DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Scottish Thistle Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og ísaumuðum ermum. Stærð XS - XXL.

DROPS 241-6
DROPS Design: Mynstur z-985
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ALPACA Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-400-450-450 litur 9030, pistasíuís
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-175 g litur 47, pistasíuís

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við brugðna lykkju þannig: Prjónið fram að brugðnu lykkjunni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið brugðna lykkju eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur (A.1).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp þar til stroffið hefur verið prjónað til loka, síðan er stykkið sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loknu máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að ermakúpu, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 110-118-126-138-154-166 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm – endið eftir umferð frá röngu.
Geymið stykkið og prjónið bakstykki.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á framstykki og prjónið alveg eins og á framstykki þar til stroffið mælist 12 cm – endið eftir umferð frá röngu.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið stykkið saman þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá bakstykki og fækkið jafnframt um 26-28-30-36-40-46 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur frá framstykki og fækkið jafnframt um 26-28-30-36-40-46 lykkjur jafnt yfir = 168-180-192-204-228-240 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 84-90-96-102-114-120 lykkjur (í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum fyrir handvegi. Prjónið A.1 hringinn.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið 5-5-4-3-8-7 lykkjur á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 10-10-8-6-16-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til 5-5-4-3-8-7 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af 10-10-8-6-16-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður út umferðina. Framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 74-80-88-96-98-106 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 47-49-50-52-53-55 cm, setjið miðju 12-14-16-18-18-20 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið lykkjur af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 25-27-30-33-34-37 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
= 74-80-88-96-98-106 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið mynstur og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið alveg eins og á framstykki.
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 22-24-26-28-28-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 1 sinni = 25-27-30-33-34-37 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 60-64-64-68-68-72 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 12 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-16-14-17-15-18 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-51-53-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð, þessi lykkja er síðar prjónuð brugðið. Prjónamerkið merkir mitt undir ermi og er notað þegar auka á út. Prjónið síðan A.1 hringinn (mynstri kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi).
Þegar stykkið mælist 14-14-14-14-14-15 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-4-3½-3-2½-2 cm millibili alls 8-8-9-10-11-12 sinnum = 62-64-68-71-75-78 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 49-48-48-47-44-43 cm.
Í næstu umferð er brugðnar lykkjan með prjónamerki felld af = 61-63-67-70-74-77 lykkjur í umferð. Haldið áfram fram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 52-51-50-49-49-48 cm frá uppfitjunarkanti, þ.e.a.s. það er klauf 3-3-2-2-5-5 cm efst á ermi. Fellið af og prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið stuttan hringprjón 4, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 72 til 92 lykkjur í kringum hálsmálið (meðtaldar lykkjur af þræði). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið eina umferð brugðið og haldið áfram með (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm til viðbótar. Kanturinn í hálsmáli mælist nú ca 10 cm og fellt er af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að kanturinn í hálsmáli dragist ekki saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Lyne wrote:

Ma question sur est: pour ce qui est du diagramme je me demande à s avoir si je comprends bien, j ai 180 donc devant et derrière 90 m chacun a1 je lis le patron de droite à gauche et de bas en haut et ce tricote en rond comme suit 6 m end,1 m end,4 m env,1 m end 4 fois et 6 m end, 2 m env,2 m end,2 m env, 4 fois et 6 m end jusqu’à terminer mes 180 m? Si c est cela mon dessein ne fais pas des petits carreaux comme le patron ou bien je ne comprends pas le diagramme merci. De m aider

02.04.2024 - 20:44

DROPS Design answered:

Bonjour Lyne, on lit le diagramme de bas en haut et de droite à gauche, ainsi le 1er rang se tricote à l'endroit, puis les rangs 2 à 5 se tricotent ainsi: *1 m end, 4 m env, 1 m end*, répétez de *à*; le rang 6 se tricote à l'endroit, puis les rangs 7 à 10 se tricotent ainsi: *2 m env, 2 m end, 2 m env*, répétez de *à*. Répétez ces 10 rangs ainsi tant que vous tricotez sur l'endroit. Bon tricot!

03.04.2024 - 08:33

country flag Elaine Wilson wrote:

I cant find hiw much yarn c I need.

12.03.2024 - 11:54

country flag Corina Avram wrote:

Hello Drops Team! I am wondering if it would be a good idea to knit this sweater in 2 strands Flora without the textured pattern, just like a basic jumper. Is it recommended for a good, not too-heavy jumper?

