Donna skrifaði:
Straight to my Heart
20.01.2023 - 19:31
María Del Carmen skrifaði:
Cielo
20.01.2023 - 16:09
Janne skrifaði:
Korrektor
19.01.2023 - 22:02
May-Britt skrifaði:
From heaven sent og Color from the sky
19.01.2023 - 19:23
From Heaven Sent skrifaði:
Color from the sky
19.01.2023 - 19:22
Julie skrifaði:
Ocean's heart
19.01.2023 - 01:10
Sheena skrifaði:
Beach glass
18.01.2023 - 03:10
Laetitia skrifaði:
Ocean breeze
18.01.2023 - 00:01
Elina skrifaði:
Ihana Kaunis väri.
17.01.2023 - 22:27
Olga skrifaði:
Rich decoration design, but not overwhelming.
17.01.2023 - 21:30
Celtic Harmony#celticharmonysweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-17 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 112-120-124-132-144-160 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merion Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 9-9-9-11-9-13 lykkjur jafnt yfir = 103-111-115-121-135-147 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 3-5-3-2-5-6 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á 2 næstu umferðum = 97-101-109-117-125-135 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-56-58-60 cm, fellið af miðju 35-35-37-37-41-41 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 30-32-35-39-41-46 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 123-131-139-147-155-171 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merion Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 28-32-36-40-44-52 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1 * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 28-32-36-40-44-52 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 30-34-38-42-46-54 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 5-5-7-7-5-7 lykkjur jafnt yfir þessar (= 25-29-31-35-41-47 lykkjur), A.2, 30-34-38-42-46-54 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 5-5-7-7-5-7 lykkjur jafnt yfir þessar (= 25-29-31-35-41-47 lykkjur), 1 lykkja í garðaprjóni = 113-121-125-133-145-157 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 115-123-127-135-147-159 lykkjur í umferð og haldið áfram með A.3 yfir lykkjur í A.2. Endurtakið A.3. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 3-5-3-2-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 109-113-121-131-137-147 lykkjur. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 47-48-49-51-52-54 cm. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað í A.3 þannig: Prjónið yfir sléttar lykkjur eins og áður, prjónið allar 2 lykkjur brugðið 2 lykkjur brugðið saman og fækkið um 3 lykkjur yfir kaðla með 6 lykkjum, prjónið yfir sléttar lykkjur eins og áður. Í stærð XL er að auki fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir miðju 21 lykkjur = 97-101-109-117-125-135 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru settar miðju 29-29-31-31-35-35 lykkjur á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 30-32-35-39-41-46 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-6-8-6-8-4 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 8-10-9-7-11-10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 16-17-18-19-20-20 sinnum = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-48-48-47-45-43 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 50-50-49-48-47-46 cm þ.e.a.s. það er klauf ca 1-2-1-1-2-3 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju frá réttu á stuttan hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino þannig: Byrjið mitt að aftan. Prjónið upp ca 100 til 116 lykkjur, ásamt lykkjum af þræði (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #celticharmonysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 40 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.