Tina skrifaði:
I am not able to understand your instruction for making the armhole. It says 4 stitches 0-0-0-1-1-1 time on each side and so on. I am using circular needles . I am unable to go further and am stuck on this step. Please help, thanks Tina
12.11.2022 - 17:45DROPS Design svaraði:
Dear Tina, if you are working back and forth (even with circular needles), you cast off at the beginning of each row (from the right side and from the wrong side) as many times as explained (1 time is casting-off once on the right side AND the wrong side). If you are working in the round, you need to separate stitches for the back and front and then work back and forth. Happy knitting!
14.11.2022 - 00:28
Alia skrifaði:
Help. How to read the chart. New knitter to garments. Is it on R5: k3, k2tog, yo, repeat until last stitch, k1??? I end up with too many extra stitches.
07.11.2022 - 11:45DROPS Design svaraði:
Dear Allia, read more about diagrams here - row 5 will be worked here as follows: *K3, K2 tog, YO, K1*, repeat from *-* - the yarn over is compensated with the decrease, the number of stitches will remain the same. Happy knitting!
08.11.2022 - 09:26
Alia skrifaði:
I need help with the Fairy Woods Top chart. Do I knit a stitch after the yo? I'm a new garment knitter and don't understand a lot. Thanks.
07.11.2022 - 11:38DROPS Design svaraði:
Dear Allia, the stitches are all drawn in the chart, so that row 5 in A.1 is worked; *K3, K2 tog, YO, K1*, repeat from *-* and row 11 is worked: *K2 tog, YO, K4*, repeat from *-*. Happy knitting!
07.11.2022 - 16:04
Emma skrifaði:
Hello, This sweater comes in a size S but I need to make a smaller size, more like an XS. If I wanted to knit a smaller size, what would you recommend? Should I decrease the total amount of stitches by a certain number? Or knit with a smaller needle?
14.04.2022 - 16:48DROPS Design svaraði:
Dear Emma, You will need to calculate the necessary amount of stitches to work. Knowing your measurements and the stitches in the pattern and their equivalent in cm, you can deduce the amount of stitches you would need for your size. For example, if your measurement for the bust is 40 cm and in size S you cast on 102 stitches for 43 cm bust you would need (40x102)/43 = approx. 95 stitches. Before making the calculations, check the measurement schematic after the pattern instruction to see the measurements in cm for this garment; it's quite small, so you may not need to calculate a smaller size. Happy knitting!
14.04.2022 - 18:33
Josephina skrifaði:
Zo mooi, kan deze snel beschikbaar komen, wil hem zo graag breien.
14.03.2022 - 13:02
Cinnie skrifaði:
Lilac Vintage
19.01.2022 - 20:16
Cinnie skrifaði:
Lila Vintage
19.01.2022 - 20:15
Val skrifaði:
Capri
19.01.2022 - 15:15
Heini skrifaði:
Berry Porridge
17.01.2022 - 21:37
Linda skrifaði:
Still rain
14.01.2022 - 09:13
Fairy Woods Top#fairywoodstop |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-13 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar fram og til baka. Frágangur á toppnum er útskýrður í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 102-114-120-132-144-159 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-10-10-10-10-13 lykkjur jafnt yfir = 92-104-110-122-134-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 4 lykkjur 0-0-0-1-1-1 sinnum, 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-3-4-4-5-7 sinnum og 1 lykkja 3-4-4-5-5-6 sinnum = 76-78-80-82-84-86 lykkjur eftir á prjóni. Haldið áfram með A.1 – lykkjur í hvorri hlið sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 32-34-36-38-40-42 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 21-21-21-21-21-21 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið bakstykkið þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Nú eru 76-78-80-82-84-86 lykkjur í umferð. Setjið nú miðju 26-28-30-32-34-36 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð fyrir hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 21-21-21-21-21-21 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið laust upp 62-65-68-71-74-77 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 kantlykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju í öllum brugðnu einingum, aukið út með því að slá einu sinni uppá prjóninn í lokin á öllum 2 lykkjum brugðið. Í næstu umferð (ranga), eru allar lykkjur prjónaðar brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið = 82-86-90-94-98-102 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4 og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11 cm, fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni og 2 lykkjur 3 sinnum, fellið síðan af 1 lykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm. Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið í ermakúpu, saumið innan við 6 lykkjur garðaprjón í umferðinni efst á ermakúpu, þessar eru brotnar inn í ermi og gefa puffermunum stöðugleika efst í ermakúpu. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Notið stuttan hringprjón 3 og prjónið upp ca 87 til 111 lykkjur í kringum hálsmál, ásamt lykkjum af þræði að framan (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 3). Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að hálsmálið dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fairywoodstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.