DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Prairie Rose Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-4
DROPS Design: Mynstur mb-064
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
600-650-700-800-850-950 g litur 01, natur

DROPS TALA NR 512: 5-5-5-6-6-6 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki og ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um hálsmál þegar fækkað er um 1 lykkju):
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í sléttprjóni.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 LYKKJUR Í SLÉTTPRJÓN ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 LYKKJUR Í SLÉTTPRJÓNI ÞANNIG:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir við miðju að framan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 síðustu lykkjur í sléttprjóni (= 1 lykkja færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = sláið 1 sinni uppá prjóninn innan við ystu 3 lykkjur í umferð (frá réttu). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt saman við þriðju síðustu lykkjuna í umferð.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 5, 14, 24, 33 og 43 cm.
M: 5, 15, 25, 35 og 45 cm.
L: 6, 16, 26, 36 og 46 cm.
XL: 6, 14, 23, 31, 40 og 48 cm.
XXL: 6, 15, 23, 32, 40 og 49 cm.
XXXL: 6, 15, 24, 33, 42 og 51 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka. Síðan eru stykkin sett saman og framstykkin og bakstykkið eru prjónuð fram og til baka frá miðju að framan og upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkin prjónuð til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í stroffprjóni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 95-105-113-127-141-153 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur – ATH: Fyrsta og síðasta lykkjan í umferð er prjónuð slétt frá réttu og brugðið frá röngu. Prjónið þar til stroffið mælist 6 cm, endið eftir umferð frá röngu og geymið stykkið og prjónið framstykkin eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 55-61-65-71-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm, endið stroffið eftir umferð frá röngu, geymið stykkið og prjónið hægra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 55-61-65-71-79-85 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) út umferðina. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Endið stroffið eftir umferð frá röngu. Setjið nú stykkin saman eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið hægra framstykkið, bakstykkið og vinstra framstykkið á sama hringprjón 5 = 205-227-243-269-299-323 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið jafnframt um 53-59-63-69-79-83 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 152-168-180-200-220-240 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki 41-45-48-53-58-63 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 70-78-84-94-104-114 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, prjónamerkin eru notuð þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.

Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 18-18-19-19-20-20 cm = 160-176-188-208-228-248 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið 41-45-48-51-54-57 lykkjur eins og áður (framstykki), fellið af 4-4-4-8-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-78-84-90-96-102 lykkjur sléttprjón (bakstykki), fellið af 4-4-4-8-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 41-45-48-51-54-57 lykkjur eins og áður (framstykki). Bakstykkið og framstykkin er prjónuð til loka hvert fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 70-78-84-90-96-102 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 28-30-30-32-32-34 lykkjur fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu því kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram.

HÁLSMÁL:
Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum – sjá ÚRTAKA.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 5-5-6-7-7-8 lykkjur á þráð 3 sinnum og síðan síðustu 4-7-7-6-9-8 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráð.
Setjið til baka 19-22-25-27-30-32 lykkjur af þræði á hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en til að koma í veg fyrir göt þar sem snúið er við mitt í stykkinu, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið brugðið saman við fyrstu lykkju frá vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti og að efst á öxl.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 41-45-48-51-54-57 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm, setjið ystu 13-14-14-15-15-16 lykkjur mitt að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir aflíðandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu því kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram.

HÁLSMÁL:
Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni og 2 lykkjur 1 sinni. Fækkið síðan um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum – munið eftir ÚRTAKA.

SKÁHALLANDI ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandiöxl alveg eins og á bakstykki.
Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af og settar á þráð, setjið 19-22-25-27-30-32 lykkjur af þræði til baka á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu alveg eins og á bakstykki og fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti og að efst á öxl.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki.

ERMI:
Fitjið upp 36-38-38-40-42-42 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Big Merino.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 2-2-2-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 38-40-40-44-46-46 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 19-20-20-22-23-23 lykkjur. Prjónamerkið merkir mitt undir ermi og mitt á ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, prjónamerkin eru notuð þegar auka á út.
Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir sléttprjón eftir stroffið, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 6-6-7-7-7-8 sinnum á hæðina = 62-64-68-72-74-78 lykkjur (skiptið e.t.v. yfir í stuttan hringprjón 5 þegar nægilega margar lykkjur eru í umferð).
Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 51-49-49-47-44-42 cm.
Prjónið nú sléttprjón fram og til baka frá miðju undir ermi, þar til ermin mælist 52-50-50-49-48-47 cm, þ.e.a.s. það er klauf ca 1-1-1-2-4-5 cm efst á erminni. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana.
Saumið ermakúpuna við handveg innan við ystu lykkjuna á framstykki/bakstykki. Síðan er klaufin efst á erminni saumuð við botninn á handveginum – sjá teikningu.
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu og prjónið upp ca 86 til 100 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út jafnt yfir til 103-107-109-111-115-119 lykkjur (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, fram og til baka í 4 cm. Fellið aðeins laust af.

Mynstur

symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Mila wrote:

The instructions about the shoulders are very unclear. I have no clue what to do here.

09.04.2024 - 15:42

DROPS Design answered:

Dear Mila, you will work short rows on shoulder stitches to shape diagonal shoulders: slip the first stitches at the beg of row from armhole (from RS on right shoulder back piece/ on left shoulder front piece and from WS on left shoulder back piece/on right shoulder front piece). This video shows (for another pattern, this means with a different number of stitches) how to work such a diagonal shoulder. Happy knitting!

