Bluebell Twist Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð stór / oversized peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, klauf í hliðum, skáhallandi öxl og v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 239-23 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál á framstykki): Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. PRJÓNAÐ SAMAN: FRÁ RÉTTU: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt. FRÁ RÖNGU: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman. SLÉTTPRJÓN: Þegar prjónað er frá röngu eru prjónaðar brugðnar lykkjur og þegar prjónað er frá réttu eru prjónaðar sléttar lykkjur. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið A.3 eins og áður, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 4, 13, 19, 25 og 31 cm S: 4, 13, 19, 25 og 31 cm M: 4, 13, 19, 25 og 31 cm L: 4, 11, 18, 25 og 32 cm XL: 5, 12, 19, 26 og 33 cm XXL: 6, 13, 20, 27 og 34 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Framstykkin og bakstykkið er fyrst prjónað fram og til baka í stykkjum upp þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka. Stykkin eru sett saman í fram- og bakstykki og er síðan prjónað fram og til baka upp að handvegi. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir framstykkin og bakstykki og hvert stykki er prjónað til loka fram og til baka, hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, hringinn á sokkaprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-110-110-122-134-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykkin. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 54-60-60-66-72-72 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur út umferðina. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm. Geymið stykkið og prjónið hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 54-60-60-66-72-72 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Í næstu umferð frá réttu er prjónað yfir öll stykkin þannig: FRAM- OG BAKSTYKKI: Yfir lykkjur á hægra framstykki er prjónað með byrjun frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 47-53-53-59-65-65 lykkjur, prjónið 2 kantlykkjurnar slétt saman (1 lykkja færri), setjið 1 prjónamerki, prjónið síðan bakstykkið þannig: Prjónið 2 kantlykkjur slétt saman (1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 94-106-106-118-130-130 lykkjur, prjónið 2 kantlykkjur slétt saman (1 lykkja færri), setjið 1 prjónamerki, prjónið síðan yfir vinstra framstykki þannig: Prjónið 2 kantlykkjur saman, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 47-53-53-59-65-65 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 202-226-226-250-274-274 lykkjur. Prjónamerkin merkja hliðar á stykkinu og eru notuð síðar þegar stykkið skiptist fyrir framstykki / bakstykki. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón í næstu umferð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið mynstur með byrjun frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 16-18-18-20-22-22 sinnum, prjónið A.2 alls 16-18-18-20-22-22 sinnum og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 31-32-32-33-34-35 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg, lestu því allan kaflann um v-hálsmál og handveg áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 27-28-28-29-31-32 cm, fækkið um 1 lykkju innan við 7 lykkjur í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í heilan kaðal eru prjónaðar í sléttprjóni. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 2 sinnum, síðan í 4. hverri umferð alls 9-10-10-10-11-11 sinnum. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, er gerður handvegur og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki mismunandi eftir stærðum í næstu umferð frá réttu þannig: STÆRÐ XS-S-M: Prjónið eins og áður að fyrra prjónamerki (hægra framstykki), setjið síðan þessar lykkjur á þráð/hjálparprjón, prjónið eins og áður fram að næsta prjónamerki (bakstykki), setjið síðan þessar lykkjur á þráð/hjálparprjón og prjónið eins og áður yfir síðustu lykkjur (vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. STÆRÐ L-XL-XXL: Prjónið eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir á undan fyrra prjónamerki (hægra framstykki), setjið síðan þessar lykkjur á þráð/hjálparprjón, fellið af næstu 12 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki (bakstykki), setjið síðan þessar lykkjur á þráð/hjálparprjón, fellið af næstu 12 lykkjur og prjónið eins og áður yfir síðustu lykkjur (vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. ALLAR STÆRÐIR: VINSTRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli og mynstri eins og áður. Fitjið upp 1 nýja kantlykkju í lok fyrstu umferðar frá röngu. Kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni að loknu máli. Þegar öll úrtaka fyrir hálsmáli er lokið, eru 43-48-48-48-53-53 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, þ.e.a.s. kaðlarnir hafa nú verið prjónaðir til loka. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, prjónið skáhallandi öxl þannig: SKÁHALLANDI ÖXL: Nú eru prjónaðar stuttar umferðir yfir öxl svo að öxlin passi betur, með byrjun í næstu umferð frá hálsmáli þannig: Prjónið þar til 6-6-6-6-8-8 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Haldið svona áfram og prjónið yfir 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsi alls 4 sinnum. Í síðustu umferð við hálsmál, prjónið þar til 5 kantlykkjur eru eftir að framan, setjið 5 kantlykkjurnar að framan á þráð og fitjið upp 2 nýjar lykkjur á prjóninn = 40-45-45-45-50-50 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með icord kanti yfir axlalykkjur þannig: Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjunum. Prjónið * 1 lykkja SLÉTTPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl – sjá PRJÓNAÐ SAMAN, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóni sem voru með þráðinn frá röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af. Setjið til baka 5 kantlykkjur að framan á hringprjón 5 og prjónið garðaprjón fram og til baka í 8-9-9-9-9-9 cm. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema það er fitjuð upp 1 ný kantlykkja í lok fyrstu umferðar frá réttu. BAKSTYKKI: Fitjið upp 96-108-108-108-120-120 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Í lok 2 næstu umferða er fitjuð upp 1 ný kantlykkja = 98-110-110-110-122-122 lykkjur. Kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni að loknu máli. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, prjónið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, þ.e.a.s. kaðlarnir hafa nú verið prjónaðir til loka. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 14-16-16-16-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli (42-47-47-47-52-52 lykkjur eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er prjónað þannig: Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli, prjónið þar til 6-6-6-6-8-8 lykkjur eru eftir, snúið og prjónið til baka. Prjónið yfir 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri í hverri umferð frá hálsmáli og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli alls 4 sinnum. Í síðustu umferð við hálsmál eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 40-45-45-45-50-50 lykkjur. Nú er prjónað og fellt af með kanti yfir axlalykkjur þannig: Lykkjur sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar saman með axlalykkjum þannig: Prjónið * 1 lykkju sléttprjón, næsta lykkja er prjónuð saman með fyrstu/næstu lykkju frá öxl, lyftið til baka 2 lykkjum á prjóni sem voru með þráðinn frá röngu á stykki, passið uppá að þráðurinn sé ekki of stífur *, prjónið frá *-* þar til allar lykkjur frá öxl hafa verið prjónaðar saman með 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp = 2 lykkjur eftir. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRI ERMI: Fitjið upp 57-60-60-63-63-66 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt). Þegar stroffið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið mynstur þannig: Prjónið A.3 yfir fyrstu 8 lykkjur, prjónið sléttprjón og fækkið um 4-5-5-6-6-7 lykkjur jafnt yfir þær lykkjur sem eftir eru = 53-55-55-57-57-59 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.3 – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 5½-4-3½-3-2-2 cm millibili alls 6-7-8-9-11-11 sinnum = 65-69-71-75-79-81 lykkjur. STÆRÐ XS-S-M: Fellið af þegar ermin mælist 42-40-41 cm. STÆRÐ L-XL-XXL: Þegar ermin mælist 38-36-37 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna að loknu máli, þ.e.a.s. skiptið erminni upp mitt í A.3 og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 42-40-41 cm, þ.e.a.s. það er klauf 4 cm efst á ermi. Fellið af. VINSTRI ERMI: Prjónið á sama hátt og hægri ermi, en prjónið A.4 í stað A.3. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við 1 lykkju. Saumið saman kant að framan mitt að aftan og saumið við hálsmál á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. STÆRÐ XS-S-M: Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. STÆRÐ L-XL-XXL: Saumið ermakúpuna við handveg. Síðan er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Anne Ma wrote:
Hei! Koko XS, montako silmukkaa päätetään kainalossa ja milloin aloitetaan V - aukon kavennukset, 27 vai 31 cm, ohjeessa on näissä ristiriita . Kiitos!
