DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Prairie Rose Set

Prjónaður toppur og stuttbuxur úr DROPS Big Merino. Toppurinn er prjónaður neðan frá og upp í stroffprjóni. Stuttbuxurnar eru prjónaðar ofan frá og niður í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-3
DROPS Design: Mynstur mb-066
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-600-650-700-750 g litur 01, natur

TOPPUR:

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL
Vegna stroffprjóns kemur stykkið til með að dragast saman og verða minni en sem segir til um í mynsturteikningu, en stykkið er með mikinn teygjanleika, þannig að best er að prjóna þá stærð sem þú notar vanalega.

EFNI:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-250-250-250-300 g litur 01, natur

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ S:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 60 cm.

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ M - L - XL - XXL - XXXL:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm. ATH: Stroffprjónið kemur til með að draga stykkið saman.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

STUTTBUXUR:

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL
EFNI:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-500 g litur 01, natur

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ S:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ M - L - XL - XXL - XXXL:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 60 cm.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um handveg á topp):
Fækkið lykkjum innan við 2 lykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 2 LYKKJUR Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 2 LYKKJUR Í GARÐAÐRJÓNI ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 2 lykkjur garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni.

ÚTAUKNING (á við um stuttbuxur):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig til loka máls.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-160-176-192-208-224 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 72-80-88-96-104-112 lykkjur. Prjónamerkin merkja hliðar á fram- og bakstykki – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.

Nú er prjónað stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 lykkju brugðið.
Haldið svona áfram með stroff. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 10-10-10-18-18-18 lykkjur í hvorri hlið (prjónamerki situr mitt í þessum 10-10-10-18-18-18 lykkjum – aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar í stroffprjóni eins og áður).
Í fyrstu umferð eftir 4 umferðir í garðaprjóni, fellið af fyrir handvegi þannig: Fellið af 3-3-3-7-7-7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, 62-70-78-78-86-94 lykkjur stroff eins og áður (byrjið og endið með 2 lykkjur slétt), 2 lykkjur í garðaprjóni, fellið af 6-6-6-14-14-14 lykkjur (prjónamerki situr mitt í þessum 6-6-6-14-14-14 lykkjum), prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, 62-70-78-78-86-94 lykkjur stroff (byrjið og endið með 2 lykkjur slétt), 2 lykkjur í garðaprjóni, fellið af síðustu 3-3-3-7-7-7 lykkjur. Klippið þráðinn. Framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 66-74-82-82-90-98 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með stroff fram og til baka með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona fyrir handveg í annarri hverri umferð alls 0-0-4-0-3-2 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4-4-4-4-5-6 sinnum = 58-66-66-74-74-82 lykkjur. Haldið áfram með stroff með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 27-29-30-32-33-35 cm, fellið af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu 10-10-14-14-18-18 lykkjur eins og áður og setjið þær síðan á þráð fyrir band á öxl, fellið af 38-46-38-46-38-46 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið eins og áður yfir síðustu 10-10-14-14-18-18 lykkjur. Prjónið síðan band á öxl / hlýra eins og útskýrt er að neðan.

BAND Á ÖXL / HLÝRI:
= 10-10-14-14-18-18 lykkjur. Prjónið stroff fram og til baka eins og áður með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 34-36-38-40-42-44 cm frá uppfitjunarkanti (band á öxl / hlýri mælist ca 7-7-8-8-9-9 cm). Fellið af.
Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 4,5 og prjónið band á öxl / hlýri á sama hátt og á fyrria bandi á öxl / hlýra.

FRAMSTYKKI:
= 66-74-82-82-90-98 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki, fellið af fyrir hálsmáli og prjónið band á öxl / hlýra á sama hátt og á bakstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið saman böndin á öxl / hlýra innan við affellingarkantinn efst á hvorri öxl.

-------------------------------------------------------

STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Til að stuttbuxurnar verði aðeins hærri mitt að aftan, prjónið upphækkun. Stykkið er prjónað áfram í hring áður en það skiptist fyrir skálmar. Hvor skálm er prjónuð í hring á hringprjóna hvor fyrir sig, ofan frá og niður. Að lokum er tvinnuð snúra þrædd í gatakant í mitti.

KANTUR:
Fitjið upp 128-144-152-168-192-208 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 lykkju slétt.
Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið gataumferð fyrir snúru þannig: 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið saman, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman og endið með 1 lykkju slétt.
Haldið áfram með stroffið með 2 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið þar til kanturinn mælist 6 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-2-4-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 130-146-156-172-198-214 lykkjur. Prjónið síðan stuttbuxurnar eins og útskýrt er að neðan.

