DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Piece of Sky

Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu á öxlum og skrautkanti. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-50
DROPS Design: Mynstur as-169
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-125-150-150-175-200 g litur 14, morgunþoka

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4180.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (axlarsæti):

FRÁ RÉTTU:
Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og á UNDAN 2. og 4. prjónamerki
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

FRÁ RÖNGU:
Aukið út á EFTIR 4. og 2. prjónamerki og á UNDAN 3. og 1. prjónamerki.
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju í garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. Berustykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 98-104-104-110-116-122 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk.
Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka.
Nú á að prjóna rúllukant. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, * snúið lykkjunum á hægri prjóni 360 gráður þannig: Leggið þráðinn framan við stykkið, stingið hægri prjóni undir stykkið og upp framan við stykkið, prjónið síðan 6 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Tengið núna stykkið saman og prjónið í hring.
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 14-16-10-12-14-16 lykkjur jafnt yfir = 84-88-94-98-102-106 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig (prjónamerkin eru sett á milli 2 lykkja): Teljið 1 lykkju (axlalykkja), setjið 1. prjónamerki, teljið 40-42-45-47-49-51 lykkjur (bakstykki), setjið 2. prjónamerki, teljið 2 lykkjur (axlalykkjur), setjið 3. prjónamerki, teljið 40-42-45-47-49-51 lykkjur (framstykki), setjið 4. prjónamerki, nú er 1 lykkja eftir í umferð (axlalykkja).

Nú eru prjónaðar stuttar umferðir í sléttprjóni yfir aðra öxlina JAFNFRAMT er aukið út um 2 lykkjur fyrir öxl í hverri umferð þannig – sjá ÚTAUKNING:
Prjónið 3 lykkjur fram hjá 1. prjónamerki – munið eftir að auka út fyrir öxl, snúið, herðið á þræði og prjónið 3 lykkjur fram hjá 4. prjónamerki – munið eftir að auka út fyrir öxl, snúið, herðið á þræði, * prjónið 3 lykkjur fram hjá fyrri stuttu umferðinni – munið eftir að auka út fyrir öxl, snúið, herðið á þræði, prjónið 3 lykkjur fram hjá fyrri stuttu umferðinni í gagnstæðri hlið á stykki, snúið, herðið á þræði *, prjónið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið alls 10 stuttar umferðir í hvorri hlið, endið síðustu umferð við byrjun á umferð (á milli 2 lykkja á milli 1. og 4. prjónamerkis). Nú hafa verið auknar út 10 lykkjur við hvert prjónamerki.
Klippið þráðinn. Færið umferðina til þannig að byrjun á umferð verði mitt á milli 2 lykkja á milli 2. og 3. prjónamerkis og prjónið stuttar umferðir alveg eins yfir þessar lykkjur.
Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar eru 124-128-134-138-142-146 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Næsta umferð er prjónuð þannig (byrjun á umferð er áfram á milli 2. og 3. prjónamerkis):
1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir öxl, 60-62-65-67-69-71 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir öxl, 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju fyrir öxl, 60-62-65-67-69-71 lykkjur slétt, aukið út fyrir öxl, 1 lykkja slétt.
Haldið svona áfram og aukið út fyrir öxl í hverri umferð. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar aukið hefur verið út alls 17-19-21-24-28-33 sinnum (meðtalin útaukning í stuttu umferðum) eru 152-164-178-194-214-238 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 8-9-10-11-13-15 cm, þar sem það er breiðast.

Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt og setjið þessa lykkju á þráð fyrir ermi, prjónið 74-80-87-95-105-117 lykkjur sléttprjón (framstykki), prjónið 2 lykkjur slétt, setjið þessar 2 lykkjur á þráð fyrir ermi, prjónið 74-80-87-95-105-117 lykkjur sléttprjón, setjið síðan þessar lykkjur á þráð fyrir bakstykki, prjónið 1 lykkju slétt og setjið þessa lykkju á þráð fyrir ermi. Klippið þráðinn.

