DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Celtic Harmony

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 241-17
DROPS Design: Mynstur me-257
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-700-750-800 g litur 15, ljós grágrænn

Eða notið:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-700-750-800 g litur 29, sægrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 112-120-124-132-144-160 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merion Extra Fine eða DROPS Cotton Merino.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 9-9-9-11-9-13 lykkjur jafnt yfir = 103-111-115-121-135-147 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 3-5-3-2-5-6 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á 2 næstu umferðum = 97-101-109-117-125-135 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 51-53-55-56-58-60 cm, fellið af miðju 35-35-37-37-41-41 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 30-32-35-39-41-46 lykkjur eftir á öxl.
Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 123-131-139-147-155-171 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merion Extra Fine eða DROPS Cotton Merino.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 28-32-36-40-44-52 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1 * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 28-32-36-40-44-52 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 30-34-38-42-46-54 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 5-5-7-7-5-7 lykkjur jafnt yfir þessar (= 25-29-31-35-41-47 lykkjur), A.2, 30-34-38-42-46-54 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 5-5-7-7-5-7 lykkjur jafnt yfir þessar (= 25-29-31-35-41-47 lykkjur), 1 lykkja í garðaprjóni = 113-121-125-133-145-157 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 115-123-127-135-147-159 lykkjur í umferð og haldið áfram með A.3 yfir lykkjur í A.2. Endurtakið A.3.

Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 3-5-3-2-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 109-113-121-131-137-147 lykkjur.
Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 47-48-49-51-52-54 cm.

Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað í A.3 þannig: Prjónið yfir sléttar lykkjur eins og áður, prjónið allar 2 lykkjur brugðið 2 lykkjur brugðið saman og fækkið um 3 lykkjur yfir kaðla með 6 lykkjum, prjónið yfir sléttar lykkjur eins og áður. Í stærð XL er að auki fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir miðju 21 lykkjur = 97-101-109-117-125-135 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru settar miðju 29-29-31-31-35-35 lykkjur á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 30-32-35-39-41-46 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino.
Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-6-8-6-8-4 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 8-10-9-7-11-10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 16-17-18-19-20-20 sinnum = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-48-48-47-45-43 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 50-50-49-48-47-46 cm þ.e.a.s. það er klauf ca 1-2-1-1-2-3 cm efst á ermi. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju frá réttu á stuttan hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino þannig:
Byrjið mitt að aftan. Prjónið upp ca 100 til 116 lykkjur, ásamt lykkjum af þræði (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4).
Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt í næstu lykkju, steypið lyftu lykkjunni yfir þessar 2 lykkjur
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Ewa wrote:

Warkocz jest 2 x rzadszy w schemacie A 3 niż na zdjęciu swetra. Niestety zauważyłam to po trzecim warkoczu schematu i nie chcę pruć tyle robótki. Wydaje mi się, że ta wersja na zdjęciu lepiej wygląda.

17.10.2023 - 08:14

country flag Jeannine Van Israel wrote:

Graag nog 1 bol drops muskatI kleur 03 Dyelot 141

15.08.2023 - 12:17

DROPS Design answered:

Dag Jeannine,

Het bestellen van garens gaat via een van de verkooppunten die onze artikelen verkopen; wij verkopen geen garens via de site. Via deze link vind je een lijst met verkooppunten.

16.08.2023 - 19:25

country flag Claudia Wächtler wrote:

Hallo Noch eine kurze Frage.Sind die Rückreihen beim Diagramm sichtbar?

23.04.2023 - 20:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wächtler, ja, alle Reihen (= die Hin- sowie die Rückreihen) sind im Diagramm gezeichnet. Viel Spaß beim stricken!

24.04.2023 - 10:18

country flag Claudia wrote:

Also sind die Hinreihen sichtbar beim Diagramm

17.04.2023 - 15:47

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, ja genau, die Hinreihen (= 1. , 3., 5. usw Reihe) lesen Sie rechts nach links und die Rückreihen (= 2., 4. 6. usw) lesen Sie links nach rechts. Viel Spaß beim stricken!

17.04.2023 - 15:59

country flag Claudia wrote:

Hallo Noch mal Vielen Dank für Ihre Hilfe.Hab eine Frage noch.Die Diagramme wie ich gelesen habe werden Hin und Rückreihe angezeigt?Bin mir nicht ganz sicher. Claudia

16.04.2023 - 20:55

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, ja genau, Hinreihen lesen Sie rechts nach links und Rückreihen lesen Sie links nach rechts. Viel Spaß beim stricken!

17.04.2023 - 09:59

country flag Claudia wrote:

Hallo Danke für die Antwort.Ich stricke Größe S

12.04.2023 - 15:44

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, so stricken Sie in S: 1 M kraus rechts, * 2 M rechts, 2 M links *, von *-* über die ersten 28 M, 2 M rechts, A.1 (= 61 M - siehe Diagram), * 2 M rechts, 2 M links *, von *-* über die nächsten 28 M, 2 M rechts und 1 M kraus rechts = 1+28+2+61+28+2+1=123 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

12.04.2023 - 16:13

country flag Claudia wrote:

Hallo Wäre es möglich mir bitte den Bund vom Vorderteil genau zu erklären.Ist etwas viel durcheinander geschrieben.Ich habe am Ende eine Masche über.Am besten ich mache den Bund genau wie am Rückenteil 2Maschen links ,2Maschen rechts also keinen A1 Stricken. Liebe Grüße Claudia

11.04.2023 - 23:16

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, das Bündchen beim Vorderteil wird wegen LochMuster und Zopf unterschiedlich sein, so stricken Sie A.1 in der Mitte und Bündchen 2 M re, 2 M links beidseitig. Welche Größe stricken Sie?

12.04.2023 - 08:29

country flag Ulla wrote:

Er det muligt at strikke trøjen på rundpind op til ærmegabet for ikke at skulle montere så meget.

04.04.2023 - 14:45

DROPS Design answered:

Hej Ulla, ja det bestemmer du selv :)

13.04.2023 - 12:09

country flag Caroline wrote:

Why is a smaller than A at the join of the sleeve to the body. Won’t the seam pucker?

25.03.2023 - 17:28

DROPS Design answered:

Dear Caroline, if you look at the schematics with the measurement numbers, you will see that the sleeves are not really narrower than the armhole, we drew it like that in the assembly drawing to illustrate what goes where and it would be more visible what seams should be sewn together. Happy Crafting!

26.03.2023 - 10:12

country flag DANIELA wrote:

Ma posso sempre lavorare anche con i ferri circolari?

19.03.2023 - 15:04

DROPS Design answered:

Buonasera Daniela, può utilizzare i ferri circolari anche lavorando in piano. Buon lavoro!

19.03.2023 - 19:03