DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17556.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Northern Mermaid Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Sky / DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, V-hálsmáli og býkúpumynstri. Stærð XS/S - XXXL.

DROPS 236-5
DROPS Design: Mynstur sk-175
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
Liturinn / gæðin sem notað er í peysu á mynd:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 03, grá þoka
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-175-175-200-225 g litur 38, krít

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850 g litur 08, ljós beige
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-175-175-200-225 g litur 38, krít

DROPS TALA NR 501: 4-4-5-5-5-5 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
21 lykkja á breidd og 27 umferðir á hæð með býkúpumynstri og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17556.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Jafnóðum sem lykkjur eru auknar út fyrir laskalínu og V-hálsmáli, prjónið nýjar lykkjur inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp með 3 eða 6 lykkjum í mynstri. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, prjónast í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út fyrir laskalínu á undan / á eftir 4 lykkjur með prjónamerki (í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan í lykkjuna þegar hún er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

V-HÁLSMÁL:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju á eftir kant að framan í byrjun á umferð / á undan kanti að framan í lok umferðar.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.
Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig:
Á UNDAN KANTI AÐ FRAMAN:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR KANTI AÐ FAMAN:
Lyftið uppslættinum af vinstra prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni aftan í lykkjuna þegar hún er sett til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir V-hálsmáli, síðan er fellt af fyrir 3-3-4-4-4-4 næstu hnappagötum með 9-10-7-7½-6½-7 cm millibili.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður.
Byrjið með að prjóna 2 lausa kanta að framan í garðaprjóni – það á að sauma þá síðar við hálsmál aftan í hnakka. Síðan eru lykkjur fitjaðar upp á milli þessa tveggja kanta að framan í garðaprjóni fyrir öxl og hálsmál aftan í hnakka. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir laskalínu og V-hálsmáli. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 7-7-7-9-9-9 lykkjur á prjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, þar til kantur að framan mælist 11-11-12-12-14-14 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu. Geymið stykkið.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 7-7-7-9-9-9 lykkjur á prjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
Prjónið garðaprjón, þar til kantur að framan mælist 11-11-12-12-14-14 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá réttu, ekki klippa þráðinn.
Fitjið nú upp 60-60-66-66-72-72 nýjar lykkjur í lok umferðar, prjónið síðan 7-7-7-9-9-9 lykkjur frá hægri kanti að framan slétt = 74-74-80-84-90-90 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar).
Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan.
Teljið 8-8-8-10-10-10 lykkjur, setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 30-30-36-36-42-42 lykkjur (bakstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 8-8-8-10-10-10 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.

Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, aukið út um lykkju fyrir V-HÁLSMÁL – sjá útskýringu að ofan, A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 1. prjónamerki – sjá útskýringu að ofan (lykkjur með prjónamerki í eru prjónaðar í sléttprjóni), A.2, A.4, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 2. prjónamerki, A.2, prjónið A.3 alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, A.4, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 3. prjónamerki, A.2, A.4, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 4. prjónamerki, A.5, aukið út um 1 lykkju fyrir V-hálsmáli, 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka jafnframt því sem útaukningar fyrir laskalínu og v-hálsmáli heldur áfram eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana að neðan áður en þú prjónar áfram.

LASKALÍNA:
Aukið út hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í hverri umferð frá réttu (8 lykkjur fleiri) alls 19-19-19-25-22-26 sinnum, meðtaldar útaukningar í fyrstu umferð.
Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu – sjá MYNSTUR í útskýringu að ofan.
Síðan heldur útaukning áfram fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð(í hverri umferð frá réttu) og á ermum í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu). Aukið svona út alls 12-18-18-12-18-30 sinnum á framstykki/bakstykki (6-9-9-6-9-15 sinnum á ermum).
Nú hefur verið aukið út alls 31-37-37-37-40-46 sinnum á framstykki/bakstykki og 25-28-28-31-31-31 sinnum á ermum.

