Sarah Lamont skrifaði:
I cannot work out how to incorporate the raglan increases into the pattern. Please advise how I work the increased stitches in rows 3-5 of the English Rib. Are yarn overs ever put into these stitches? If not, what do I do where the pattern requires me to knit the slipped stitch and yarn over together? This is in the back and forth English Rib in the yoke. Thank you.
23.06.2022 - 10:55DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lamont, this video shows how to increase 4 stitches in English rib (2-colours), and how to work the new stitches on next row. Hope it will help you to understand how to increase at each raglan and how to work the new stitches afterwards. These yarn overs are worked as increases, so that on next row you will work them either K or P but not "together with the yarn over" since there isn't any; but the video should help you. Happy knitting!
23.06.2022 - 13:05
Susanne skrifaði:
Ich habe die Halsblende in der kleinsten Größe gestrickt und versuche gerade, die Maschenmarkierer einzubringen. Allerdings bleiben mir nach 9, 13, 21 und 13 Maschenmarkierer noch 13 Maschen, nicht 9 Maschen übrig. Vielen Dank für Ihre Hilfe.
10.06.2022 - 17:39
Dikte skrifaði:
I diagram A2 kan jeg ikke forstå hvordan der både tages ind og ud. Efter der er taget to måske ud (sort felt), slås om og løftes eb maske af (streg( og så strikkes omslag og maske sammen (trekant) som før i helpatent. Hvornår tages der ind?
13.05.2022 - 16:36DROPS Design svaraði:
Hei Dikte. Her var det feil i den danske teksten (stod samme tekst som til ikonet over, er nå fikset). Du minker/tages inn når du strikker den sorte "trekanten" som er tegnet over 3 masker. Diagramteksten: = tag 2 masker ind således: Strik de næste 3 masker (+ omslagene som hører til maskerne) ret sammen (= 2 masker taget ind). mvh DROPS Design
16.05.2022 - 08:07
Bettina skrifaði:
Leider stimmt die Mengenangabe nicht, für 3/4 Jahre benötigt man 150 g ja je Farbe. Musste nachbestellen, war sehr ärgerlich . 2 mal Porto. Mit freundlichen Grüßen Bettina
11.05.2022 - 13:12
Bernadette skrifaði:
I've knitted the neck and am now placing markers for the yoke. There are 69 stitches on the needle in all. I placed market's at 9, 13, 21 13 and the pattern says there should be 9 stitches left after the last marker, but 9 +13+21+13+9 = 65 not 69, so I'm left with 4 stitches extra at one side. What am I doing wrong here?
13.04.2022 - 12:51DROPS Design svaraði:
Dear Bernadette, you need to place the marker in the next stitch and not between stitches. This way, you have 69 stitches. Happy knitting!
14.04.2022 - 18:25
Harbour Highlights Cardigan#harbourhighlightscardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og 2-lita klukkuprjóni. Stærð 0 - 4 ára.
DROPS Baby 43-18 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH. Lykkjur eru prjónaðar eins og útskýrt er í mynsturteikningu hvort sem prjónað er frá réttu eða röngu, en þegar prjónað er frá röngu er hver mynsturteikning lesin frá vinstri til hægri og frá röngu er mynsturteikning lesin í gagnstæðri röð en þegar lesið er frá réttu. LEIÐBEININGAR: Ef þú ert ekki viss um hvaða lit á að prjóna í næstu umferð, þá getur þú alltaf séð hvaða litur er í fyrri umferð sem prjónað var með í lit á kanti í kantlykkju. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (prjónað frá röngu með litnum ljós perlugrár): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (prjónið frá réttu með litnum ljós perlugrár): 1 lykkja slétt, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt. Færið til baka lykkjur að hinni hliðinni á hringprjóninum (án þess að snúa stykkinu), þannig að næsta umferð sé prjónuð frá sömu hlið og þessi umferð. UMFERÐ 3 (prjónað frá réttu með litnum sjávarþoka): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (prjónað frá röngu með litnum ljós perlugrár): 1 lykkja slétt, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, prjónið 1 lykkju slétt. Færið lykkjurnar til baka að hinni hliðinni á hringprjóninum (án þess að snúa stykkinu), þannig að næsta umferð sé prjónuð frá sömu hlið og þessi umferð. UMFERÐ 5 (prjónað frá röngu með litnum sjávarþoka): 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt. Endurtakið umferð 2-5. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar): UMFERÐ 1 (prjónað með litnum ljós perlugrár): * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2 (prjónað með litnum sjávarþoka): * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina (athugið, síðasti uppslátturinn lítur ekki út eins og uppsláttur á prjóninum, en þráðurinn með litnum ljós perlugrár er á framhlið á stykki, leggið þráðinn yfir þannig að það myndist uppsláttur). Endurtakið umferð 1 og 2. LASKALÍNA: Aukið út um 4 lykkju í slétta lykkju með prjónamerki, í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan (= 16 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið 5 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn þannig: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar og sleppið lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni = 5 lykkjur (4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í mynstrið, en það er enginn klukkuprjónsuppsláttur í útaukningu, þess vegna er lykkjan sem prjóna ætti saman með uppslætti í næstu umferð, prjónuð án uppsláttar. Síðan eiga prjónamerkin alltaf að sitja í miðju af 5 lykkjunum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í 1. umferð í A.1. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru á eftir lykkju með prjónamerki í, prjónið næstu 3 lykkjur (+ uppsláttur sem tilheyrir lykkjum) slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 3 næstu lykkju (+ uppslátturinn sem tilheyrir lykkjum) snúnar slétt saman (= 4 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Að lokum eru kantar prjónaðir að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 81-85-85-95 (97-99) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum sjávarþoka í DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 2-2-2-4 (4-4) umferðir stroff, fellið af fyrir 1 hnappagati í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, fellið af 2 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir lykkjur sem felldar voru af. Þegar prjónaðar hafa verið alls 5-5-5-7 (7-7) umferðir stroff, setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið brugðið yfir næstu 69-73-73-83 (85-87) lykkjur og fækkið jafnframt um 0-0-4-0 (2-4) lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið síðustu 6 lykkjur slétt, snúið stykkinu, fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 69-73-69-83 (83-83) lykkjur. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá prjónamerki sem var sett eftir stroff. BERUSTYKKI: Setjið 4 prjónamerki frá réttu í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 9-11-9-13 (13-13) lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 21-21-21-27 (27-27) lykkjur, setjið 1 lykkju í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 9-11-9-13 (13-13) lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Byrjið frá röngu með litnum ljós perlugrár og prjónið TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í næstu umferð (rétta), aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri lykkju með prjónamerki í – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 0-0-2-2 (2-3) sinnum og síðan í 8. hverri umferð alls 7-8 (7-7-8-8) sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 181-201-213-227 (243-259) lykkjur í umferð. Prjónið án útaukninga þar til stykkið mælist ca 11-12-13-14 (15-16) cm frá prjónamerki við hálsmál – endið eftir 4. umferð í mynstri. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig (= 5. umferð í mynstri): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 26-28-31-33 (35-38) lykkjur, setjið næstu 39-43-45-49 (51-53) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7 (7-7) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 51-59-61-63 (71-77) lykkjur, setjið næstu 39-43-45-49 (51-53) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7 (7-7) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 26-28-31-33 (35-38) lykkjur. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 113-125-137-143 (155-167) lykkjur. Byrjið frá réttu með 2. umferð í tveggja lita klukkuprjóni og haldið áfram fram og til baka eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (munið að lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum hafa ekki klukkuprjónsuppslátt í fyrstu umferð). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 1-4-5-2 (6-9) cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé 2. umferð í tveggja lita klukkuprjóni, prjónið mynstur frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, A.1, prjónið A.2 alls 18-20-22-23 (25-27) sinnum, A.3, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka, þ.e.a.s. tveggja lita klukkuprjón heldur áfram eins og áður, en í 12. hverri umferð (prjónað frá réttu með litnum ljós perlugrár), aukið út og fækkið lykkjum í mynstri eins og útskýrt er í A.3. Haldið áfram með A.1 til A.3 þar til stykkið mælist ca 9-12-13-15 (17-20) cm frá skiptingu – endið eftir umferð með ör í A.3. Prjónið síðan með litnum sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem allir uppslættir eru prjónaðir slétt saman með lykkjunni sem þeir tilheyra 113-125-137-143 (155-167) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið jafnframt út um 20-26-26-26 (30-30) lykkjur jafnt yfir = 133-151-163-169 (185-197) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 24-28-30-33 (36-40) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 39-43-45-49 (51-53) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 2,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7 (7-7) lykkjum undir ermi = 44-48-52-56 (58-60) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í 3.-3.-5.-5. (5.-5.) lykkju undir ermi. Prjónið TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – prjónað í hring – passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram eftir berustykki og munið eftir að lykkjurnar sem prjónaðar voru upp mitt undir ermi eru ekki með klukkuprjónsuppslætti í fyrstu umferð. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, byrjar úrtaka undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3-3 (6-6) cm millibili alls 1-2-2-3 (3-3) sinnum = 40-40-44-44 (46-48) lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 7-10-12-13 (18-22) cm – endið eftir umferð með litnum sjávarþoka og haldið síðan áfram með litinn sjávarþoka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allir uppslættir eru prjónaðir slétt saman með lykkjunni sem þeir tilheyra = 40-40-44-44 (46-48) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-2-2-2 (4-4) lykkjur jafnt yfir = 42-42-46-46 (50-52) lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 9-12-14-15 (20-24) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki, notið hringprjón 2,5 og litinn sjávarþoka og prjónið upp ca 61-71-77-85 (93-105) lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni upp þar sem lykkjur voru felldar af í kanti í hálsmáli. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kantur að framan mælist 1 cm, fellið af fyrir 4-4-4-4 (5-5) hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera staðsett ca 1½ til 2 cm frá neðri kanti. Fella á af fyrir efsta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. Þau 3-3-3-3 (4-4) hnappagöt sem eftir eru eiga að vera staðsett jafnt yfir á milli efsta og neðsta hnappagata. 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. Prjónið áfram þar til kanturinn að framan mælist ca 1½ til 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu efst í hálsmáli í vinstra framstykki þar sem lykkjur voru felldar af í kanti í hálsmáli, notið hringprjón 2,5 og litinn sjávarþoka og prjónið upp jafnmargar lykkjur og á hægra framstykki. Prjónið stroff á sama hátt og í hægri kanti að framan þar til kanturinn að framan mælist ca 1½ til 2 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #harbourhighlightscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.