17.05.2024 - 06:37Anne wrote:
Hei! Koko XS, montako silmukkaa päätetään kainalossa, puuttuu ohjeesta. Aloitetaanko v-aukon kavennukset 27 cm vai 31 cm kohdalla, ohjeessa on ristiriita. Kiitos!
17.05.2024 - 06:35Diana wrote:
How should I work for size L? “then slip these stitches (6) on a thread, bind…”? Could you please clarify in details this part? Thanks!
11.05.2024 - 20:08DROPS Design answered:
Dear Diana, basically, you slip the stitches for the two fronts on a stitch-holder / thread, while cast off 12-12 stitches for the two armholes. So you knit until you have 6 stitches until the firts marker, put these stitches you have just knitted on a holder, cast off the next 12 stitches, knit until you have 6 stitches until the next marker, cast off the next 12 stitches, then knit until the end of the row, and put these stitches on a holder. Break the yarn, reattach it to the back and continue with the back (alternately, put aside the ball and attach a new one to the back and continue, and later, wne you are finishing the fron, use the ball you left there) Happy Knitting!
12.05.2024 - 02:20AH wrote:
Blöde Anleitung! Man muß dauernd hin- und herspringen. Ich merkte, daß ich Knopflöcher hätte machen müssen, als das Teil schon fast fertig war. Dann stand in der Anleitung, daß ab X Zentimeter GLEICHZEITIG für Armloch und V-Ausschnitt abgenommen wird. Das stimmt aber gar nicht. Anleitungen sollten so sein, wie man strickt, d.h. Knopflöcher und Abnahmetips gehören an passender(!) Stelle IN den Text und nicht irgendwo anders, wo man sie überlesen kann.
18.02.2024 - 22:15Susi wrote:
Man könnte doch die Ärmelmaschen direkt aufnehmen, damit das lästige Zusammen nähen entfällt, oder ?
31.12.2023 - 12:00DROPS Design answered:
Liebe Susi, ja wahrscheinlich, dann sollen Sie die Anleitung so anpassen. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2024 - 11:00Spring Berv wrote:
Hi, There are no directions for the band! Please help, thank you
12.08.2023 - 13:16DROPS Design answered:
Dear Mrs Berv, the front band stitches are worked at the same time as front stitches, ie the first 5 stitches from RS on right front piece and the last 5 stitches from RS on left front piece, work the front band stitches in garter stitch. Happy knitting!
14.08.2023 - 09:09Helen Wahlby wrote:
Hej. Om jag vill ha den lite mindre, bara lite stor kan jag minska storleken på stickorna och i så fall vilken storlek på stickor rekommenderar nu? Hälsningar Helen
09.07.2023 - 10:07DROPS Design answered:
Hei Helen. Om man bytter ut strikkepinner for å få plagget mindre, vil ikke strikkefastheten og målene i oppskriften/målskissen stemme, så kan ikke garantere hvordan jakken da vil bli. mvh DROPS Design
24.07.2023 - 11:50Jo SW Kong wrote:
I’m knitting DROPS 239-23 but stop when doing the armholes SIZE L. What should I do with “then slip these stitches (6) on a thread, bind ……”? Should I put them back on the needle and continue knitting them when finish each part separately? Thank you so much for your answer.
12.05.2023 - 17:13DROPS Design answered:
Dear Jo, you don't slip the 6 stitches. You slip the stitches you have already worked (from the right front), then cast off the next 12 stitches, that is, the 6 stitches before and after the marker. Continue like this, repeating this on the back. The stitches in the left front piece are worked normally and are the ones you will start working after the armholes. Happy knitting!
14.05.2023 - 19:04Marit Signe Fjæreide wrote:
Hva betyr att maskene må vere delelig med 2+1
03.05.2023 - 08:27Marloes wrote:
Ik wil dit patroon van DROPS Air maken. Hoeveel bollen heb ik dan nodig?
05.04.2023 - 17:22DROPS Design answered:
Dag Marloes,
Voor een vervangend garen kun je de garenvervanger gebruiken. Hiervan vindt je een link onderaan de materialenlijst bij ieder patroon.
12.04.2023 - 20:38