V-HÁLSMÁL:
Aukið út fyrir V-hálsmáli innan við kanta að framan í annarri hverri umferð alls 3 sinnum, ásamt útaukningu í fyrstu umferð. Síðan er aukið út í 4. hverri umferð alls 12-12-15-15-18-18 sinnum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 328-364-376-392-416-440 lykkjur í umferð.

Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist 23-27-28-29-31-34 cm frá uppfitjunarkanti aftan í hnakka – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í síðustu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur með því að prjóna lykkjur með prjónamerki í þannig:
2. og 4. prjónamerki: Prjónið lykkju með prjónamerki snúna slétt saman með næstu lykkju.
1. og 3. prjónamerki: Byrjið 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Nú eru 324-360-372-388-412-436 lykkjur í umferð.

Í næstu umferð (ranga) skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 54-60-63-65-71-77 lykkjur eins og áður (hægra framstykki), setjið næstu 62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 92-104-110-110-122-134 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 54-60-63-65-71-77 lykkjur eins og áður (vinstra framstykki).
Stykkið mælist ca 26-30-31-32-34-37 cm frá öxl.
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig – héðan er nú stykkið mælt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 208-232-256-272-296-332 lykkjur. Prjónið mynstur þannig: 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón, prjónið A.3 þar til 8-8-8-10-10-10 lykkjur eru eftir í umferð, (haldið áfram með mynstur beint yfir lykkjur frá berustykki), prjónið 1 lykkju sléttprjón, 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 26-24-25-26-26-25 cm frá skiptingu – endið eftir umferð sem jafngildir 4. eða 10. umferð í A.3.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 19-22-22-22-25-31 lykkjur jafnt yfir = 189-210-234-250-271-301 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Prjónið stroff frá röngu þannig: 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8-8-8-10-10-10 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, 7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 62-68-68-74-74-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-10-16-16-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-78-90-90-96 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 4-4-10-16-16-22 lykkjur.
Haldið áfram með A.3 hringinn yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi áfram beint yfir lykkjur frá berustykki).
Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-2-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 6-5½-3½-2½-2½-1½ cm millibili alls 6-6-9-12-12-15 sinnum = 54-60-60-66-66-66 lykkjur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið þar til ermin mælist ca 38-35-34-34-31-29 cm frá skiptingu – endið eftir umferð sem jafngildir 4. eða 10. umferð í A.3 og prjónið e.t.v. sléttprjón að réttu máli.
Það eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 44-41-40-40-37-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kanta að framan mitt aftan í hnakka, saumið síðan saman við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Hson wrote:

Detta mönster menade jag. Det står Honeycomb, är inte det samma sak som Bikupmönster? Men på en video ser bikupemönstret helt annorlunda ut än detta.

22.03.2024 - 13:31

DROPS Design answered:

Hej, det er flere måder at strikke honeycomb / bikupmönster på, vi har ikke en video på dette, så her er du nødt til at følge de 2 diagram-forklaringer i opskriften :)

03.04.2024 - 14:01

country flag Isabelle Calleau wrote:

Bonjour, est-il possible d'utiliser une laine du groupe C seule ? la brushed alpaca silk ? Merci

09.02.2024 - 18:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Calleau, tout à fait dans la mesure où vous avez le même échantillon, notez juste que la texture sera différente du modèle photographié en raison des propriétés différentes des laines utilisées. Bon tricot!

12.02.2024 - 07:12

country flag Kirsty Oakes wrote:

Hi, could you use Drops Soft Tweed instead of Sky, in addition to Kid-Silk? Thank you.

15.11.2023 - 14:16

DROPS Design answered:

Dear Mrs Oakes, sure you can as Sky and Soft Tweed both belong to same yarn group, just use the yarn converter to get the new amount required in Soft Tweed for your size - and work together with Kid-Silk as in the pattern. Happy knitting!

