Anette Brandt Schmidt skrifaði:
Sunshine
22.01.2023 - 11:53
Melanie skrifaði:
Daisy
21.01.2023 - 11:37
Elin skrifaði:
Sunset dream
19.01.2023 - 20:02
Domi skrifaði:
Kogel Mogel
18.01.2023 - 12:51
Ninette Simmelhack skrifaði:
Dewy sunrise
18.01.2023 - 09:21
Aneta Kubiak skrifaði:
Lollipop
17.01.2023 - 22:00
Deb Hobson skrifaði:
Lemon sorbet
17.01.2023 - 15:47
Free to Be#freetobesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-17 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt og endið umferð með 1 lykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvort fyrir sig. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka á hringprjóna. Frágangur á stykki er eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 121-129-139-151-165-181 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað fram og til baka í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan, í 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 37-37-41-43-47-53 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur) = 84-92-98-108-118-128 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 1-2-2-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 82-88-94-100-108-116 lykkjur. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 22-24-26-26-28-30 lykkjur af fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 29-31-33-36-39-42 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm = 84-92-98-108-118-128 lykkjur. Nú byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 38-42-45-50-55-60 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni, snúið. Setjið síðustu lykkjurnar á þráð án þess að prjóna þær (hægri öxl). Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. VINSTRI ÖXL (framstykki): = 41-45-48-53-58-63 lykkjur. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram, það á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handvegi. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í lok umferðar frá réttu – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 1½ cm millibili alls 12-13-14-14-15-16 sinnum (fyrsta úrtaka er gerð þegar framstykkið skiptist). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 1-2-2-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka eru 29-31-33-36-39-42 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRI ÖXL (framstykki): Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 42-46-49-54-59-64 lykkjur. Lestuð allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram, það á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handvegi! Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í byrjun umferðar frá réttu – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 1½ cm millibili alls 12-13-14-14-15-16 sinnum. ATH: Fyrsta úrtaka er gerð í fyrstu umferð sem er prjónuð. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 1-2-2-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu. Þegar öll úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka 29-31-33-36-39-42 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Fitjið upp 72-74-76-80-82-84 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 12 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 20-20-20-22-22-22 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 13 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6-5-4½-4½-3½-2½ cm millibili alls 6-7-8-8-9-10 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-48-48-46-43-41 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá prjónamerki mitt undir ermi) á hringprjón að loknu máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist 50-49-49-48-46-45 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-1-1-2-3-4 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður að stroffi innan við 1 kantlykkju (= 10 cm klauf í hvorri hlið). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu við aðra öxlina. Prjónið upp ca 42-44-46-48-50-52 lykkjur meðfram annarri hliðinni á v-hálsmáli (prjónið upp 1 lykkju í miðju á hálsmáli), prjónið upp ca 42-44-46-48-50-52 lykkjur meðfram hinni hliðinni á v-hálsmáli og prjónið upp 28-30-32-32-36-38 lykkjur aftan í hnakka. Það eru ca 112-118-124-128-136-142 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið og jafnið e.t.v. lykkjufjöldann út þannig að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn, stillið af að það komi 1 lykkja slétt nákvæmlega við miðju að framan. JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 2 lykkjur mitt að framan þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan sléttu lykkjunni mitt að framan, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Með þessu þá kemur v-hálsmálið til með að leggjast fallega að hálsi og slétta lykkjan kemur til með að verða bein lína mitt að framan. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kantur í hálsmáli mælist ca 4 cm |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #freetobesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.