Fabienne skrifaði:
Ce pull est magnifique ! Serait-il possible de le faire en col marteau ? Ce serait top
26.07.2023 - 15:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Fabienne, probablement, retrouvez tous nos pulls avec manche marteau ici, l'un d'eux pourra peut-être vous inspirer. Bon tricot!
28.07.2023 - 07:58
Maria Helena Matias skrifaði:
Quando começamos a trabalhar as costas, ou a frente, separadamente ,a receita manda fazer, no lado do avesso, algumas malhas em ponto meia , no inicio e no fim da carreira. A receita não explica no entanto como tecer essas malhas, no lado do direito. Tricota-se tal como se apresentam, em ponto liga?? Ou em ponto meia? Ficarei muito agradecida se me puderem esclarecer esta dúvida.
18.02.2023 - 17:37DROPS Design svaraði:
Bom dia, O ponto meia ou jersey tricota-se da seguinte maneira: Meia pelo direito da peça e liga pelo avesso da peça. Se tricotar em redondo, tricota-se sempre em meia. Bons tricôs!
27.03.2023 - 09:33
Christiane skrifaði:
Als ik na het boord de beschrijving voor het breien van het lijf volg, heb ik maar 99 van de 198 gebreid. Of wordt met brei van *-* 1 keer " herhaal 1 keer bedoeld?
27.12.2022 - 15:20DROPS Design svaraði:
Dag Christiane,
Wat tussen de sterretjes staat brei je inderdaad nog een keer.
27.12.2022 - 20:48
Maud Öhman skrifaði:
Butterfly sky
06.08.2022 - 18:48
Danielle Dubois skrifaði:
Neiges éternelles
05.08.2022 - 09:09
Southern Migration#southernmigrationsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 235-13 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-204-222-240-264-285 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Merino Extra Fine og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem fækkað er um 22-22-24-26-30-31 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 170-182-198-214-234-254 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 85-91-99-107-117-127 lykkjur og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan þannig: * Prjónið 5-8-3-7-3-8 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 72-72-90-90-108-108 lykkjur, prjónið 3 fyrstu lykkjur af A.1 og prjónið 5-8-3-7-3-8 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 33-34-35-36-37-38 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé 1. eða 7. umferð í A.1 (þar sem lykkjufjöldinn er breytilegur í mynstri A.1). Í næstu umferð er fellt af fyrir handvegi þannig: Fellið af 2-3-6-8-11-15 lykkjur, prjónið 81-85-87-91-95-97 lykkjur eins og áður, fellið af 4-6-12-16-22-30 lykkjur (prjónamerki situr mitt í þessum lykkjum), prjónið 81-85-87-91-95-97 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 2-3-6-8-11-15 lykkjur. Klippið þráðinn. Prjónið síðan bakstykki og framstykki fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 81-85-87-91-95-97 lykkjur. Byrjið frá röngu, prjónið 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 72-72-72-72-90-90 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.1 og prjónið 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón. Þegar stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 75-79-81-85-89-91 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og næsta umferð er frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 25-26-27-28-30-30 lykkjur slétt, fellið af 25-27-27-29-29-31 lykkjur, prjónið 25-26-27-28-30-30 lykkjur. Prjónið síðan hvor öxl til loka hvora fyrir sig. VINSTRI ÖXL (bakstykki): = 25-26-27-28-30-30 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið eins og áður út umferðina = 24-25-26-27-29-29 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. HÆGRI ÖXL (bakstykki): = 25-26-27-28-30-30 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar þannig: Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur sléttprjón = 24-25-26-27-29-29 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. FRAMSTYKKI: = 81-85-87-91-95-97 lykkjur. Byrjið frá röngu, prjónið 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 eins og áður yfir næstu 72-72-72-72-90-90 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.1 og prjónið 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón. Þegar stykkið mælist ca 42-48-45-47-48-50 cm, prjónið sléttprjón yfir miðju 4 mynstureiningar af A.4, (hér er lykkjum fækkað síðar fyrir hálsmáli). Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 26-27-28-29-31-31 lykkjur eins og áður, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 19-21-21-23-23-25 lykkjur slétt og setjið þær á þráð, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, prjónið 26-27-28-29-31-31 lykkjur eins og áður. Axlirnar eru nú prjónaðar til loka hvor fyrir sig. HÆGRI ÖXL (framstykki): = 29-30-31-32-34-34 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar þannig: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 27-28-29-30-32-32 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir = 24-25-26-27-29-29 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. VINSTRI ÖXL (framstykki): = 29-30-31-32-34-34 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur sléttprjón. Endurtakið úrtöku í næstu umferð frá réttu = 27-28-29-30-32-32 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 3 lykkjur jafnt yfir = 24-25-26-27-29-29 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. ERMI: Fitjið upp 48-48-51-54-54-57 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-6-7-10-8-9 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 9-9-9-7-8-6 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-12-13-14-14 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-48-46-45-43-41 cm, skiptist stykkið við prjónamerki og ermakúpan er prjónuð fram og til baka. Fellið af þegar ermin mælist 50 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana þannig að saumurinn verði flatur og fallegur. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju meðfram handvegi. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 4 og 1 þráði í hvorri tegund. Byrjið frá réttu við aðra öxlina, prjónið upp ca 81-84-87-90-93-99 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur sem settar voru á þráð mitt að framan) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #southernmigrationsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.