Willy skrifaði:
Plaats 2 steken op een kabelnaald en houd deze voor het werk, 1 recht, voeg de rechter naald vanaf de achterkant in tussen de 2 steken op de kabelnaald en brei de linker steek, laat de steek niet van de naald af glijden, brei dan de rechter steek zodat hij diagonaal over de andere 2 steken ligt en laat beide steken van de linker naald af glijden Kunt u dit beter uitleggen?
08.05.2022 - 19:31
Marja Stoelwinder skrifaði:
Wanneer is deze mooie trui beschikbaar? kan niet wachten hihi
11.03.2022 - 08:59
Josephine skrifaði:
Diamanter
18.01.2022 - 19:21
Dianne skrifaði:
The Gate
17.01.2022 - 22:30
Elma skrifaði:
Audrey
14.01.2022 - 21:13
Blue Glass#blueglasssweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa frá DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-34 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermi): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg, síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig til loka máls. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 180-198-210-228-252-276 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 2 cm, prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18-20-20-22-22-26 lykkjur jafnt yfir = 162-178-190-206-230-250 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 81-89-95-103-115-125 lykkjur (í hliðum á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-10 cm, prjónið næstu umferð þannig: 8-12-9-13-13-12 lykkjur sléttprjón, A.3A, A.3B er prjónað alls 4-4-5-5-6-7 sinnum, A.3C, sléttprjón út umferðina. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-34-35-36-37-38 cm, fellið af fyrir handvegi – stillið af að næsta umferð sé oddatala í mynsturteikningu og fellið af þannig: Byrjið 4-4-4-6-6-8 lykkjum á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 8-8-8-12-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 4-4-4-6-6-8 lykkjur á undan næsta prjónamerki, fellið af 8-8-8-12-12-16 lykkjur fyrir handveg og prjónið sléttprjón út umferðina. Setjið 73-81-87-91-103-109 lykkjur á framstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið bakstykkið eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: = 73-81-87-91-103-109 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 23-25-25-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 21-24-27-28-33-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 53-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 73-81-87-91-103-109 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar A.3 hefur verið prjónað alls 4½ sinnum á hæðina – endið eftir 12. umferð í mynsturteikningu, prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 48-48-49-51-52-54 cm (ca 1-2-2-2-3-3 cm sléttprjón eftir áferðamynstur). Í næstu umferð eru miðju 19-21-21-23-25-25 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 21-24-27-28-33-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 53-54-56-58-60-62 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 63-66-66-69-69-72 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 með DROPS Paris. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 6 cm, prjónið A.2 hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 13-14-14-15-13-14 lykkjur jafnt yfir = 50-52-52-54-56-58 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6-5-4½-4-3-2½ cm millibili alls 7-8-9-9-10-11 sinnum = 64-68-70-72-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 49-48-48-45-43-41 cm. Setjið lykkjur á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón fram og til baka frá miðju undir ermi, þar til ermin mælist 51-50-50-49-47-46 cm, þ.e.a.s. það er klauf ca 2-2-2-4-4-5 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg innan við ystu lykkju á framstykki/bakstykki. Síðan er klaufin efst á ermi saumuð við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI. Byrjið við öxl og prjónið upp frá réttu ca 81 til 99 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan og deilanlegt með 3) á stuttan hringprjón 4. Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur í 4 cm. Fellið aðeins laust af. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueglasssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.