FRAMSTYKKI:
= 74-80-87-95-105-117 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og prjónið ystu lykkjuna í hvorri hlið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Nú er mælt frá þar sem lykkjurnar voru settar á þráð fyrir ermi.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 4. hverjum cm alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 68-74-79-87-97-109 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá skiptingu, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 80-86-91-99-109-121 lykkjur.
Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist ca 31-32-33-34-35-36 cm frá þar sem 6 lykkjur voru fitjaðar upp undir ermi, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 6-8-11-11-13-13 lykkjur jafnt yfir = 86-94-102-110-122-134 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið stroff, með byrjun frá röngu þannig:
1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni.
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka 74-80-87-95-105-117 lykkjur á bakstykki á hringprjón 5 og prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMI:
Byrjið þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir handvegi á bakstykki. Prjónið upp lykkjur frá réttu á hringprjón 5 þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, prjónið upp 23-25-26-28-30-31 lykkjur upp að 2 lykkjum sem settar voru á þráð (axlalykkjur), setjið þessar 2 lykkjur á prjóninn og prjónið þær slétt, prjónið upp 23-25-26-28-30-31 lykkjur niður að lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp á framstykki = 60-64-66-70-74-76 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki.
Fækkið lykkjum svona með 12-12-8-6-4-4 cm millibili alls 3-3-4-5-7-7 sinnum = 54-58-58-60-60-62 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 41-39-39-38-36-35 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið er út um 0-0-0-2-2-0 lykkjur jafnt yfir = 54-58-58-62-62-62 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig:
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stroffið mælist 6 cm.
Ermin mælist ca 47-45-45-44-42-41 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt, nema nú er byrjað þar sem lykkjur voru fitjaðar upp á framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið kant í hálsmáli saman mitt að aftan, innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-50

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Vaida wrote:

Pattern says "work 3 stiches past marker 1, remember to increase on the shoulder, turn, tighten the strand and work 3 stiches past marker 4... Work 3 stiches past the previous short row". Does increase is doing right after marker 1 then work 3 stiches, or first knit 3 stiches, then increase, turn and then how is second row? I don't understand this type of increase

02.03.2024 - 16:50

DROPS Design answered:

Dear Vaida, work as follows: work until marker-1, work the increase after the marker as indicated in INCREASE TIP, from the right side, work 3 stitches, turn. Now work back, work 3 stitches + the increased stitch, increase before marker-1 as indicated in INCREASE TIP, from the wrong side, and work until marker-4, increase after the marker as indicated in INCREASE TIP, from the wrong side, work 3 stitches, turn. Continue in the same way. Happy knitting!

04.03.2024 - 00:47

country flag Eija wrote:

Malli 230-50 piece of sky ohje on tasona voiko sen neuloa suljettuna?

30.01.2024 - 10:12

DROPS Design answered:

Pääntien reunus neulotaan tasona, mutta tämän jälkeen neulotaan suljettua neuletta.

06.03.2024 - 17:20

country flag Monique wrote:

Hi I am new to knitting, I crochet normally. In the increase section after working the short rows do you increase 17stitches in total? Because 124 (small) + 17 isn’t 152 st it’s 141? What does “(including the short rows)” mean? Also when you are knitting 60 then inc 1 it doesn’t line up evenly each round is that planned? Thanks for the help :)

22.01.2024 - 00:26

DROPS Design answered:

Dear Monique, you have to increase a total of 17 times, you already increased 10 times with the short rows = 84 sts + 10x4= 124 sts, you have to increase 7 more times: 124 +4x7= 152 sts. The increases should always be worked on same place, ie the number of sts between increases will increase by 2 after every increase round., on 2nd time you will work 62 sts, 3rd time 64 sts... Happy knitting!

