Susan England skrifaði:
Is the yarn used from A+A or C? You have stated the yarn is MUSKAT which in group B
25.03.2022 - 18:55DROPS Design svaraði:
Dear Susan, there seems to be a mistake. DROPS Muskat, a yarn from Group B is the one used in the pattern. We will correct it as soon as possible. Thank you. Happy knitting!
26.03.2022 - 19:41
Sofie Deylgat skrifaði:
Sunny side
01.02.2022 - 11:44
Marisa skrifaði:
Bello come il sole
19.01.2022 - 11:09
Hedwig skrifaði:
Ich würde das Modell Springdream nennen
19.01.2022 - 10:07
Heini Marmela skrifaði:
Midsummer Sun
17.01.2022 - 14:40
Drahomíra Rezlerová skrifaði:
Žluťásek
16.01.2022 - 16:43
Nicole Vandenberghe skrifaði:
Summer time
15.01.2022 - 13:13
Deba skrifaði:
Sunbeam
15.01.2022 - 04:28
Sabine skrifaði:
Origin
14.01.2022 - 23:01
Ilona skrifaði:
Sommer liebe
14.01.2022 - 18:12
Sunny Song#sunnysongtop |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum / bolur úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og köðlum. Stærð S-XXXL.
DROPS 231-5 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við öll prjónamerkin í umferð (8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið og fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. BERUSTYKKI: Fitjið upp 114-120-126-132-138-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.1 – umferðin byrjar mitt að aftan. Þegar prjónað hefur verið til og með umferð merktri með ör í mynsturteikningu, skiptið yfir á hringprjón 4. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina = 228-240-252-264-276-288 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og aukið út um 2-8-16-24-20-34 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 230-248-268-288-296-322 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 34-36-39-43-46-51 lykkjur (hálft bakstykki), 2. prjónamerki eftir 47-52-56-58-56-59 lykkjur (ermi), 3. prjónamerki eftir 68-72-78-86-92-102 lykkjur (framstykki) og 4. prjónamerki eftir 47-52-56-58-56-59 lykkjur (ermi). Nú eru 34-36-39-43-46-51 lykkjur fram að 1. prjónamerki (hálft bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón og í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 6-8-9-10-12-13 sinnum = 278-312-340-368-392-426 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni án útaukninga þar til stykkið mælist 23-24-25-26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið frá byrjun á umferð þannig: Prjónið 40-44-48-53-58-64 lykkjur slétt, setjið næstu 59-68-74-78-80-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur á prjóninn, prjónið 80-88-96-106-116-128 lykkjur slétt, setjið næstu 59-68-74-78-80-85 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur á prjóninn og prjónið 40-44-48-53-58-64 lykkjur slétt. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig og héðan er nú stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-212-232-256-280 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-17 cm frá skiptingu. Prjónið 2 umferðir slétt og í fyrstu umferð er aukið út um 19-21-22-23-23-23 lykkjur jafnt yfir = 195-213-234-255-279-303 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 59-68-74-78-80-85 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna / hringprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 67-76-84-88-92-97 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 1½-1½-1-1-1½-2 cm millibili alls 4-5-6-5-4-3 sinnum = 59-66-72-78-84-91 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 8-8-7-7-7-6 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 10-9-12-12-12-14 lykkjur jafnt yfir = 69-75-84-90-96-105 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Felið aðeins laust af. Ermin mælist ca 10-10-9-9-9-8 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunnysongtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.