STUTTBUXUR:
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið upphækkun þannig: Byrjið frá réttu við merkiþráðinn, prjónið 8-9-10-11-12-13 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið 16-18-20-22-24-26 lykkjur brugðið, snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið 24-27-30-33-36-39 lykkjur slétt, snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið 32-36-40-44-48-52 lykkjur brugðið.
Haldið svona áfram fram og til baka með því að prjóna yfir 8-9-10-11-12-13 lykkjur fleiri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónað hefur verið fram og til baka yfir alls 96-108-120-132-144-156 lykkjur (ekki er prjónað yfir miðju 34-38-36-40-54-58 lykkjur mitt að framan).
Þegar upphækkunin hefur verið gerð til loka, prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Stuttbuxurnar mælast nú ca 5 cm hærri að miðju að aftan.

Setjið 6 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja.
Skiptið út merkiþræðinum mitt að aftan með prjónamerki, teljið 24-27-29-32-38-41 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 17-19-20-22-23-25 lykkjur (í hlið á stuttbuxum), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 24-27-29-32-38-41 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju (mitt að framan), teljið 24-27-29-32-38-41 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 17-19-20-22-23-25 lykkjur (í hlið á stuttbuxum), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, það eru 24-27-29-32-38-41 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 2-3-3-3-3-4 cm mælt eftir stroff mitt að framan, aukið út um 1 lykkju á UNDAN hverju prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 6 lykkjur fleiri) – ATH. Til að sleppa við að færa prjónamerkið mitt að aftan, gerið útaukningu á undan þessu prjónamerki í lok umferðar.
Þegar stykkið mælist 5-6-6-6-6-7 cm mælt eftir stroff mitt að framan, aukið út um 1 lykkju á EFTIR hverju prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING (= 6 lykkjur fleiri).
Aukið svona út til skiptis á undan og á eftir 6 prjónamerkjunum með 3 cm millibili alls 6 sinnum = 166-182-192-208-234-250 lykkjur (munið eftir að útaukningin á undan prjónamerki mitt að aftan er gerð í lok umferðar).
Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm mælt eftir stroffi mitt að framan, fjarlægið prjónamerkin úr stykkinu.
Nú er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 84.-92.-97.-105.-118.-126. lykkju í umferð (mitt að aftan og mitt að framan).
Í næstu umferð er aukið út bæði á UNDAN og á EFTIR lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverri umferð alls 6 sinnum = 190-206-216-232-258-274 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 27-28-29-30-31-32 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.

Nú skiptist stykkið við bæði prjónamerkin og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. Setjið fyrstu 95-103-108-116-129-137 lykkjur á stuttan hringprjón 5 og látið þær 95-103-108-116-129-137 lykkjur sem eftir eru á hringprjón 5. Klippið þráðinn.

SKÁLM:
= 95-103-108-116-129-137 lykkjur. Fitjið upp 3-3-4-4-5-5 lykkjur í byrjun á umferð, prjónið sléttprjón yfir 95-103-108-116-129-137 lykkjur og fitjið upp 3-3-4-4-5-5 lykkjur í lok umferðar = 101-109-116-124-139-147 lykkjur.
Tengið stykkið saman og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 4-5-6-7-8-9 cm, eða að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 31-35-36-36-41-45 lykkjur jafnt yfir = 132-144-152-160-180-192 lykkjur.
Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Skálmin mælist ca 8-9-10-11-12-13 cm.
Setjið lykkjur af annarri skálminni á stuttan hringprjón 5 og prjónið á sama hátt og fyrri skálm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op á milli skálma, þ.e.a.s. saumið sauminn á lengdina frá miðju að framan og að miðju að aftan í de 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið á hvorri skálm.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 3 þræði Big Merino ca 3½-3½-4½-4½-5½-5½ metrar, tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið þá saman tvöfalda og þá koma þeir til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda.
Byrjið mitt framan á stuttbuxunum og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferðina í kantinum.

Mynstur

diagram measurements
diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Martine Pousset wrote:

Bonjour je voudrais faire se modèle pour ma petite fille mais je ne tricoté qu avec des aiguilles droites et non circulaires je voulais savoir si c est le même nombres de mailles et faire pareil je vous remercie d avance

16.04.2024 - 21:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pousset, cette leçon va vous donner quelques pistes pour pouvoir adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

17.04.2024 - 08:29

country flag Isabelle wrote:

I am at the point where my body work for the tank top reached 19cm. I am confused about the DECREASE TIP and other decreases that are listed on the garter stitch. It is unclear whether I should decrease before starting the first row of garter stitches or not. Could you clarify when to start decreasing the armholes? Is the DECREASE TIP only for the back piece?