10.04.2024 - 07:57

country flag Sara wrote:

Ang sned axel. Jag får hur jag än gör ändå stora hål. Kan ni beskriva mer tydligt vilken tråd som ska lyftas och mellan vilka maskor? Har läst beskrivningen 20 ggr och testat fram och tillbaka men tycker inte det blir bra.

02.04.2024 - 21:03

DROPS Design answered:

Hei Sara. Husk å strikke tråden som hentes opp vridd vrang sammen med første maske på venstre pinne. Et lite hull vil det nok alltid bli. mvh DROPS Design

08.04.2024 - 11:54

country flag Sara wrote:

Jag förstår inte det här med knapphålet helt. Den beskrivning som finns i mönstret ger inte mig ngt knapphål, har testat flera ggr och repat upp osv osv. Sedan följt instruktion i länkad film, det är då inte samma lösning som står i texten. Den ger ett knapphål men det blir väldigt trångt för rekommenderad knapp. Kan ni förtydliga hur man ska göra? Samt vore bra om mönster och instruktionsfilm matchade. Nu blir det väldigt förvirrande.

08.03.2024 - 16:55

DROPS Design answered:

Hej Sara. Det ska bli ett knapphål om du följer mönstret, men det finns väldigt många olika sätt att göra knapphål på. Tycker du inte detta blir bra så kan du testa ett annat sätt. Denna video visar ett annat sätt där du får ett större knapphål. Mvh DROPS Design

13.03.2024 - 09:42

country flag Sara wrote:

Har ni missat info på svenska delen med rätstickning. När jag läser den norska och eng så verkar det som man ska sticka dubbla varv eller liknande?

19.02.2024 - 15:21

DROPS Design answered:

Hej Sara. Nej det är inget som saknas i den svenska översättningen. I detta mönster används bara uttrycket rätstickning ( i vissa andra används "1 rille" på norska och det översätts med 2 varv rätstickning på svenska), så följ bara mönstret så blir det riktigt. Mvh DROPS Design

21.02.2024 - 08:45

country flag Sara wrote:

När ska rundsticka 5 som är 40 Respektive 80 cm användas?

16.02.2024 - 21:35

DROPS Design answered:

Hej Sara, du bruger den lange når du strikker fram och bakstycke og den korte til ærmerne :)

23.02.2024 - 10:45

country flag Jagna wrote:

Cześć Jak zamykać oczka na podkroje rękawów? Nigdzie we wzorze tego nie znalazłam. Jaka metodą?

31.01.2024 - 06:43

DROPS Design answered:

Cześć Jagno, zamykasz oczka na podkroje rękawów tak samo jakbyś kończyła robótkę. Zobacz video TUTAJ. Pozdrawiamy!

31.01.2024 - 08:03

country flag Lisa wrote:

Hej! Jag har kommit så långt som till ärmen nu, och kan se att det står att man ska sticka ett sprud på 1 cm mitt under ärmen - men borde det inte vara mitt på ärmen? Eller är jeg helt fel på det? Tänker så det blir rätt när man syr fast ärmen med den andra delen.

13.01.2024 - 15:41

DROPS Design answered:

Hej Lisa, sprundet skal passe ind nederst i ærmegabet. Du kan se på skitsen hvor det skal sys sammen :)

16.01.2024 - 12:10

country flag Juliana wrote:

Guten Tag, ich würde Sie gern um Hilfe beim Stricken der Vorderteilen bitten. In der Anleitung ist geschrieben, dass bei 42 cm bei S-Größe sollen die Maschen für Halsausschnitt stillgelegt werden. Gleichzeitig aber sollte noch ein Knopfloch bei der Länge von 43 cm einarbeitet werden. Ist dann das Knopfloch in der Halsblende? Danke für die Unterstützung. Liebe Grüße

19.11.2023 - 22:08

DROPS Design answered:

Liebe Juliana, ja genau, das letzte Knofploch liegt an der Halsblende. Viel Spaß beim stricken!

20.11.2023 - 11:24

country flag C S wrote:

Er nået til venstre forstykke ved indtagning til hals og skråskulder. Men jeg har ikke helt knækket koden til det i skriver. Hvis de 13 første masker (ved kanten) sætte på snor, hvordan skal det så foregå med at der først lukkes 3 m af også 2 m af og derefter indtagninger i alt 4 gange. Hvordan kan det alt i alt blive reduceret til 19 m til de skrå skuldre som bagstykket også har ? På forhånd tak ! Håber i kan hjælpe, så den kan blive færdig :)

13.09.2023 - 20:55

country flag Nosiba wrote:

Hei, hva er vanskelighetsgrad i denne oppskrift? :)

27.08.2023 - 18:22

DROPS Design answered:

Hei Nosiba Ingen vanskelige teknikker på denne jakken, så den er lett å strikke. Kanskje noen vil ha litt vanskelig å få monteringen pent, men ingen umulig oppgave :) Bare les oppskriften godt, se på hjelpevideoer, og evnt legg inn Spørsmål her om man står fast. Lykke til . mvh DROPS Design

28.08.2023 - 14:23