Iris Wilken skrifaði:
Goedendag, Ik heb twee vragen: "Keer het werk, trek de draad aan en brei recht tot 2 steken verder dan de vorige keer dat u het werk keerde na markeerdraad 2"- waar komen deze steken vandaan? Moet ik die opnemen aan de zijkanten en letterlijk doorbreien, of wordt heir verwezen naar de reeds gemeerderde steken? Tijdens het meerderen, staat er "aan beide kanten van 2 tricotsteken". Bedoelt u de twee steken rond de markeerdraad? Dank u!
30.10.2022 - 22:01DROPS Design svaraði:
Dag Iris,
Je bent 'verkorte' toeren aan het breien voor de halslijn waarbij je heen en weer breit en steeds meer steken breit. Dus je breit 2 steken verder dan de vorige keer. Dus je keert het werk niet op het vorige keerpunt, maar je breit 2 steken verder. Hiervoor brei je gewoon de steken die op de linker naald staan. Je hoeft geen steken te meerderen of op te zetten.
02.11.2022 - 14:56
Anonym skrifaði:
Holder halsen fasong slik som på bilde to eller detter den ned slik som på bilde tre?
16.10.2022 - 13:48DROPS Design svaraði:
Hei Anonym. Det kommer nok litt an på bruken. DROPS Alpaca Bouclé er et lett og luftig garn og kan nok "falle" litt ned (som bilde 3 viser (ved f.eks aktivitet). Du kan evnt strikke halsen dobbelt så lang og ha en dobbelt halskant (om du ønsker en høy hals). Den vil bli litt stivere, men også tykkere (og det går litt mer garn. ) mvh DROPS Design
17.10.2022 - 14:01
Anonym skrifaði:
Hvilken størrelse har modellen?
15.10.2022 - 12:00DROPS Design svaraði:
Hei, Du finner en målskisse med mål til alle størrelsene på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!
17.10.2022 - 06:52
Mette Wolff skrifaði:
Dejligt med opskrift til dette garn, hvilket har været savnet
04.08.2022 - 16:24
Walnut Wonder |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni og háum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-41 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (þ.e.a.s. frá röngu) prjónið uppsláttinn snúinn brugðið þannig að ekki myndist gat. Í næstu umferð (þ.e.a.s. þegar stykkið er prjónað í hring) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Það er aukið út frá réttu, á fram- og bakstykki er aukið út á undan 3. og 1. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Aukið er út fyrir ermar á eftir 3. og 1. prjónamerki og á undan 4. og 2. prjónamerki. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Alpaca Bouclé. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 12 cm. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 12-13-14-15-16-17 lykkjur (hálft bakstykki) og setjið 1. prjónamerki hér, teljið 20 lykkjur (ermi) og setjið 2. prjónamerki hér, teljið 24-26-28-30-32-34 lykkjur (framstykki) og setjið 3. prjónamerki hér, teljið 20 lykkjur (ermi) og setjið 4. prjónamerki hér, það eru 12-13-14-15-16-17 lykkjur eftir í umferð (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan JAFNFRAMT er aukið út í annarri hverri umferð fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Byrjið frá réttu, 3 lykkjur á undan 3. Prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu, prjónið þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá 2. prjónamerki (hægri hlið á hálsmáli að framan). Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerkið. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast við 2. prjónamerki – munið eftir útaukningu fyrir laskalínu. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur frá röngu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast við 3. Prjónamerki. Klippið þráðinn. Nú hefur verið aukið út fyrir laskalínu 3 sinnum og það eru 112-116-120-124-128-132 lykkjur í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Byrjið mitt að aftan og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 13-15-17-20-22-24 sinnum til viðbótar (nú hefur verið aukið út alls 16-18-20-23-25-27 sinnum við hvert prjónamerki frá hálsmáli). Nú eru 216-236-256-284-304-324 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú heldur útaukningin áfram á fram- og bakstykki, en ekki á ermum þar til aukið hefur verið út alls 21-23-24-27-29-30 sinnum við hvert prjónamerki á fram- og bakstykki (5-5-4-4-4-3 útaukningar sem einungis eru gerðar á fram- og bakstykki). Nú eru 236-256-272-300-320-336 lykkjur í umferð (52-56-60-66-70-74 lykkjur á hvorri ermi og 66-72-76-84-90-94 lykkjur á hvoru framstykki / bakstykki). Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-24-27-29-30 cm mitt að framan (mælt eftir hálsmáli). Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í byrjun á umferð þannig: Prjónið fyrstu 36-39-41-45-49-53 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 46-50-54-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 72-78-82-90-98-106 lykkjur (framstykki), setjið næstu 46-50-54-60-62-62 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 36-39-41-45-49-53 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-184-200-220-240 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 24-24-25-24-24-25 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-12-12-12-16-16 lykkjur jafnt yfir = 172-184-196-212-236-256 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMI: Setjið 46-50-54-60-62-62 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 14-9-5-4-2½-2½ cm millibili alls 3-4-6-8-9-9 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 39-38-37-35-33-32 cm, nú eru eftir ca 5 cm að loka máli (mátið e.t.v. flíkina og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-42-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.