Scottish Thistle Cardigan |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 241-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH! Fyrsta umferð í A.1 er prjónuð frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). 1 HNAPPAGAT = prjónið fjórðu og fimmtu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 11, 20 og 29 cm S: 11, 17, 24 og 30 cm M: 10, 17, 24 og 31 cm L: 11, 18, 25 og 32 cm XL: 11, 19, 26 og 33 cm XXL: 11, 19, 27 og 34 cm ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju innan við 8 lykkjur garðaprjón í kanti að framan eins og útskýrt er að neðan. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 8 LYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 8 LYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 8 lykkjum í garðaprjóni og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðan 8 lykkjur í garðaprjóni eins og áður. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp þar til stroffið hefur verið prjónað til loka, síðan er stykkið sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkin prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig að loknu máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. BAKSTYKKI: Fitjið upp 110-118-126-138-154-166 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff þannig: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 26-30-30-36-40-46 lykkjur jafnt yfir = 84-88-96-102-114-120 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið framstykkin. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-68-72-76-84-88 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 8 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 12 cm, JAFNFRAMT er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-17-16-17-19-20 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 47-51-56-59-65-68 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-68-72-76-84-88 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 8 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-17-16-17-19-20 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 47-51-56-59-65-68 lykkjur. Setjið nú öll stykkin inn á hringprjón 5 og prjónið fram og til baka yfir framstykkin og bakstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-190-208-220-244-256 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir 47-51-56-59-65-68 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Það eru 84-88-96-102-114-120 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar fækka á lykkjum fyrir handvegi. Fyrsta umferðin er frá röngu og er prjónuð þannig: 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir, endið með 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur A.1 og 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, prjónið stuttar umferðir yfir kanta að framan eins og útskýrt er að neðan. JAFNFRAMT byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum fyrir handvegi. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Til að koma í veg fyrir að kanturinn að framan “sveigist” þar sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar, prjónið stuttar umferðir 3 sinnum yfir báða kantana að framan. Þetta er gert samtímis sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar eins og útskýrt er að neðan. * Byrjið frá réttu, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 8 lykkjur í garðaprjóni í kanti að framan (aðrar lykkjur eru ekki prjónaðar, en munið eftir að herða á þræði þegar snúið er við mitt í stykki), prjónið 1 umferð frá réttu yfir allar lykkjur eins og áður, snúið stykkinu, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 8 lykkjur í garðaprjóni í kanti að framan í hinni hliðinni á stykkinu, prjónið 1 umferð frá röngu yfir allar lykkjur eins og áður *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. JAFNFRAMT þegar prjónað er frá réttu yfir allar lykkjur í annað skipti, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli innan við 8 lykkjur í garðaprjóni í köntum að framan – úrtakan er alltaf í umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð alls 7 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 0-2-4-4-5-6 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af fyrir handvegi frá röngu þannig: Prjónið eins og áður þar til 3-3-3-3-8-8 lykkjur eru eftir á undan fyrra prjónamerkinu, fellið af 6-6-6-6-16-16 lykkjur fyrir handvegi (= 3-3-3-3-8-8 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið eins og áður yfir bakstykkið þar til 3-3-3-3-8-8 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, fellið af 6-6-6-6-16-16 lykkjur fyrir handvegi (= 3-3-3-3-8-8 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónið eins og áður út umferðina. Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður með 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg – úrtaka fyrir v-hálsmáli heldur áfram eins og útskýrt er að ofan. Eftir allar úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 37-39-42-45-45-47 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Í næstu umferð frá röngu, fellið af fyrstu 29-31-34-37-37-39 lykkjur fyrir öxl = 8 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni fyrir kant í hálsmáli. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir þessar 8 lykkjur þar til kantur í hálsmáli mælist ca 7-7-8-8-9-9 cm frá öxl. Kantur í hálsmáli er dreginn smá fram að miðju að aftan þegar hann er saumaður við hálsmál í hnakka. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan – úrtaka fyrir v-hálsmáli heldur áfram eins og útskýrt er að ofan. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 37-39-42-45-45-47 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Í næstu umferð frá réttu, fellið af fyrstu 29-31-34-37-37-39 lykkjur fyrir öxl = 8 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni fyrir kant í hálsmáli. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir þessar 8 lykkjur þar til kantur í hálsmáli mælist ca 7-7-8-8-9-9 cm frá öxl – stillið af eftir máli eftir kanti í hálsmáli á hægra framstykki. Fellið af. BAKSTYKKI: = 78-82-90-96-98-104 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 18-18-20-20-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 29-31-34-37-37-39 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-72 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 12 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-16-14-17-15-18 lykkjur jafnt yfir = 46-48-50-51-53-54 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar auka á út. Að auki er sett 1 prjónamerki á milli 2 miðju lykkja á ermi. Teljið út frá prjónamerki hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi. Prjónamerkið mitt á ermi á að passa með miðju á A.1. Prjónið A.1 hringinn. Þegar stykkið mælist 14-14-14-14-14-15 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4½-4-3½-2½-2½ cm millibili alls 8-8-9-10-11-12 sinnum = 62-64-68-71-75-78 lykkjur. Þegar ermin mælist 50-49-48-47-44-43 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá prjónamerki mitt undir ermi) á hringprjón að loknu máli. Fellið af þegar ermin mælist 52-51-50-49-49-48 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið saman kant í hálsi mitt að aftan og saumið kant í hálsi við hálsmál að aftan. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Stella wrote:
Goodevening. I have confused with this paragraphe in the sleeve. When the sleeve measures 50-49-48-47-44-43 cm, work the sleeve cap back and forth (from the thread under the sleeve). Means knitting all the stitches back and forth until 50cm (medium) ;
26.03.2024 - 12:27DROPS Design answered:
Dear Stella, it means you should continue with the pattern, but knit it back and forth, so you can form the sleeve cap. Happy Knitting!
26.03.2024 - 22:07Karine wrote:
Bonjour Est il possible de le faire en un seul bloc, (dos, devant droit et devant gauche), dans ce cas la suffit-il d'additionner tout simplement toutes les mailles ? Merci
07.06.2023 - 10:40DROPS Design answered:
Bonjour Karine, en fait on tricote d'abord chaque partie (dos et chaque devant) séparément à cause des fentes des côtés, et ensuite on les tricote ensemble jusqu'aux emmanchures. Si vous ne voulez pas les fentes des côtés , vous devrez ajuster le nombre de mailles de chaque partie avant de les assembler. Bon tricot!
07.06.2023 - 14:35Claudia wrote:
Buongiorno, sto facendo questo modello per mia figlia. Taglia m.Sono alle maniche, a 48 cm e sto lavorando con i circolari magic loop . Cosa vuol dire che devo procedere in piano per arrotondamento delle maniche.non ho proprio idea di come fare gli ultimi due centimetri. Grazie
18.03.2023 - 11:02DROPS Design answered:
Buongiorno Claudia, in quel punto le maniche vanno lavorate in piano, non in tondo. Buon lavoro!
18.03.2023 - 15:02Inge wrote:
Hallo,ich stricke die Jacke in Größe M. Oben beim Hinweis zu den Knopflöchern steht für M: bei 10, 17, 24...cm arbeiten. In der weiteren Beschreibung erfolgt das erste Knopfloch aber nach der Zusammenführung der Teile (also nach einem Bündchen von 12 cm). So sieht es auch auf dem Foto aus. Liebe Grüße!
07.03.2023 - 21:06DROPS Design answered:
Liebe Inge, das erste Knopfloch muss nach 10 cm in M gestrickt werden, dh gleichzeitig wenn man das Rippenmuster strickt, das Rippenmuster stricken Sie bis die Arbeit aber 12 cm misst, dh 2 cm nach dem 1. Knopfloch. Viel Spaß beim stricken!
08.03.2023 - 09:35Tina Myhlenfordth Laursen wrote:
Er der ikke en fejl i opskriften ? Ved ryggen - str. XL - står der slå 154 masker op, man skal tage 40 masker UD = 114 masker... så enten er der skrevet forkert og man skal i stedet tage IND eller også skal man enden med 194 masker ? ELLER jeg har helt misforstået et eller andet ? :-)
07.03.2023 - 12:53DROPS Design answered:
Hej Tina. Ja det har dessvärre blivit ett fel där , det ska stå "tage ind". Tack för info, detta är nu rättat. Mvh DROPS Design
07.03.2023 - 13:47Jenn wrote:
Why did you stop at a XXL and not at a XXXL ?
09.02.2023 - 15:48DROPS Design answered:
Dear Jenn, we are trying to have size for everyone, so some of our patterns are from XS to XXL and some other from S to XXXL - you will find all our jackets in XXXL here. Happy knitting!
10.02.2023 - 14:39Véronique wrote:
Belle couleur mais largeur des manches pas à mon goût .
18.01.2023 - 19:51Noelle wrote:
Weaving away
18.01.2023 - 05:31