16.04.2024 - 16:28

DROPS Design answered:

Dear Isabelle, the DECREASE TIP tells you to decrease inside the garter stitch, that is, at the beginning of the row, after the two stitches knitted at the edge with gater stitch, at the end of the row just before the two last stitch, that is knitted with garter stitch. Happy Crafting!

16.04.2024 - 21:51

country flag Robin wrote:

I am starting the back piece—are the decreases only done on the right side and the rib pattern continues with the knitting done on the wrong side.? Just a little confused.

18.03.2024 - 07:56

DROPS Design answered:

Dear Robin, the decreases for armholes are worked on every row from right side, decrease as explained under DECREASE TIP (applies to armholes on singlet):, at the same time work in rib as before with 2 edge sts in garter stitch on each side (decreases are worked inside these 2 sts). Happy knitting!

18.03.2024 - 15:09

country flag Robin wrote:

Where are the 18 stitches supposed to be in the singlet pattern to do the garter stitch? I am working on the body and have a total of 208 stitches. With markers at the beginning and again at 104 stitches.

14.03.2024 - 19:39

DROPS Design answered:

Dear Robin, the 18 sts in garter stitch will be worked on both sides of body, on either side of markers, ie you will work in garter stitch 9 sts before the marker + 9 sts after the marker and repeat at the other marker. Happy knitting!

15.03.2024 - 08:20

country flag Robin wrote:

I am working on the body of the singlet and am at the point where you are to do garter stitch over middle of 18 stitches. The pattern says the thread marker is in the middle. I am not sure where the 18 stitches are. I have a total of 208 stitches and markers at the beginning and after 104 stitches.

14.03.2024 - 19:36

country flag Sarah wrote:

How many yards of yarn are required for the shorts? I want to use a different yarn so the weight will be different.

11.02.2024 - 00:48

DROPS Design answered:

Dear Sarah, you can calculate the yards of yarn from the yardage of the yarn used. 50g of Big Merino = 82 yards. From here, you can obtain how many yards of yarn you will need for your size. Happy knitting!

11.02.2024 - 23:15

country flag Niccolò wrote:

Vorrei fare i pantaloni, ma non ho capito una cosa: le misure del campione si riferiscono al lavoro con i ferri 5mm? Io ho ottenuto il campione con i 4,5 quindi devo fare le coste con quelli del 3,5? grazie mille in anticipo

14.12.2023 - 17:55

DROPS Design answered:

Buonasera Niccolò, è corretto, se ha raggiunto il campione con i ferri n° 4,5 mm farà le coste con i ferri n° 3,5 mm. Buon lavoro!

15.12.2023 - 21:46

country flag Djoyce wrote:

Hi, I’m having trouble with the shorts pattern: It says to increase before every marker thread until the piece measures 6cm from the rib edge. I’ve increased every row, for 3 cm and now I have more stitches in the needle than it’s mentioned in the pattern. Am I supposed to only increase every 3cm rather than increase throughout until the piece has the required measurement?

08.11.2023 - 22:24

DROPS Design answered:

Dear Djoyce, you first increase 1 stitch before each marker thread (= 6 sts increased), then next time (after 3 cm) you will increase 1 stitch after each marker thread (= 6 sts increased). Repeat these increases a total of 6 times (4 more times) = you will have increased 6 sts a total of 6 times on every 3rd cm = 36 sts. Happy knitting!

09.11.2023 - 08:33

country flag Malin wrote:

Hei! Jeg bare lurte på hvorfor man må ha både rundpinne 4 og 4,5 for toppen? Er det mulig å strikke med bare en av størrelsene?

13.08.2023 - 00:39

DROPS Design answered:

Hei Malin, Man legger opp og strikker første delen av vrangbord med pinnestørrelse 4, slik at den sitter tettere til kroppen. Også bytter man til størrelse 4.5 for resten av toppen. God fornøyelse!

14.08.2023 - 06:52

country flag Ella wrote:

I was wondering how much negative ease you recommend for this pattern? Also is the measurements of the garment taken not stretched, stretched, or roughly stretched.

03.08.2023 - 14:31

DROPS Design answered:

Hi Ella, To get the shape shown in the photograph, use the body measurements given in the measurements chart to work the correct size. Happy knitting!

04.08.2023 - 06:41