16.11.2023 - 09:17

country flag Lone wrote:

Smuk trøje. Jeg er desværre allerede gået i stå ved start på bærestykket. Jeg strikker str. M og har 74 masker. Jeg skal sætte 4 mærker men Fordelingen giver 70 masker. Hvad skal de 4 der er i overs? Mh Lone

05.11.2023 - 20:32

DROPS Design answered:

Hej Lone, har du talt de masker med du sætter mærkerne i?

09.11.2023 - 15:04

country flag Eef wrote:

Hoe zit het precies bij het meerderen voor de mouw en voor/achterpand, wanneer je dit om en om doet ? Op sommige toeren heb ik 3 steken over en moet ik hier een kabel maken. Echter is er dan geen "extra" steek voor of na de markeerder, zoals eerder in de tekeningen. Moet ik hier wel een kabel maken?

03.09.2023 - 16:15

DROPS Design answered:

Dag Eef,

Als er niet genoeg steken zijn om een kabel te maken, dan maak je geen kabel, zodat het meerderen mooi doorloopt. Op een van de foto's is de raglanlijn ook te zien.

04.09.2023 - 20:16

country flag Eef wrote:

Blijf ik na a1/a5 helemaal doorlopen te hebben nog steeds meerderen voor de v hals aan de kant van de voorbiessteken ? Of meerder ik daarna enkel nog voor de mouwen en de panden?(bij de markeringen)

26.08.2023 - 15:17

DROPS Design answered:

Dag Eef,

Je meerdert voor de v-hals zo vaak als staat aangegeven voor jouw maat, onafhankelijk van hoe ver je met de telpatronen bent.

27.08.2023 - 16:59

country flag Eef wrote:

Ik heb een vraag over de eerste naald bij de pas. Hier staat dat je moet meerderen voor en na de markeringen. In de uitleg staat dat je 4 raglansteken hebt. En 1 steek voor en na deze 4 steken meerdert. Echter op de eerste naald heb je de 7 voorbiessteken, dan meerderen voor de hals, maar er zijn aan deze kant van de markeerder nog geen 2 steken waarvoor je kan meerderen. Kan ik uitgelegd krijgen hoe ik dit moet doen ?

19.08.2023 - 09:16

DROPS Design answered:

Dag Eef,

Je meerdert direct voor en na de markeerdraadsteek. Bij elke raglanlijn heb je dus steeds 1 steek tussen de meerderingen en niet 4. Met 4 raglansteken worden de 4 verschillende raglans bedoeld, dat is natuurlijk verwarrend.

20.08.2023 - 15:37

country flag Eef wrote:

Ik heb een vraag over de eerste naald bij de pas. Hier staat dat je moet meerderen voor en na de markeringen. In de uitleg staat dat je 4 raglansteken hebt. En 1 steek voor en na deze 4 steken meerdert. Echter op de eerste naald heb je de 7 voorbiessteken, dan meerderen voor de hals, maar er zijn aan deze kant van de markeerder nog geen 2 steken waarvoor je kan meerderen. Kan ik uitgelegd krijgen hoe ik dit moet doen ?

19.08.2023 - 09:15

country flag Es wrote:

Voor mij is het niet duidelijk welk patroon ik nu over welk gedeelte moet breien ? Brei ik a1 en a5 over de voorkant, a2 over de mouw en a3 en a4 over het achterpand ?

14.07.2023 - 17:58

country flag LONGER MARYLINE wrote:

Bonjour J'ai commencé ce modèle,je prends les mesures et je m'aperçois que: - j'ai le bon nombre de mailles 360 - échantillon du point fantaisie : 27 mailles 10 cms - taille M 51 cms Ma réalisation 48 cms Dites moi pourquoi et ce que je dois faire Merci de votre réponse Maryline

07.04.2023 - 13:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Longer, il semble que votre échantillon n'est pas juste, vous devez avoir soit 17 m x 23 rangs en jersey soit 21 m x 27 rangs au point rayons de miel = 10 x10 cm. Si vous avez tricoté votre échantillon au point de miel, essayez à nouveau avec des aiguilles plus grosses. Bon tricot!

11.04.2023 - 12:00