Katarzyna skrifaði:
Why there is not photo of the back?
05.03.2023 - 19:32DROPS Design svaraði:
Dear Katarzyna, the back piece is simply knitted with rib and stocking stitch. The only photos we have available are for the front of the garment. Happy knitting!
05.03.2023 - 20:05
Carol J Zettlemoyer skrifaði:
I like everything about this pattern except the baggy sleeves.
22.01.2023 - 17:37
Ruth skrifaði:
Mint
18.01.2023 - 13:45
Doris skrifaði:
Immer tragbar mit diesen Mustern
18.01.2023 - 08:00
Małgorzata skrifaði:
Wodospad warkoczy
18.01.2023 - 00:44
Huerne Françoise skrifaði:
Chamonix
17.01.2023 - 18:19
Bente Tjøsvoll skrifaði:
Flott mønster , god på kjølige sommerkvelder :)
17.01.2023 - 15:06
Celtic Harmony Cardigan#celticharmonycardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-18 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 7, 15, 23, 31, 39 og 47 cm M: 6, 13, 20, 27, 34, 41 og 48 cm L: 6, 13, 20, 27, 34, 41 og 48 cm XL: 7, 14, 21, 28, 35, 43 og 51 cm XXL: 7, 14, 21, 28, 35, 43 og 51 cm XXXL: 6, 14, 22, 30, 38, 46 og 54 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykkið er prjónað hvert fyrir sig fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Frágangur á peysu er útskýrður í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 112-120-124-136-144-160 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merion Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 9-9-9-13-9-13 lykkjur jafnt yfir = 103-111-115-123-135-147 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 3-5-3-3-5-6 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á 2 næstu umferðum = 97-101-109-117-125-135 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-56-58-60 cm, fellið af miðju 35-35-37-37-41-41 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 30-32-35-39-41-46 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 66-70-74-78-82-90 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist 6 cm, munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir jafnframt því sem fækkað er um 5-5-7-7-5-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 61-65-67-71-77-83 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 62-66-68-72-78-84 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með A.3 yfir lykkjur í A.2. Endurtakið A.3. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 3-5-3-3-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun næstu umferðar frá röngu = 59-61-65-69-73-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-49-50-52-53-55 cm, prjónið eins og áður yfir fyrstu 23-23-24-24-26-26 lykkjur frá réttu, síðan eru þessar lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli = 36-38-41-45-47-52 lykkjur á öxl. Síðan eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 30-32-35-39-41-46 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 66-70-74-78-82-90 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 25 lykkjur eru eftir, prjónið A.4 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 25 lykkjur eru eftir jafnframt því sem fækkað er um 5-5-7-7-5-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.5 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 61-65-67-71-77-83 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 62-66-68-72-78-84 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.6 yfir lykkjur í A.5. Endurtakið A.6. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 3-5-3-3-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu = 59-61-65-69-73-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-49-50-52-53-55 cm, prjónið næstu umferð frá réttu eins og áður þar til 23-23-24-24-26-26 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 23-23-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli = 36-38-41-45-47-52 lykkjur á öxl. Síðan eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 30-32-35-39-41-46 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-6-8-6-8-4 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 8-10-9-7-11-10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 16-17-18-19-20-20 sinnum = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-48-48-47-45-43 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loknu máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 50-50-49-48-47-46 cm þ.e.a.s. það er klauf ca 1-2-1-1-2-3 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp kant í kringum hálsmál frá réttu á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino þannig: Setjið 23-23-24-24-26-26 lykkjur frá þræði á hægra framstykki á hringprjón og prjónið þær slétt, prjónið upp ca 54-64 lykkjur innan við 1 kantlykkju að lykkjum á þræði á vinstra framstykki og setjið 23-23-24-24-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón og prjónið þær slétt = ca 100-116 lykkjur. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #celticharmonycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.