31.01.2024 - 11:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs Avram, sure, you can also find basic jumpers without textured pattern with the same tension as for 2 strands Flora here. Happy knitting!

01.02.2024 - 07:37

country flag Judith wrote:

Dankjewel voor de snelle reactie, maar mijn vraag is nog niet beantwoord: de averechtse naald is de vouwlijn van het halsboord. Ik brei al 5 cm aan de goede kant met een rondbreinaald. Ik veronderstel dat het averecht aan de goede kant moet zijn?

09.12.2023 - 09:57

DROPS Design answered:

Dag Judith,

Oh sorry, ik dacht dat je bij de boord aan de onderkant was. Inderdaad een beetje raar om averecht op de verkeerde kant te breien bij de hals; dit moet inderdaad averecht op de goede kant zijn om een vouwrand te maken.

10.12.2023 - 16:23

country flag Melissa wrote:

Bonjour, merci d'avance si vous pouvez me confirmer s'il s'agit bien d'une diminution car je vois le nombre de maille a augmenté par ex pour xs est passé de 110 à 160 comme mentionné dans les instructions: tricoter les mailles du dos à l'endroit en diminuant en même temps 26-28-30-36-40-46 mailles à intervalles réguliers, tricoter les mailles du devant à l'endroit en diminuant en même temps 26-28-30-36-40-46 mailles à intervalles réguliers = 168-180-192-204-228-240 mailles.

08.12.2023 - 23:46

DROPS Design answered:

Bonjour Melissa, lorsque vous tricotez le 1er tour du devant et du dos ensemble, vous allez diminuer 52 mailles au total: tricotez les mailles du dos en diminuant 26 mailles (il reste 84 mailles), et tricotez les mailles du devant en diminuant 26 mailles (il reste 84 mailles) vous avez désormais 168 mailles sur l'aiguille. Bon tricot!

11.12.2023 - 07:40

country flag Melissa wrote:

Bonjour, C'est mon premier tricot. Je vous remercie pour les infos. J'ai besoin d'une confirmation pour le montage du devant/dos - s'agit it d'une diminution or augmentation: Tricoter les mailles du dos à l'endroit en diminuant en même temps 26-28-30-36-40-46 mailles à intervalles réguliers, tricoter les mailles du devant à l'endroit en diminuant en même temps 26-28-30-36-40-46 mailles à intervalles réguliers = 168-180-192-204-228-240 mailles. Vous voulez di

08.12.2023 - 23:43

country flag Judith wrote:

Bij het boord staat 'een naald averecht aan de verkeerde kant', maar bij het rondbeien brei ik niet aan de verkeerde kant. Moet het recht aan de goede kant zijn? Of toch averecht aan de goede kant?

08.12.2023 - 16:36

DROPS Design answered:

Dag Judith,

Het voorpand en achterpand worden eerst apart heen en weer gebreid en dan samengevoegd om verder in de rondte te breien.

09.12.2023 - 07:02

country flag Ellen wrote:

Stämmer det verkligen att man ska maska av för halsen på bakstycket? De ska inte sättas på en tråd som på framstycket?

10.10.2023 - 20:13

DROPS Design answered:

Hej Eller, ja vi maskar ofta av för halsen på bakstycket för att hålla ihop mitt bak :)

17.10.2023 - 13:09

country flag Olivia wrote:

Hej :) Super opskrift - Jeg er en ny strikker og forstår ikke helt denne del i “FORSTYKKE”: “ Luk 2 masker af 2 gange og 1 maske 2 gange = 25-27-30-33-34-37 masker tilbage på skulderen.” Håber I kan hjælpe :) Mvh. Olivia

02.10.2023 - 11:38

DROPS Design answered:

Hej Olivia, du lukker først 2 masker af, så 2 masker af igen, så 1 maske og sidst 1 maske igen, da har du 25 masker tilbage hvis du strikker den mindste størrelse :)

11.10.2023 - 07:57

country flag Mai wrote:

Jeg vil gerne lave denne model i garnet Alpaca nr. 7139, men ved ikke hvilken farve jeg skal vælge af Kid Silk garnet, så det passer bedst muligt sammen farvemæssigt.

22.09.2023 - 14:25

DROPS Design answered:

Hej Mai, Kid-Silken passer fint med Alpaca selv om nuancen ikke er 100% samme. Vil du have den lidt mørkere skal du vælge Kid-Silk 37. Du kan altid spørge i butikken hvor de kan se begge garner :)

26.09.2023 - 15:37