Isa Jälkensjö skrifaði:
Jag stickar storleken med 72 maskor. Och hur jag än räknar så får jag inte 14 maskor kvar på stickan när jag satt i för raglanen.
16.05.2022 - 13:54DROPS Design svaraði:
Hei Isa. Om du strikker str. 1/3 legger du opp 72 masker, strikker vrangbord og deretter øker du med 12 masker = 84 masker før du skal sette de 4 merkene i arbeidet. Tell 13 masker, sett 1 merke i NESTE maske, tell 13 masker, sett 1 merke i NESTE maske, tell 27 masker, sett 1 merke i NESTE maske, tell 13 masker, sett 1 merke i NESTE maske. Det er 14 masker igjen på pinnen etter siste merke. Altså 13+1+13+1+27+1+13+1+14= 84 masker. mvh DROPS Design
16.05.2022 - 14:34
Stephanie Lynn Crone skrifaði:
Nevermind, I found the fourth marker. However, the markers don't add up. The pattern says 13,pm, 13, pm,27, pm, 13, pm with 14 left. That comes to 80 stitches, which now leaves me with 4 extra stitches with no place to go.
18.04.2022 - 20:41DROPS Design svaraði:
Dear Stephanie, you insert the marker in the stitch and not between stitches, so the 4 remaining stitches are the ones with stitch markers. Happy knitting!
18.04.2022 - 22:46
Stephanie Lynn Crone skrifaði:
Under "Yoke" the directions state that we will be inserting 4 markers but only the 3 are listed, where does the 4th one go?
18.04.2022 - 20:22DROPS Design svaraði:
Dear Stephanie, as stated under YOKE, you insert 4 markers: "Count 13-13-13-13 (13-13) stitches, insert marker in the next stitch, count 13 stitches, insert marker in the next stitch, count 25-27-25-27 (27-27) stitches, insert marker in the next stitch, count 13 stitches, insert marker in the next stitch".
18.04.2022 - 20:31
Harbour Highlights#harbourhighlightssweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og 2-lita klukkuprjóni. Stærð 0 - 4 ára.
DROPS Baby 43-19 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1 (prjónað með litnum ljós perlugrár): * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2 (prjónið með litnum sjávarþoka): * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 3 (prjónið með litnum ljós perlugrár) * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina (takið eftir að síðasti uppslátturinn lítur ekki út eins og venjulegur uppsláttur á prjóninum, en þráðurinn með litnum ljós perlugrár er á framhlið á stykki, leggið þráðinn yfir þannig að hann verði uppsláttur). Endurtakið umferð 2 og 3. LASKALÍNA: Aukið út um 4 lykkju í slétta lykkju með prjónamerki, í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan (= 16 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið 5 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar og sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni = 5 lykkjur (4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í mynstrið, en það er enginn klukkuprjónsuppsláttur í útaukningunni, þess vegna er lykkjan sem prjóna ætti saman með uppslætti í næstu umferð, prjónuð án uppsláttar. Síðan eiga prjónamerkin alltaf að sitja í miðju af 5 lykkjum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í 3. umferð í tveggja lita klukkuprjóni. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 4-4-4-4 (3-4) lykkjur eru á eftir lykkju með prjónamerki í, prjónið næstu 3 lykkjur (+ uppsláttur sem tilheyrir lykkjum) slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 3 næstu lykkju (+ uppslátturinn sem tilheyrir lykkjum) snúnar slétt saman (= 4 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-72-74-84 (84-84) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum sjávarþoka í DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 5-5-5-7 (7-7) umferðir stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan). Prjónið 2 umferðir sléttprjón og aukið jafnframt út um 12-12-6-0 (0-0) lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 80-84-80-84 (84-84) lykkjur. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá prjónamerki sem var sett í eftir stroff. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 13-13-13-13 (13-13) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 25-27-25-27 (27-27) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 12-14-12-14 (14-14) lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Byrjið með litnum ljós perlugrár og prjónið TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrsta skipti sem 3. umferð er prjónuð í tveggja lita klukkuprjóni, aukið einnig út fyrir LASKALÍNA í hverja lykkju með prjónamerki í – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í 8.-8.-8.-6.-6. (6.-6.) umferð alls 6-7-8-9 (10-11) sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 176-196-208-228 (244-260) lykkjur í umferð. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist ca 11-12-13-14 (15-16) cm frá prjónamerki við hálsmál – endið eftir 3. umferð í mynstri. Í næstu umferð (2. umferð í mynstri) skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 25-27-30-32 (35-38) lykkjur, setjið næstu 39-43-45-49 (51-53) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7 (7-7) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 49-55-59-65 (71-77) lykkjur, setjið næstu 39-43-45-49 (51-53) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7 (7-7) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 24-28-29-33 (36-39) lykkjur. Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-120-132-144 (156-168) lykkjur. Byrjið umferð í 4.-4.-5.-5. (4.-5.) lykkju sem fitjuð var upp undir ermi í annarri hlið á stykki. Prjónið tveggja lita klukkuprjón hringinn (byrjið í 3. umferð í mynstri). Munið að lykkjur sem voru fitjaðar upp undir ermi eru ekki með klukkuprjónsuppslætti í fyrstu umferð. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 1-4-5-2 (6-9) cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé 3. umferð í tveggja lita klukkuprjóni, prjónið A.1 alls 18-20-22-24 (26-28) sinnum hringinn á fram- og bakstykki. Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. tveggja lita klukkuprjón heldur áfram eins og áður, en í 12. hverri umferð, aukið út og fækkið lykkjum í mynstri eins og útskýrt er í A.1. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist ca 9-12-13-15 (17-20) cm frá skiptingu – endið eftir umferð með ör í A.1. Prjónið síðan með litnum sjávarþoka. Prjónið síðan 1 umferð slétt þar sem allir uppslættir eru prjónaðir saman með lykkjunni sem þeir tilheyra 108-120-132-144 (156-168) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-26-28-28 (32-32) lykkjur jafnt yfir = 132-146-160-172 (188-200) lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 24-28-30-33 (36-40) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 39-43-45-49 (51-53) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 2,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7 (7-7) lykkjum undir ermi = 44-48-52-56 (58-60) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í 3.-3.-4.-4. (4.-4.) lykkju sem prjónuð var upp undir ermi. Prjónið tveggja lita klukkuprjón hringinn (byrjið á 3. umferð í mynstri og munið eftir að lykkjurnar sem voru prjónaðar upp mitt undir ermi eru ekki með klukkuprjónsuppslætti í fyrstu umferð). Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, byrjar úrtaka undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3-3 (6-6) cm millibili alls 1-2-2-3 (3-3) sinnum = 40-40-44-44 (46-48) lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 7-10-12-13 (18-22) cm – endið eftir umferð með litnum sjávarþoka og haldið síðan áfram með litinn sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allir uppslættir eru prjónaðir slétt saman með lykkjunni sem þeir tilheyra = 40-40-44-44 (46-48) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-2-2-2 (4-4) lykkjur jafnt yfir = 42-42-46-46 (50-52) lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 9-12-14-15 (20-24) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #harbourhighlightssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.