Inga Gar skrifaði:
Cozy winter
06.08.2022 - 12:29
Ginger skrifaði:
Beautiful 😍
05.08.2022 - 23:29
Andrea skrifaði:
Angel wings
05.08.2022 - 16:58
Timea skrifaði:
Frosted whisper
05.08.2022 - 15:45
Hazel Barn Cardigan skrifaði:
The cardigan looks so breezy!!!
05.08.2022 - 14:08
Arlee skrifaði:
Pillow breeze
05.08.2022 - 13:02
Kim Miller skrifaði:
Angelic
04.08.2022 - 22:47
Chloe skrifaði:
Cloud nine.
04.08.2022 - 21:37
Mila Georgieva skrifaði:
Der Pullover scheint mir schick zu sein, allerdings das Foto gibt mir keine gute Möglichkeit, den richtig anzuschauen. Können Sie ein anderes Foto hochladen? Danke!
04.08.2022 - 21:33
Else Karin Jegteberg skrifaði:
Classic elegance
04.08.2022 - 19:31
Winter Feather#winterfeathersweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 5 þráðum DROPS Kid-Silk eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-1 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir/undan A.1 eins og útskýrt er í uppskrift (í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN A.1: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppsláttinn snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR A.1: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfladur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 87-93-93-99-102-108 lykkjur á hringprjón 7 með 5 þráðum DROPS Kid-Silk eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið öllum 2 lykkjum brugðið til 1 lykkja brugðið með því að prjóna 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið saman, út umferðina = 58-62-62-66-68-72 lykkjur. Haldið áfram með stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Þegar stykkið mælist 20-20-20-22-22-22 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-22-22-26-28-28 lykkjur jafnt yfir = 80-84-84-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið á að mælast frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið fyrstu umferð þannig: 7-8-8-9-10-11 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki), A.1, 2-2-2-4-4-4 lykkjur sléttprjón (ermi), A.1, 14-16-16-18-20-22 lykkjur sléttprjón (framstykki), A.1, 2-2-2-4-4-4 lykkjur sléttprjón (ermi), A.1, 7-8-8-9-10-11 lykkjur sléttprjón (½ bakstykki). Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 9-12-11-9-8-8 sinnum = 152-180-172-164-160-164 lykkjur. Nú er aukið út mismunandi á fram- og bakstykki og ermum, þ.e.a.s. haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 4-2-4-8-10-12 sinnum á fram- og bakstykki (2-1-2-4-5-6 sinnum á ermum). Eftir alla útaukningu eru 176-192-196-212-220-236 lykkjur í umferð. Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-24-26-28 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 20-22-23-26-28-31 lykkjur sléttprjón, A.2, setjið næstu 36-40-40-42-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið A.3, 40-44-46-52-56-62 lykkjur sléttprjón, A.2, setjið næstu 36-40-40-42-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið A.3 og síðan 20-22-23-26-28-31 lykkjur sléttprjón. Fram- og bakstykki og ermar er prjónað áfram hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: 116-124-132-144-156-168 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón, A.2 og A.3 hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 12 cm frá skiptingu í öllum stærðum = 108-116-124-136-148-160 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMI: Setjið 36-40-40-42-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-46-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 8-5-4-4-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 8-5-4-4-3-3 cm millibili alls 2-3-4-4-5-5 sinnum = 38-40-40-42-42-44 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 40-38-37-37-35-33 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 34-36-36-38-38-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 46-44-43-43-41-39 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið inn stroffið í hálsmáli að röngu, þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Festið kantinn með 1 spori í hvorri hlið við hvora öxl. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterfeathersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.