Lucilla skrifaði:
Buongiorno! Io non riesco a capire come vengono realizzate le spalline. Mi potete aiutare? Grazie!
11.05.2022 - 16:25DROPS Design svaraði:
Buonasera Lucilla, le spalline sono lavorate con i-cord. Provi a vedere se questo video le può essere di aiuto. . Buon lavoro!
02.07.2022 - 21:48
Chiara skrifaði:
Grazie per la risposta veloce. Ma ho chiesto una cosa un po' diversa. Sul dietro sono state intrecciate SOLO 5 maglie per lato. Sul davanti avete scritto che bisogna intrecciare 10 maglie (alla fine della parte uno e 5 maglie all'inizio della parte 2). È corretto o è un errore? Grazie mille
08.05.2022 - 20:48DROPS Design svaraði:
Buonasera Chiara, per la taglia S si intrecciano 5 maglie alla fine del paragrafo "davanti" (parte I) e 5 maglie nella parte II. Buon lavoro!
08.05.2022 - 21:30
Chiara skrifaði:
Buongiorno ho lavorato già il dietro. Ora sto lavorando il davanti. Sono arrivata alla PARTE DUE. Il pattern dice di intrecciare 5 maglie per lo scalfo. Ma le 5 maglie per lo scalfo sono state intrecciate alla fine della PARTE UNO. E' un errore o bisogna intrecciare dieci maglie (per il dietro sono state intrecciate solo 5 maglie) Grazie mille
08.05.2022 - 20:25DROPS Design svaraði:
Buonasera Chiara, si intrecciano 5 maglie per lato per lo scalfo, sia sul davanti che sul dietro. Sul dietro si intrecciano 5 maglie all'inizio di 2 ferri successivi. Buon lavoro!
08.05.2022 - 20:40
Julia skrifaði:
Does “Between two stitches make one yarn over” mean you knit or purl the stitch on either side of the yarn over? Or do you slip them? I’m just not sure what to do with the stitches On either side of the yard over.
30.04.2022 - 23:52DROPS Design svaraði:
Dear Julia, work the first /fifth row in A.1 as follows: P1, K1, YO, K1, P1 (there are now 5 sts); on the next row work the yarn over in the front loop to create a hole. On the next row from right side, work: P1, knit 3, pass the first of these 3 sts over the 2 other (1 stitch decreased), P1. Happy knitting!
02.05.2022 - 08:42
Mija Jeon skrifaði:
Oh, I realize the A1 counts for 4 stitches. so, it works.
05.04.2022 - 13:26
Mija Jeon skrifaði:
I am working a size M. Before starting on the front piece, after the rib, I cannot quite make the numbers work. There are 100 sts in total, but If I add all the numbers (1 edge st + 47 stocking sts + 5 for A1, 47 stocking sts + 1 edge st) they come to 101. Is my way of calculation wrong?? thank you.
05.04.2022 - 13:20DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Jeon, A.1 is worked over 4 sts on first row and you get then 5 sts after row 1 and on row 2, 5 and 6 . Happy knitting!
05.04.2022 - 16:39
Kerstin skrifaði:
Day in the south
18.01.2022 - 20:20
Kristina Køstner skrifaði:
Super fin til både teenageren og os mere voksne😉
18.01.2022 - 10:44
VIVIANNE VERRY skrifaði:
SWEET SPRING
17.01.2022 - 15:00
Louise Murphy skrifaði:
Meadow
16.01.2022 - 08:38
White Sails#whitesailstop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á framstykki og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju innan við ystu 2 lykkjur frá hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um handveg og v-hálsmál): FRÁ RÉTTU: Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). FRÁ RÖNGU: Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið þessar 2 lykkjur snúnar brugðið saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Böndin á öxlum / hlýrar er prjónað á framstykki og síðan saumað við bakstykki. Að lokum eru hliðarsaumar saumaðir. BAKSTYKKI: Fitjið upp 100-112-122-136-150-166 lykkjur á prjóna 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-12-12-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 90-100-110-122-136-150 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 98-108-118-130-144-158 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-8-10-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Eftir 4 umferðir garðaprjón eru felldar af 5-7-9-11-13-15 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu tveimur umferðum = 88-94-100-108-118-128 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 16-17-18-19-21-22 sinnum í hvorir hlið = 56-60-64-70-76-84 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-7-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir = 63-67-71-77-85-93 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 2,5. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Fellið aðeins laust af. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 100-112-122-136-150-166 lykkjur á prjóna 2,5 með DROPS Safran. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-12-12-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 90-100-110-122-136-150 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 42-47-52-58-65-72 lykkjur sléttprjón, A.1, 42-47-52-58-65-72 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 98-108-118-130-144-158 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 26-27-28-29-30-31 cm (stillið af að næsta umferð sé 3. eða 7. umferð í A.1), prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-8-10-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni og mynstri eins og áður). Eftir 4. umferðir garðaprjón er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 5-7-9-11-13-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið 42-45-48-52-57-62 lykkjur sléttprjón, setjið 2 næstu lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 næstu lykkjur slétt saman og setjið síðan þessar 43-46-49-53-58-63 lykkjur á hægri prjóni á þráð eða hjálparprjón = STYKKI-1. STYKKI-2: Prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni snúnar slétt saman, prjónið 41-44-47-51-56-61 lykkjur sléttprjón og 6-8-10-12-14-16 lykkjur í sléttprjóni. Snúið stykkinu, fellið af 5-7-9-11-13-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni = 43-46-49-53-58-63 lykkjur. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli. Lykkjum er fækkað í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA, en lykkjum er fækkað mismunandi fyrir handveg og v-hálsmáli. Lestu því kaflann HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. HANDVEGUR: Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 16-17-18-19-21-22 sinnum. V-HÁLSMÁL: Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmál í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls 7-7-9-9-13-17 sinnum og síðan í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 15-17-17-18-17-17 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 5-5-5-7-7-7 lykkjur eftir fyrir bandi á öxl / hlýri. BAND Á ÖXL / HLÝRI: = 5-5-5-7-7-7 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, * færið lykkjurnar til að byrjun á umferð, herðið á þræði og prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til bandið /hlýri mælist ca 9-9-10-11-11-11 cm (5-5-5-6-6-6 cm tilheyrir framstykki og 4-4-5-5-5-5 cm tilheyrir bakstykki) – bandið /hlýri er saumað við bakstykkið, stillið e.t.v. að óskaðri lengd á bandi / hlýra. Klippið þráðinni, þræðið þráðinn í gegnum 5-5-5-7-7-7 lykkjur, herðið á þræði og festið vel. STYKKI-1: Setjið til baka 43-46-49-53-58-63 lykkjur frá STYKKI-1 á prjón 3. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli. Fækkið lykkjum alveg eins og í STYKKI-2 = 5-5-5-7-7-7 lykkjur eftir fyrir band / hlýra. Prjónið bandið / hlýra alveg eins og á stykki-2. FRÁGANGUR: Saumið bandið á öxl / hlýra við bakstykki – yst í hvorri hlið. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitesailstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.