22.01.2024 - 10:39

country flag Ute Neumann wrote:

Für dieses Modell PIECE OF SKY, Größe XL, mit Drops 230-50 Modell as -169, Garngruppe C, Apaca Silk..benötige ich WIEVIEL GRAMM ????????????? Dazu hatten wir heute/03.11.23 schon Mailes gesendet...leider ohne Ergebnis Ute Neumann

03.11.2023 - 22:23

DROPS Design answered:

Liebe Frau Neumann, die Garnmenge für jede Grösse finden Sie unten beim Kopfteil, so z.B. in S brauchen Sie 125 g DROPS Brushed Alpaca Silk / 25 g das Knäuel = 5 Knäuel werden in S gebraucht. Viel Spaß beim stricken!

06.11.2023 - 07:55

country flag ROBERT Maryse wrote:

Bonjour, je ne comprends pas comment faire les côtes mousse. 2rangs endroits???? Merci pour votre aide

29.09.2023 - 15:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Robert, pour former 1 côte mousse, on va tricoter 2 rangs endroit (1 rang endroit sur l'endroit + 1 rang endroit sur l'envers); au tout début, on va donc tricoter 6 rangs endroit au total pour avoir 3 côtes mousse. Dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter ce col, cela pourra peut-être vous aider? Bon tricot!

02.10.2023 - 08:54

country flag Vivian Eersels wrote:

Ik heb de verkorte naalden gedaan en begin nu met 1 recht , 1 meerderen , 62 recht.... Begin ik die rij eigenlijk in het midden van de schouder of op het einde ervan? Dit zijn 22 steken .

15.09.2023 - 22:40

DROPS Design answered:

Dag Vivian,

Je verplaatst het begin van de naald tussen markeerdraad 2 en markeerdraad 3 en dan in tussen de 2 steken die tussen die markeerdraden in zitten.

18.09.2023 - 20:30

country flag Mari wrote:

I will do this one in M, but I wonder how I can increase the with of the collar, as I want it a little bit wider as a boatneck ?

08.04.2023 - 20:07

DROPS Design answered:

Dear Mari, to increase the width you should cast on more stitches for the neck and then decrease more stitches, to reach the necessary yoke stitches (88), as long as your gauge matches the one in the pattern. You can see how to calculate a pattern here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=19 Take into account that this is still a round neck; to work a boat neck you should adapt your pattern to another one with a boat neck; you can find them in our collection by searching: "boat neck". Happy knitting!

08.04.2023 - 21:08

country flag Krystyna wrote:

Po markerze oznaczajacym poczatek okrazenia, gdzie umiescic nastepny marker? Po pierwszym oczku, czy po 47 oczku(rozmiar xl)

24.03.2023 - 19:56

DROPS Design answered:

Witaj Krysiu, ten pierwszy marker oznaczający początek okrążenia powinien być w innym kolorze niż 4 pozostałe i będzie cały czas w tym samym miejscu. Teraz umieszczasz 4 markery, bez przerabiania (markery są między 2 oczkami) - pierwszy z nich jest za 1 oczkiem, kolejny za 47 oczkami i dalej wg opisu - patrz KARCZEK. Pozdrawiamy!

27.03.2023 - 10:12

country flag Ingrid Quan wrote:

Bonjour, Comment savoir combien de pelotes seront nécessaires quand on choisit un modèle s'il vous plait? Merci beaucoup!

26.01.2023 - 14:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Quan, vous retrouverez systématiquement la quantité nécessaire pour chaque taille dans l'ordre indiqué, sous l'en-tête, autrement dit, il faut ici en taille S: 125 g DROPS Brushed Alpaca Silk/25 la pelote = 5 pelotes Brushed Alpaca Silk en taille S. Bon tricot!

26.01.2023 - 15:50

country flag Kieffer wrote:

Bonjour, Puis-je utiliser l'association de fils "DROPS Kid-Silk 16, violet foncé + DROPS Flora 09, améthyste" pour ce modèle ? Merci !

07.01.2023 - 08:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kieffer, pour toute assistance au choix des couleurs, merci de bien vouloir contacter directement votre magasin DROPS, on pourra vous aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

09.01.2023 - 08:56