DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Nord yarn
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 880.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Bluebell Twist Cardigan

Prjónuð stór / oversized peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, klauf í hliðum, skáhallandi öxl og v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 239-23

#bluebelltwistcardigan

DROPS Design: Mynstur no-066
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL – XXL

GARN:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 16, gallabuxnablár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-175-175-200 g litur 08, ljós gallabuxnablár

DROPS TALA NR 630: 5 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
19 lykkjur á breidd með kaðlamynstri = 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 880.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12100.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hálsmál á framstykki):
Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

PRJÓNAÐ SAMAN:
FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt.
FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.

SLÉTTPRJÓN:
Þegar prjónað er frá röngu eru prjónaðar brugðnar lykkjur og þegar prjónað er frá réttu eru prjónaðar sléttar lykkjur.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið A.3 eins og áður, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
XS: 4, 13, 19, 25 og 31 cm
S: 4, 13, 19, 25 og 31 cm
M: 4, 13, 19, 25 og 31 cm
L: 4, 11, 18, 25 og 32 cm
XL: 5, 12, 19, 26 og 33 cm
XXL: 6, 13, 20, 27 og 34 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Framstykkin og bakstykkið er fyrst prjónað fram og til baka í stykkjum upp þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka. Stykkin eru sett saman í fram- og bakstykki og er síðan prjónað fram og til baka upp að handvegi. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir framstykkin og bakstykki og hvert stykki er prjónað til loka fram og til baka, hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, hringinn á sokkaprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 98-110-110-122-134-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig:
2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykkin.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-60-60-66-72-72 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Geymið stykkið og prjónið hægra framstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-60-60-66-72-72 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Í næstu umferð frá réttu er prjónað yfir öll stykkin þannig:

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Yfir lykkjur á hægra framstykki er prjónað með byrjun frá réttu þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 47-53-53-59-65-65 lykkjur, prjónið 2 kantlykkjurnar slétt saman (1 lykkja færri), setjið 1 prjónamerki, prjónið síðan bakstykkið þannig: Prjónið 2 kantlykkjur slétt saman (1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 94-106-106-118-130-130 lykkjur, prjónið 2 kantlykkjur slétt saman (1 lykkja færri), setjið 1 prjónamerki, prjónið síðan yfir vinstra framstykki þannig: Prjónið 2 kantlykkjur saman, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 47-53-53-59-65-65 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 202-226-226-250-274-274 lykkjur. Prjónamerkin merkja hliðar á stykkinu og eru notuð síðar þegar stykkið skiptist fyrir framstykki / bakstykki.
Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón í næstu umferð frá röngu.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 16-18-18-20-22-22 sinnum, prjónið A.2 alls 16-18-18-20-22-22 sinnum og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 27-28-28-29-31-32 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Lestu kaflann V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR að neðan, handvegur byrjar áður en v-hásmáli er lokið.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 27-28-28-29-31-32 cm, fækkið um 1 lykkju innan við 7 lykkjur í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilan kaðal eru prjónaðar í sléttprjóni.
Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 9-10-10-10-11-11 sinnum.

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, er gerður handvegur og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki mismunandi eftir stærðum í næstu umferð frá réttu þannig:

STÆRÐ XS-S-M:
Prjónið eins og áður að fyrra prjónamerki (hægra framstykki), setjið síðan þessar lykkjur á þráð/hjálparprjón, prjónið eins og áður fram að næsta prjónamerki (bakstykki), setjið síðan þessar lykkjur á þráð/hjálparprjón og prjónið eins og áður yfir síðustu lykkjur (vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka hvert fyrir sig.

STÆRÐ L-XL-XXL:
Prjónið eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir á undan fyrra prjónamerki (hægra framstykki), setjið síðan þessar lykkjur á þráð/hjálparprjón, fellið af næstu 12 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki (bakstykki) og setjið síðan þessar lykkjur á þráð/hjálparprjón, fellið af næstu 12 lykkjur og prjónið eins og áður yfir síðustu lykkjur (vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka hvert fyrir sig.

