Rikke Møller Hansen skrifaði:
Mangler der ikke markering af omslagene i mønsteret??
30.08.2022 - 10:55
Marja skrifaði:
Vehnä
08.08.2022 - 11:22
Dagmar skrifaði:
Honey in the evening
08.08.2022 - 09:42
Tatjana skrifaði:
Honeycomb
05.08.2022 - 19:43
Andrea skrifaði:
Royal hive
05.08.2022 - 17:00
Purlyplatypus skrifaði:
Beehive buzz
05.08.2022 - 07:31
Bente skrifaði:
En rigtig hygge trøje
04.08.2022 - 18:14
Marith skrifaði:
Honeycomb sweater
04.08.2022 - 13:19
Northern Mermaid Sweater#northernmermaidsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky / DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og býkúpumynstri. Stærð XS/S - XXXL.
DROPS 236-6 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Jafnóðum sem lykkjur eru auknar út fyrir laskalínu, prjónið nýjar lykkjur inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp með 3 eða 6 lykkjum í mynstri. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, prjónast í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu á undan / á eftir 4 lykkjur með prjónamerki (í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. Prjónið síðan útauknar lykkjur inn í mynstur eins og útskýrt er að ofan. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-87-90-93-96-99 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-13-22-19-28-25 lykkjur jafnt yfir = 100-100-112-112-124-124 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju, teljið 18 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 30-30-36-36-42-42 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 30-30-36-36-42-42 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (bakstykki). Fyrsta umferð er prjónuð þannig: 1 lykkja sléttprjón (lykkja með 1. prjónamerki), aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2. prjónamerki (lykkja með prjónamerki er prjónuð í sléttprjóni), A.1, prjónið A.2 alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 3. prjónamerki (lykkja með prjónamerki er prjónuðu í sléttprjóni), A.1, A.2, A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 4. prjónamerki (lykkja með prjónamerki er prjónuð í sléttprjóni), A.1, prjónið A.2 alls 3-3-4-4-5-5 sinnum), A.3, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu á undan 1. prjónamerki. Haldið svona áfram með mynstur jafnframt því sem útaukning heldur áfram eins og útskýrt er að neðan – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í (8 lykkjur fleiri) í annarri hverri umferð alls 13-13-13-19-16-10 sinnum, meðtalin útaukning í fyrstu umferð. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá MYNSTUR í útskýringu að ofan = 204-204-216-264-252-204 lykkjur. Síðan heldur útaukning áfram fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út alls 18-24-24-18-24-36 sinnum á framstykki/bakstykki (9-12-12-9-12-18 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 31-37-37-37-40-46 sinnum á framstykki/bakstykki og 22-25-25-28-28-28 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 312-348-360-372-396-420 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 23-27-28-29-31-34 cm mælt mitt að framan á eftir stroffi í hálsmáli. JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 4 lykkjur með því að prjóna lykkjur með prjónamerki í þannig: 2. og 4. prjónamerki: Prjónið lykkju með prjónamerki snúna slétt saman með næstu lykkju. 1. og 3. prjónamerki: Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman. Nú eru 308-344-356-368-392-416 lykkjur í umferð. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 92-104-110-110-122-134 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 92-104-110-110-122-134 lykkjur eins og áður (bakstykki). Stykkið mælist ca 27-31-32-33-35-38 cm frá öxl. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig – héðan er nú stykkið mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-216-240-252-276-312 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi áfram beint yfir lykkjur frá berustykki). Prjónið þar til stykkið mælist ca 25-23-24-25-25-24 cm frá skiptingu – endið eftir umferð sem jafngildir 4. eða 10. umferð í A.2. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 15-21-21-21-24-30 lykkjur jafnt yfir = 177-195-219-231-252-282 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMI: Setjið 62-68-68-74-74-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-10-16-16-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-78-90-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 4-4-10-16-16-22 lykkjur. Haldið áfram með A.2 hringinn yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi áfram beint yfir lykkjur frá berustykki). Þegar stykkið mælist 4-4-4-2-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5-3-2½-2-1½ cm millibili alls 6-6-9-12-12-15 sinnum = 54-60-60-66-66-66 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 34-31-31-30-29-26 cm frá skiptingu – endið eftir umferð sem jafngildir 4. eða 10. umferð í A.2. Það eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 40-37-37-36-35-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northernmermaidsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.