til stykkið mælist 24-26-28 cm. Prjónið síðan hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Setjið 33-35-37 stroffprjónslykkjurnar á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir 26-28-30 sléttprjónslykkjum á prjóni fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjurnar í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14-16-16 hællykkjur, prjónið upp 15-15-17 lykkjur meðfram hvorri hlið á hæl, prjónið stroffprjón eins og áður yfir 33-35-37 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 15-15-17 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 77-81-87 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 33-35-37 stroffprjónslykkjur ofan á fæti. Haldið áfram með stroffprjón yfir þessar lykkjur og prjónið sléttprjón yfir lykkjur undir fæti. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 6-6-7 sinnum = 57-61-65 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-18-19 cm frá prjónamerki á hæl - mælt undir fæti. Í næstu umferð er prjónað sléttprjón og fækkað um 5 lykkjur jafnt yfir 33-35-37 stroffprjónslykkjur mitt ofan á fæti = 52-56-60 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-20 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-2 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-8-8 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #coconutcreamsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 238-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.