ALLAR STÆRÐIR:

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli og mynstri eins og áður. Fitjið upp 1 nýja kantlykkju í lok fyrstu umferðar frá röngu. Kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni að loka máli.
Þegar öll úrtaka fyrir hálsmáli er lokið, eru 43-48-48-48-53-53 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, þ.e.a.s. kaðlarnir hafa nú verið prjónaðir til loka. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, prjónið skáhallandi öxl þannig:

SKÁHALLANDI ÖXL:
Nú eru prjónaðar stuttar umferðir yfir öxl svo að öxlin passi betur, með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig:
Prjónið þar til 6-6-6-6-8-8 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka.
Haldið svona áfram og prjónið yfir 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum. Í síðustu umferð við hálsmál, prjónið þar til 5 kantlykkjur eru eftir að framan, setjið 5 kantlykkjurnar að framan á þráð og fitjið upp 2 nýjar lykkjur á prjóninn = 40-45-45-45-50-50 lykkjur.
Nú er prjónað og fellt af með icord kanti yfir axlalykkjur þannig:
Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjunum.
Snúið stykkinu. Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum af vinstri prjóni með þráðinn frá röngu á stykki (þ.e.a.s. þegar lykkjur eru felldar af frá röngu er þræðinum haldið að þér þegar lykkjurnar eru færðar til baka), passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af.
Setjið til baka 5 kantlykkjur að framan á hringprjón 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka í 8-9-9-9-9-9 cm. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema það er fitjuð upp 1 ný kantlykkja í lok fyrstu umferðar frá réttu.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 96-108-108-108-120-120 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í lok 2 næstu umferða er fitjuð upp 1 ný kantlykkja = 98-110-110-110-122-122 lykkjur.
Kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni að loka máli. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, þ.e.a.s. kaðlarnir hafa nú verið prjónaðir til loka.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 14-16-16-16-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli (42-47-47-47-52-52 lykkjur eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka hvor fyrir sig.
Í næstu umferð frá hálsmáli er prjónað þannig: Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli, prjónið þar til 6-6-6-6-8-8 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Prjónið yfir 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum. Í síðustu umferð við hálsmál eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 40-45-45-45-50-50 lykkjur.
Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur þannig:
Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig:
Snúið stykkinu. Prjónið * 1 lykkju sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl, lyftið til baka 2 lykkjum af vinstri prjóni með þráðinn frá röngu á (þ.e.a.s. þegar lykkjur eru felldar af frá röngu er þræðinum haldið að þér þegar lykkjurnar eru færðar til baka), passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRI ERMI:
Fitjið upp 57-60-60-63-63-66 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund.
Prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt). Þegar stroffið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið mynstur þannig: Prjónið A.3 yfir fyrstu 8 lykkjur, prjónið sléttprjón og fækkið um 4-5-5-6-6-7 lykkjur jafnt yfir þær lykkjur sem eftir eru = 53-55-55-57-57-59 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.3 – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 5½-4-3½-3-2-2 cm millibili alls 6-7-8-9-11-11 sinnum = 65-69-71-75-79-81 lykkjur.

STÆRÐ XS-S-M:
Fellið af þegar ermin mælist 42-40-41 cm.

STÆRÐ L-XL-XXL:
Þegar ermin mælist 38-36-37 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna að loknu máli, þ.e.a.s. skiptið erminni upp mitt í A.3 og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 42-40-41 cm, þ.e.a.s. það er klauf 4 cm efst á ermi. Fellið af.

VINSTRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og hægri ermi, en prjónið A.4 í stað A.3.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana innan við 1 lykkju. Saumið saman kant að framan mitt að aftan og saumið við hálsmál á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

STÆRÐ XS-S-M:
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

STÆRÐ L-XL-XXL:
Saumið ermakúpuna við handveg. Síðan er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.10.2023
Búið er að bæta við upplýsingum um prjónfestu í kaðlamynstri.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu <br />
<br />
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
teikning með máli fyrir stærð XS-S-M = teikning með máli fyrir stærð XS-S-M
teikning með máli fyrir stærð L-XL-XXL = teikning með máli fyrir stærð L-XL-XXL
Diagram for DROPS 239-23
Diagram for DROPS 239-23
Diagram for DROPS 239-23

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluebelltwistcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Marloes skrifaði:

Ik wil dit patroon van DROPS Air maken. Hoeveel bollen heb ik dan nodig?

05.04.2023 - 17:22

DROPS Design svaraði:

Dag Marloes,

Voor een vervangend garen kun je de garenvervanger gebruiken. Hiervan vindt je een link onderaan de materialenlijst bij ieder patroon.

12.04.2023 - 20:38

country flag Hani skrifaði:

Hei, Jeg forstår ikke hva jeg skal gjøre med de 6 maskene som er satt på tråd ved ermehull. Skal jeg felle av 12 masker ved en side og sette 6 masker på tråd ved den andre siden? Hilsen Hani

30.03.2023 - 20:00

country flag Mimi skrifaði:

Wie strickt man die Blende weiter für das Rückenteil?

09.03.2023 - 19:45

DROPS Design svaraði:

Liebe Mimi, die Blende strickt man wie in diesem Video, dh am Ende von jedem Vorderteil strickt man die letzten 5 BlendenMaschen krausrechts bis die Blende ca 8-9 cm (siehe Größe) misst. Dann sind beide zusammengenäht und am Halsauschnnitt genäht. Viel Spaß beim stricken!

10.03.2023 - 09:32

country flag Mimi skrifaði:

Welche Grösse trägt denn das Model im Bild? Ist der Cardigan oversized gestrickt?

20.02.2023 - 23:00

DROPS Design svaraði:

Liebe Mimi, ja genau die Jacke ist oversized gestrickt - unsere Modelle tragen meisens entweder S oder M, aber um Ihre Größe zu finden, messen Sie eine ähnliche Jacke die Sie gerne haben, und vergleichen Sie diese Maßnahmen mit den in der Maßskizze - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

21.02.2023 - 10:08

country flag Sam skrifaði:

For the body pattern, is it A1 A2 18 repeated times for medium size OR A1 repeated 18 times then remainder stitches with A2 18 times?

12.02.2023 - 21:10

DROPS Design svaraði:

Dear Sam, after changing to 5mm needles work the next round as follows: 5 band stitches in garter stitch, work 18 repeats of A.1 (= repeats of 6 stitches) on the round, then work 18 repeats of A.2 (= repeats of 6 stitches) on the same round and finish with 5 band stitches in garter stitch. Happy knitting!

12.02.2023 - 22:37

country flag Sam skrifaði:

When I start A1 and A2 for the body, am I supposed to do only one row of the cable and then 5 further rows will be without the cable stitch? Is there a link to a video for this particular piece?

11.02.2023 - 16:52

DROPS Design svaraði:

Dear Sam, there is no specific video for this piece. You have to work the first 2 rows of the chart as indicated, then work with the cable needle. Work the next 7 rows (5 rows + rows 1 and 2 again) without slipping stitches to the cable needle and, on the next row, use the cable needle again. Work like this until you have worked charts A.1 and A.2 vertically as many times as indicated for your size. Happy knitting!

12.02.2023 - 21:10

country flag Huard skrifaði:

Voyage au bord de mer

19.01.2023 - 23:20

country flag May-Britt skrifaði:

Walking by the sea

19.01.2023 - 19:26

country flag Hamida Yadav skrifaði:

❤️❤️❤️ love it!

19.01.2023 - 18:02

country flag Kari Little skrifaði:

At The Beach

19.01.2023 - 10:34