DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Southern Migration Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, v-hálsmáli og ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 235-14
DROPS Design: Mynstur me-247
Garnflokkur B + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 01, natur

DROPS TALA NR 522: 4-4-5-5-5-5 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
17 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með mynstri A.1 og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu. Þegar ekki er lengur pláss fyrir heilt mynstur við v-hálsmál, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur.
VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT (neðan frá og upp):
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 5, 14, 23 og 32 cm.
M: 6, 15, 24 og 33 cm.
L: 6, 13, 20, 27 og 34 cm.
XL: 4, 12, 20, 28 og 36 cm.
XXL: 5, 13, 21, 29 og 37 cm.
XXXL: 5, 13, 21, 29 og 37 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka neðan frá og upp á hringprjóna. Þegar fellt er af fyrir handveg er bakstykkið og framstykkin prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 206-221-239-257-278-299 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í DROPS Merino Extra Fine og 1 þræði í DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff fram og til baka þannig: 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir og endið með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið svona þar til stykkið mælist 4 cm og næsta umferð er frá réttu – lesið HNAPPAGAT.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 21-24-26-28-29-30 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 185-197-213-229-249-269 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni).
Prjónið síðan þannig (fyrsta umferð er frá réttu) og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 9 lykkjur, 2-5-0-4-0-5 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 72-72-90-90-108-108 lykkjur, 2-5-0-4-0-5 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir 9 lykkjur, 2-5-0-4-0-5 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 36-36-45-45-54-54 lykkjur, 3 lykkjur sléttprjón og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 50-53-57-61-66-71 lykkjur inn frá hvorri hlið (það eru 85-91-99-107-117-127 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 33-34-35-36-37-38 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé 7. eða 1. umferð í A.1 (þetta er gert til að mynstrið verði fallegt meðfram v-hálsmáli og þar sem lykkjufjöldinn er breytilegur í mynstri A.1).
Nú byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi þannig (frá réttu):
6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, prjónið eins og áður þar til 2-3-6-8-11-15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, fellið af 4-6-12-16-22-30 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til 2-3-6-8-11-15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, fellið af 4-6-12-22-30 lykkjur fyrir handveg, prjónið þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Héðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað hvert fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 46-48-49-51-53-54 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður. Í næstu umferð (frá réttu) er prjónað þannig: 6-8-0-2-4-5 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 27-27-27-27-36-36 lykkjur eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 44-46-47-49-51-52 lykkjur.
Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona alls 11-11-11-12-11-11 sinnum = 33-35-36-37-40-41 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 44-46-47-49-50-52 cm, prjónið sléttprjón – stillið af eftir heilu mynstri á hæðina. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 2-2-2-2-3-3 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 31-33-34-35-37-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 25-27-28-29-31-32 lykkjur fyrir öxl = 6 lykkjur eftir. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 6 lykkjurnar í ca 7-7-7-8-8-8 cm. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 46-48-49-51-53-54 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður. Í næstu umferð (frá réttu) er prjónað þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 3 lykkjur brugðið saman, prjónið út umferðina eins og áður = 44-46-47-49-51-52 lykkjur.
Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona alls 11-11-11-12-11-11 sinnum = 33-35-36-37-40-41 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 44-46-47-49-50-52 cm, prjónið sléttprjón – stillið af eftir heilu mynstri á hæðina. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 2-2-2-2-3-3 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 31-33-34-35-37-38 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 25-27-28-29-31-32 lykkjur fyrir öxl = 6 lykkjur eftir. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir 6 lykkjurnar í ca 7-7-7-8-8-8 cm. Fellið af.

BAKSTYKKI:
= 81-85-87-91-95-97 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður. Í næstu umferð (frá réttu) er prjónað þannig: 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 72-72-72-72-90-90 lykkjur, prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.1 og 3-5-6-8-1-2 lykkjur sléttprjón.
Þegar stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið sléttprjón – stillið af eftir heilu mynstri á hæðina. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 75-79-81-85-89-91 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og næsta umferð er frá réttu eru felldar af miðju 23-23-23-25-25-25 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

VINSTRI ÖXL (bakstykki):
= 26-28-29-30-32-33 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig: 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 25-27-28-29-31-32 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti.

HÆGRI ÖXL (bakstykki):
= 26-28-29-30-32-33 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig: Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2 lykkjur slétt = 25-27-28-29-31-32 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti.

ERMI:
Fitjið upp 48-48-51-54-54-57 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-6-7-10-8-9 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-44-46-48 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 9-9-9-7-8-6 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-12-13-14-14 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-47-46-44-43-40 cm, skiptist stykkið við prjónamerki og ermakúpan er prjónuð fram og til baka. Fellið af þegar ermin mælist 50 cm í öllum stærðum, þ.e.a.s. það er klauf 2-3-4-6-7-10 cm efst á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið saman kant að framan mitt að aftan (kragi). Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka.
Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botn á handvegi – sjá teikningu.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = engin lykkja, farðu áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = löng lykkja. Stingið prjóninum í gegnum stikkið á milli úrtöku 2 umferðum að neðan. Sækið þráðinn og dragið þráðinn með til baka að réttu á stykki. Passið uppá að þráðurinn sé nægilega langur þannig að hann herði ekki á stykkinu.
symbols = saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Sylvie wrote:

