Natalia Galán skrifaði:
Sobre las mangas, se levantan los puntos una vez unidos solo los hombros en todo el agujero donde va la manga no? Y se tejen unos cm de ida y vuelta y luego en circular etc...al final en la parte de arriba quedarán esos cm sin cerrar no? Los de antes de empezar a tejer en circular... Se unen los dos extremos sin más y se baja ya a cerrar el lateral de la prenda? Gracias.
06.03.2025 - 21:03DROPS Design svaraði:
Hola Natalia, sí, los puntos se levantan en todo el agujero de la manga y se teje de ida y vuelta y luego en circular. La abertura al final no se une con costura para cerrar; se usará para ajustar la costura de la manga a la sisa en el cuerpo.
09.03.2025 - 19:47
Asta Johannsen skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team, wenn ich das Muster A2 stricke, geht es bei mir nicht auf. Ich stricke in Größe S und habe 93 Maschen. Am Ende der Musterreihe müsste ich mit einem Umschlag und der Abnahme enden und habe somit dann keine Randmasche.
22.08.2024 - 10:31DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Johannsen, so stricken Sie A.2: 1 Randmasche, dann die 1 Masche A.2A, dann die 6 Maschen A.2B wiederholen bis 1 Maschen übrig ist (= insgesamt 15 Mal), und 1 Randmasche = 1+1+(6x15)+1= 93 Maschen. Bei dem Lochmusterreihe (7. Reihe) stricken Sie die letzte Masche vom letzten A.2b mit der Randmaschen zusammen (der Umschlag wird davor gestrickt). Viel Spaß beim Stricken!
22.08.2024 - 15:46
Asta Johannsen skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team, ist es richtig dass ich A2A und A2B im Wechsel stricke? Wenn ja, dann muss ich irgendwie einen Fehler haben, denn ich habe nicht ein Loch, sondern 2 Löcher nebeneinander. Mit freundlichen Gruß Asta
26.07.2024 - 14:13DROPS Design svaraði:
Liebe Asta, Sie stricken A.2A nur 1x, dann wiederholen Sie A.2B. Das Komma in der Anleitung trennt jeden Einzelschritt, den man machen muss, aber es ist vielleicht trotzdem etwas missverständlich. Die Anleitung wurde nun an der Stelle etwas eindeutiger formuliert. Viel Spaß beim Weiterstricken!
26.07.2024 - 22:24
Ingrid Walter skrifaði:
Hallo, ist im Muster A.2B und A.2 A ein Fehler? Es geht bei mir nicht auf. Gruss Ingrid Walter
14.09.2023 - 22:56DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Walter, was meinen Sie hier? Mit welcher Reihe in A.2A/A.2B haben Sie Probleme?
15.09.2023 - 08:25
Marita skrifaði:
Hvorfor strikkes bak-og forstykke hver for seg og ikke sammen paa rundpinne som deles ved ermehull og strikkes hver for seg videre oppover? Mye pener uten sammensying i sidene.
10.05.2023 - 15:29DROPS Design svaraði:
Hej Marita, det må du gerne gøre :)
10.05.2023 - 15:45
Christine ADAM skrifaði:
Bonjour, Régulièrement, au cours de vos explications, vous notez "ne pas oublier astuce tricot 1 ou astuce tricot 2". Mais à la ligne 16 (explications dos) vous ne notez pas s'il s'agit de l'astuce 1 ou 2. Vous notez juste "ne pas oublier astuce tricot". Il s'agit de laquelle ? 1 ou 2 ? Merci de votre réponse ! Christine
23.02.2023 - 18:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Adam, c'est l'astuce tricot-1 qui se réfère à A.2: on diminue ou on augmente à l'avant-dernier rang de A.2, avant de tricoter A.3. Bon tricot!
24.02.2023 - 09:55
AA skrifaði:
Hello, the stated knitting tension is "17 stitches in width and 22 rows vertically in stocking stitch = 10 x 10 cm" but the needle size is not specified. I guess we should use the 5mm needles for the gauge, but could you confirm? Thanks!
22.02.2023 - 13:08DROPS Design svaraði:
Dear AA, tension should be worked with larger needle, ie with needle size 5 mm. Happy knitting!
22.02.2023 - 13:32
Mia Germ skrifaði:
Is echt mijn stijl en mooie kleur
21.02.2023 - 13:20
Flint skrifaði:
Fieldside Stroll
20.01.2023 - 10:25
Mossy Mingle Sweater#mossyminglesweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri og áferðamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 241-26 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR-1: Til að mynstur A.3 gangi jafnt upp er prjónað þannig: STÆRÐ XS, M og XL: Fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í næst síðustu umferð í mynstri A.2/A.4 áður en mynstur A.3 byrjar. STÆRÐ S, L og XXL: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í næst síðustu umferð í mynstri A.2/A.4 áður en mynstur A.3 byrjar. LEIÐBEININGAR-2: Til að mynstrið gangi jafnt upp er prjónað þannig: STÆRÐ XS, M og XL: Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í fyrstu umferð í mynstri A.2/A.4 á eftir mynstri A.3. STÆRÐ S, L og XXL: Fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í fyrstu umferð í mynstri A.2/A.4 á eftir mynstri A.3. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað neðan frá og upp, fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveg. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 104-108-116-124-132-140 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17-15-17-19-21-23 lykkjur jafnt yfir = 87-93-99-105-111-117 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-7-7-8-8-8 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, A.1A, prjónið A.1B þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.2 þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, A.2A, prjónið A.2B þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – sjá LEIÐBEININGAR-1 = 86-94-98-106-110-118 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.3 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 24-24-25-26-27-28 cm (endið eftir umferð frá röngu). Nú er A.2 prjónað einu sinni til viðbótar alveg eins – sjá LEIÐBEININGAR-2 = 87-93-99-105-111-117 lykkjur. Prjónið síðan A.3 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir LEIÐBEININGAR-1. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-37-38-39-40-41 cm, fellið af 3-3-6-3-6-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 81-87-87-99-99-99 lykkjur. Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist ca 38-39-41-42-44-46 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, A.4A yfir næstu 4-1-1-1-1-1 lykkjur. Prjónið A.4B þar til 4-1-1-1-1-1 lykkjur eru eftir, A.4A yfir næstu 3-0-0-0-0-0 lykkjur og endið með 1 lykkju í garðaprjóni – munið eftir LEIÐBEININGAR-1 = 80-88-86-100-98-100 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.3 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið að loknu máli. Jafnframt þegar stykkið mælist 53-54-56-58-60-62 cm, setjið miðju 20-20-20-22-22-22 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli eru felldar af 3 lykkjur = 27-31-30-36-35-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 55-56-58-60-62-64 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. Prjóni hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 48-49-51-52-54-56 cm = 80-88-86-100-98-100 lykkjur. Nú eru miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 27-31-30-36-35-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan hvora öxl áfram eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 55-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. ERMI: Notið hringprjón 5 og prjónið upp frá réttu 61-65-68-71-75-78 lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – héðan er nú ermin mæld. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 2-2-3½-2-4-5 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 6-6-8-6-8-8 cm frá prjónamerki mitt á ermi, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-3-3-2½-2½ cm millibili alls 8-9-10-11-12-13 sinnum = 45-47-48-49-51-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-39-40-38-39-40 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-9-8-11-13-12 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-64-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laus. Ermin mælist ca 47-47-48-46-47-48 cm frá prjónamerki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju – byrjið við úrtöku fyrir handveg og saumið niður að stroffi þannig að það verði klauf í hliðum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 64 til 68 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði) á stuttan hringprjón 4 með DROPS Paris. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mossyminglesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.