Henny De Groot skrifaði:
Zijn er ook patronen die top down worden gebreid die ook passen, de achterkant moet hoger anders heb je het gevoel dat je de trui achterste voren aan hebt, ik vind het verschrikkelijk
24.11.2022 - 21:18
Anna Þorsteinsdóttir skrifaði:
Mynstur og útskýringar á táknum samræmast ekki.
13.10.2022 - 22:34
Charlotte Nørby skrifaði:
Mønster A1. Der står: Strik A.1 totalt 18-19-20-22-24-25 gange rundt på bærestykket. Så jeg skal strikke 18 omgange i diagrammet til str. Smalll. Men hvad med resten af omgangen i A1? Det er i alt 32 omgange i A1. Vh Charlotte
15.09.2022 - 21:18DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, du får plads med 18 rapporter rundt på pinden og du strikker hele diagrammet :)
16.09.2022 - 14:31
Maryvonne Belbeoc'h skrifaði:
Très joli pull a l'encolure très originale.
05.08.2022 - 08:45
Hanne skrifaði:
Sødt mønster
04.08.2022 - 18:12
Gabriella skrifaði:
Pizzo nel cielo
04.08.2022 - 14:23
Rain Romance Sweater#rainromancesweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-3 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA (á við um ermar): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 86-90-94-98-102-106 lykkjur með DROPS Air yfir stuttan hringprjón 5 og stuttan hringprjón 3,5 sem haldið er saman. Dragið út stuttan hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 3,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur. Prjónið 1 umferð í stroffprjóni JAFNFRAMT því sem önnur hver lykkja á prjóni er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-24-26-34-42-44 lykkjur jafnt yfir = 108-114-120-132-144-150 lykkjur. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). STÆRÐ S, M og L: Þegar stykkið mælist 3-3-4 cm frá prjónamerki, aukið allar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan öllum 2 lykkjum brugðið) = 144-152-160 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist 2-3-3 cm frá prjónamerki, aukið út aðra hverja 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan annarri hverri 2 lykkjur brugðið) = 154-168-175 lykkjur. Haldið áfram með stroff (í fyrstu umferð, prjónið uppsláttinn snúinn brugðið þannig að ekki myndist gat). Þegar stykkið mælist 4-5-5 cm frá prjónamerki, aukið út þær 2 lykkjur brugðið sem eftir eru til 3 lykkjur brugðið = 176-192-200 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ALLAR STÆRÐIR: Stykkið mælist nú ca 4-4-5-5-6-6 cm frá prjónamerki og það eru 144-152-160-176-192-200 lykkjur í umferð. Prjónið A.1 alls 18-19-20-22-24-25 sinnum hringinn á berustykki. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist stykkið ca 19-19-20-20-21-21 cm frá prjónamerki og það eru 252-266-280-308-336-350 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 19-21-22-23-24-25 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-6-12-20-8-14 lykkjur jafnt yfir = 256-272-292-328-344-364 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 38-41-44-49-53-57 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 52-54-58-66-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 76-82-88-98-106-114 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 52-54-58-66-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 38-41-44-49-53-57 lykkjur í sléttprjóni. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-212-232-252 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 21 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-30-30-34-38-42 lykkjur jafnt yfir = 190-206-222-246-270-294 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 52-54-58-66-66-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-60-66-74-76-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-2 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-2½-2-2-1½ cm millibili alls 4-4-6-9-9-10 sinnum = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 36-34-33-31-29-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 60-62-64-68-70-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 44-42-41-39-37-36 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rainromancesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.