Bonjour. Je vous remercie pour la vidéo très explicite. Bonne fin de journée

09.04.2024 - 12:03

country flag Sylvie wrote:

Bonsoir. Dans les explications pour une taille M il est noté : "Quand l'ouvrage mesure 48-47-46-44-43-40 cm, diviser au marqueur et tricoter la tête de manche en allers et retours. Rabattre quand la manche mesure 50 cm (on a une fente de 2-3-4-6-7-10 cm en haut de la manche)". Sur combien de maille doit on travailler ? Que veut dire diviser au marqueur et la tête de manche ? Merci pour vos explications

08.04.2024 - 21:50

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, en taille M vous tricotez en rond jusqu'à ce que la manche mesure 47 cm de hauteur totale, puis vous tricotez le haut de la manche en allers et retours pendant 3 cm = la manche mesure 50 cm de hauteur totale et le haut /la tête de la manche mesure 3 cm. Découvrez cette façon de faire dans cette vidéo. Bon tricot!

09.04.2024 - 08:50

country flag Sylvie wrote:

Bonjour. Je vous remercie pour la vidéo très explicite. Bonne fin de journée

02.04.2024 - 18:38

country flag Sylvie wrote:

Bonjour. Je sollicite votre aide car je n'ai pas bien compris pour faire une maille longue. Merci

01.04.2024 - 15:06

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, cette vidéo devrait alors vous aider, car elle montre comment tricoter ce type de motifs. Notez juste que dans la vidéo, les motifs se répètent plus souvent en hauteur et en quinconce alors qu'ici, vous allez les tricoter en répétant A.1 en hauteur. Bon tricot!

02.04.2024 - 15:19

country flag Bianca Kotterink wrote:

Wat zijn de wasinstructies voor dit vest?? Want die zijn van Merino extra fine en kid silk nogal verschillend.

11.03.2024 - 09:32

DROPS Design answered:

Dag Bianca,

Je houdt altijd de instructies van het meest kwetsbare garen aan, alleen in dit geval moet het ene in de wasmachine gewassen worden en het andere met de hand. Lastig inderdaad. Je zou het kledingstuk ook buiten kunnen luchten. Misschien kun je het plat op een rekje neerleggen. Als het een beetje nevelig/mistig buiten is en je legt het een nacht buiten, dan frist het ook behoorlijk op. Hopelijk heb je hier wat aan.

11.03.2024 - 20:58

country flag Capucine wrote:

Bonjour \r\nPour la manche, c est noté il il faut diviser au marqueur la tête de manche mais ce n est pas indiqué combien de maille. Vous pouvez m’éclairer à ce sujet ? Merci beaucoup

10.09.2023 - 11:41

DROPS Design answered:

Bonjour Capucine, vous divisez l'ouvrage au niveau du marqueur sous la manche et continuez en allers et retours à partir du milieu sous la manche (sans diminuer, autrement dit, tricotez maintenant toutes les mailles en rangs, en commençant au milieu sous la manche, comme avant). Bon tricot!

11.09.2023 - 10:15

country flag Honor wrote:

Can someone give me a clue about sizes? Am I missing something, but I can't find any advice about what the sizes S to XXL mean.

20.08.2023 - 09:29

DROPS Design answered:

Dear Honor, the measurements for the sizes can be found in the schematic drawing, after the pattern's charts. You can see here how to read this schematic:https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=19. The measurements are all in cm. Happy knitting!

20.08.2023 - 17:01

country flag Vorst wrote:

Dans les explications en haut pour l encolure il dise 2 mailles ensemble à l endroits et dans les explications plus bas ils disent 3 mailles ensemble à l envers donc je suis un peu perdu

03.03.2023 - 14:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vorst, on diminue d'abord en tricotant 3 mailles ensemble à l'envers pour l'encolure, puis, on continue en diminuant ensuite 1 seule maille comme indiqué sous DIMINUTIONS. Bon tricot!

03.03.2023 - 15:34

country flag Estela wrote:

Não entendi o diagrama. Qdo se diz pra diminuir, não tem laçada pra compensar a diminuição. ? Se finerentes assim a peça vai encolher

17.02.2023 - 20:05

DROPS Design answered:

Bom dia, Não, de facto, não há laçadas neste bonito ponto. Há malhas alongadas que formam os buraquinhos. Tem à sua disposição um vídeo que explica como fazer o ponto com malhas alongadas: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1663&lang=pt Bons tricôs!

21.03.2023 - 09:56

country flag Pinel Nadine wrote:

Bonjour, sauf erreur de ma part, lorsque je fais la règle de 3 avec les références du modèle, je ne trouve pas les mêmes résultats. Ex: les valeurs du point fantaisie sont 17 m =10 cm . Monter 206 m . 206m ×10 =2060/17=121/2=60,5 cm. Sur le patron ça fait 54 cm. Merci de bien vouloir m éclairer sur le mode de calcul . Bien a vous. Nadine

08.02.2023 - 08:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pinel, en fait les 206 mailles sont celles montées pour tricoter en côtes avec les petites aiguilles, on va ensuite diminuer avant de tricoter le point fantaisie, on aura ainsi 185 m au total sur l'aiguille soit 85 m pour le dos et ainsi on retrouve bien nos 50 cm de large. Bon tricot!

08.02.2023 - 09:21