Christiane skrifaði:
Ich soll 147 Maschen aufnehmen, dann 5 Maschen zunehmen, macht 152 Maschen. Dann soll ich Maschenmarkierer nach 24, 26, 48, 26 Maschen anbringen, Rest 24, macht 148 Maschen. Da stimmt was nicht, wie wäre es richtig?
03.05.2023 - 22:35DROPS Design svaraði:
Liebe Christiane, die Maschenmarkierer sollen je in einer Masche (nicht zwischen Maschen) eingelegt werden, so haben Sie: 24,1,26,1,48,1,26,1,24=152 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
04.05.2023 - 08:08
Susi skrifaði:
50cm Gesamtlänge ist für Größe L und aufwärts leider viel zu kurz. Bitte mindestens die Bündchenlänge von 4cm zusätzlich berücksichtigen.
28.02.2023 - 16:52
Susi skrifaði:
Das ist ja super, danke! Wäre toll, wenn Ihre Designer nun auch zeitnah ein Top mit V- Ausschnitt und I- Cord Kante entwickeln könnten ;-)
15.02.2023 - 17:33
Susi skrifaði:
Ich würde gerne als Abschluß eine I- cord Kante stricken statt des Rippenmusters. Gibt es eine Anleitung dafür bei den Stricktipps ?
15.02.2023 - 14:35DROPS Design svaraði:
Liebe Susi, dann könnte Ihnen also dieses Video helfen. Viel Spaß beim stricken!
15.02.2023 - 15:05
Signe skrifaði:
Har strikket denne i Belle, ble veldig fin i passform og superfin på .
01.08.2022 - 23:10
Manon Charette skrifaði:
Bonjour - pour gr XL le placement des marqeur ne devrait pas etre 23-26-45-26-22 (total142)? Merci de confirmer et corriger au besoin.
31.07.2022 - 10:45DROPS Design svaraði:
Bonjour, vous insérez le marqueur dans la maille après la 21ème (dans la 22ème). 26, marqueur dans la maille suivante ; 43, marqueur dans la maille suivante ; 26 marqueurs dans la maille puis il reste 22 mailles. Au total, vous avez 142 mailles. Bon tricot!
31.07.2022 - 19:10
Alex skrifaði:
I really like top-down patterns. However, I prefer when the back is slightly higher. How can I add elevation to this one please? Could you please add a term elevation to the search engine please?Many thanks Alex
30.06.2022 - 11:19DROPS Design svaraði:
Dear Alex, thanks for your suggestion, we will take it in account, in the meantime, you will have to check similar patterns with the same tension, thanks for your comprehension.
30.06.2022 - 16:52
Lena skrifaði:
Sød sommerbluse i en skønt lavendel
16.01.2022 - 22:38
Hannah RK skrifaði:
This is such a beautiful elegant neck, I have been looking for something like this for so long, the sleeves are a lovely length and proportion too!
14.01.2022 - 12:33
April Awakens#dropsaprilawakens |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur / t-shirt úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-53 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið og fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 126-132-135-138-147-150 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Muskat. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út 4-4-1-4-5-2 lykkjur jafnt yfir = 130-136-136-142-152-152 lykkjur. Setjið merkiþráð í byrjun á umferð (mitt að aftan) – berustykkið er nú mælt frá þessum merkiþræði! Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna, þannig: Teljið 18-20-20-21-24-24 lykkjur og setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 26 lykkjur og setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 37-40-40-43-48-48 lykkjur og setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 26 lykkjur og setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, nú eru eftir 19-20-20-22-24-24 lykkjur fram að byrjun á umferð. Prjónið síðan hringinn í sléttprjóni og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, aukið svona út í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 20-23-26-29-32-35 sinnum á hæðina = 290-320-344-374-408-432 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16-18-19-21-23-25 cm frá merkiþræði. Næsta umferð er prjónuð frá byrjun á umferð þannig: Prjónið fyrstu 39-43-47-51-59-64 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 66-74-78-84-86-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið næstu 79-86-94-103-118-128 lykkjur (framstykki), setjið næstu 66-74-78-84-86-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 40-43-47-52-59-64 lykkjur (hálft bakstykki) = 170-184-200-222-252-272 lykkjur í umferð. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 170-184-200-222-252-272 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 20-20-21-21-21-21 cm frá skiptingu. Nú er prjónuð 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 7-11-10-12-12-13 lykkjur jafnt yfir = 177-195-210-234-264-285 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 66-74-78-84-86-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-80-84-92-94-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist ca 3-3-2-2-2-1 cm frá skiptingu fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 1½-1-1½-1-1-1½ cm millibili alls 6-8-6-7-5-3 sinnum = 60-64-72-78-84-90 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 13-12-11-10-8-6 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-1-0-0-0-0 lykkjur = 60-63-72-78-84-90 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsaprilawakens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-53
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.