Kristina Lindelöf skrifaði:
Jag förstår inte svaret. Med markören 1 maska in, så blir det 2 maskor mellan minskningarna om man följer resten av instruktionerna och på bilderna ser det ut som bara 1 maska mellan minskningarna. Menar du att man ska sticka ärmmönstret sista/första maskan på fram/bakstyckena? Jag försökte, men det stämde inte med ärmarna. En sak till: det finns flera fel i A3: det saknas 1 omslag sist på mönsterrad 1 och 5. Och i början på näst sista raden är där en maska för mycket.
09.08.2022 - 10:03DROPS Design svaraði:
Hej igen, vi skal få design til at se på diagram A.3 igen, tak for info! Når du har sat markøren med det antal masker imellem som vi skriver i mønsteret, så strikkes mønsteret over det antal ærmemasker som er imellem markørerne. Du har 1 rätm på varje sida av markören (2 rätm i raglanlinjen) Gör såhär: RAGLAN Sticka tills det återstår 3 maskor före markören, sticka 2 maskor räta tillsammans, sticka nästa maska rät, markör. Minska 1 maska efter markören så här: Markör, sticka 1 rätmaska, lyft nästa maska av stickan, sticka 1 rätmaska, drag den lyfta maskan över maskan som stickades.
09.08.2022 - 10:56
Kristina Lindelöf skrifaði:
Raglan: Var ska man sätta markören? En maska in, står det, men jag får inte ihop det. Vad betyder "en maska in"? Om det menas mellanrummet mellan maska 1 o 2, så stämmer det inte med instruktionerna för raglan. Dessa stämmer däremot med att sätta markören i mellanrummet mellan ärm och fram/bakstycke. Annars saknas 1 rm efter eller före markören i instruktionerna, verkar det som. Eller hur ska det egentligen vara?
30.07.2022 - 08:05DROPS Design svaraði:
Hej Kristina, det betyder at du laver selve raglanovergangen på hver side mærket som sidder 1 maske indenfor forstykket i hver side, det vil sige at første og sidste maske kommer til at høre til ærmerne. God fornøjelse!
04.08.2022 - 07:43
Sonja skrifaði:
Iman
05.02.2022 - 06:45
Linda skrifaði:
Midsummer Day
18.01.2022 - 14:37
Ater skrifaði:
Lavender lace
17.01.2022 - 19:56
Jildou skrifaði:
A field of lavender
15.01.2022 - 22:03
Race the Wind Jacket#racethewindjacket |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með laskalínu, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S – XXXL.
DROPS 232-17 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 10, 18, 26, 35 og 44 cm M: 10, 19, 28, 37 og 46 cm L: 10, 19, 28, 38 og 48 cm XL: 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm XXL: 10, 18, 26, 34, 43 og 52 cm XXXL: 10, 18, 27, 36, 45 og 54 cm LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu lykkju, prjónamerki. Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið um 4 lykkjur í annarri hverri umferð (1 lykkju á hvoru framstykki og 2 lykkjur á bakstykki). Að auki kemur úrtaka á ermum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan eru ermar prjónaðar fram og til baka á hringprjóna upp að handveg. Ermarnar eru síðan settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki. Berustykkið og kantur í hálsmáli er fram og til baka frá miðju að framan. Ermakantar eru ekki saumaðir saman, þannig að það verður klauf undir hvorri ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 277-291-319-347-389-417 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Prjónið þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 er prjónað 19-20-22-24-27-29 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 201-211-231-251-281-301 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 7-1-1-1-7-3 lykkjur jafnt yfir = 194-210-230-250-274-298 lykkjur. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 51-55-60-65-71-77 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 92-100-110-120-132-144 lykkjur á bakstykki). Haldið áfram í sléttprjóni með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 27-26-25-24-23-23 cm. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 47-51-56-61-67-73 lykkjur (= vinstra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 84-92-102-112-124-136 lykkjur (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið þær 47-51-56-61-67-73 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki). Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 159-171-183-195-207-219 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Prjónið þannig – frá réttu: 1 lykkja í garðaprjóni, A.2 er prjónað 13-14-15-16-17-18 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Síðasta umferð í A.2 er prjónuð þannig – frá röngu (nú eru 81-87-93-99-105-111 lykkjur í umferð): Fellið af fyrstu 8 lykkjur í umferð, prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir, fellið af þessar lykkjur = 65-71-77-83-89-95 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi = 308-336-368-400-436-472 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið. Setjið prjónamerki 1 lykkju inn á framstykki og bakstykki. Prjónið sléttprjón og garðaprjón yfir lykkjur frá fram- og bakstykki eins og áður. Lykkjur á ermum eru prjónaðar þannig: A.3, A.4 er prjónað 6-7-8-9-10-11 sinnum, prjónið A.5. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Lykkjum er fækkað mismunandi á ermum og fram- og bakstykki. Á ermum er úrtaka teiknuð inn í A.3 og A.5. Í hvert skipti sem A.3 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hefur lykkjum verið fækkað þannig að það er pláss fyrir 2 mynstureiningum færri af A.4. Á framstykki og bakstykki er lykkjum fækkað fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 24-28-32-36-40-44 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 140-140-144-148-156-164 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 17-20-23-26-29-31 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar var sett saman. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12-8-4-4-4-8 lykkjur jafnt yfir = 128-132-140-144-152-156 lykkjur. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff þannig – frá röngu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur brugðið, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #racethewindjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.