Emma skrifaði:
Hi there, I’m trying to read diagram A and am getting very lost! I don’t understand how the diagram is 4 stitches wide, isn’t it 5? I also don’t understand what it means by yarning over inbetween 2 stitches. Could I have some clarity please. Thanks x
13.09.2026 - 03:45DROPS Design svaraði:
Hi Emma, Yes, A.1 is 5 stitches in width. The yarn over between 2 stitches means that you work 1 stitch, make a yarn over, then work the next stitch. Regards, Drops Team.
13.09.2026 - 20:51
Thea skrifaði:
Wilt u aub mijn vorige vraag verwijderen.... 42 plus 7 is 41 .....en dat is precies goed .
17.08.2026 - 16:49DROPS Design svaraði:
Dag Thea,
Goed om te horen dat je eruit gekomen bent. Je vraag is verwijderd. Veel breiplezier!
19.08.2026 - 09:55
Larue Françoise skrifaði:
Merci pour ce modèle très facile à réaliser. Fanfan
28.07.2026 - 17:34
Anne skrifaði:
Hei, kan eg bruke Drops Cotton Viscose til denne toppen? Har liggende 400 gram som eg ynskjer å bruke :-)
24.07.2026 - 22:01DROPS Design svaraði:
Hei Anne, Ja. Cotton Viscose også tilhører garngruppe A slik at det kan brukes til denne oppskriften. Hilsen Drops team.
26.07.2026 - 06:48
Karin skrifaði:
Leider hab ich bei original Garn und Nadeln nicht die gewünschte Grösse erreicht. Sprich bei 2,5 er Nadel und 112 Maschen keine 41 cm bei grösse M. Musste auf 3.5er Nadeln wechseln.....
14.07.2026 - 13:13
Kathinka skrifaði:
Hoe brei ik de bandjes? Brei 1 naald recht aan de goede kant, * duw de steken terug naar het begin van de naald, trek de draad aan en brei de 5-5-5-7-7-7 steken aan de goede kant opnieuw recht * Ik begrijp niet hoe ik dit moet doen? Ik kan toch niet opnieuw rechtbreien een de goede kant?
13.07.2026 - 09:51DROPS Design svaraði:
Dag Kathinka,
Je breit inderdaad recht aan de goede kant (zorg dat je een naald zonder knop hebt) en duw de steken dan weer terug. De draad zit nu aan de andere kant, maar toch ga je opnieuw aan dezelfde kant breien. De draad trekt het werk aan de achterkant waardoor je uiteindelijk een soort tube breit.
14.07.2026 - 20:59
Catherine skrifaði:
Bonjour, je suis bloqué pour compte les bretelles, vous donnez des consignes pour les rangs endroits , mais que fait on pour les rangs envers ?
12.07.2026 - 18:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, vous ne tricotez que sur l'endroit. Regardez la video ICI. Bon tricot!
20.07.2026 - 15:41
Grażyna skrifaði:
Zamykanie oczek na lewej stronie robótki: - jak wykonać 2 oczka razem przekręcone na lewo?
02.07.2026 - 22:06DROPS Design svaraði:
Witaj Grażyno, jak to zrobić znajdziesz TUTAJ. Pozdrawiamy!
03.07.2026 - 08:27
Aisling skrifaði:
Hi, in the A1 pattern when it says no stitch here go to next symbol, does this mean I slip that stitch? Sorry if I'm being silly I just can't get my head around it. Thanks
19.06.2026 - 19:53DROPS Design svaraði:
Dear Aisling, when you see the black square in the diagram, this means there is no stitch yet there; for ex on first row in A.4 you work over 4 sts: (P1, K1, YO, K1, P1) then you get 5 sts; on 3rd row you will decrease 1 stitch (slip 1, k2, psso) - there remain 4 sts. Happy knitting!
22.06.2026 - 07:29
Katelijn skrifaði:
Welke maat kies ik best? Hebben jullie een matentabel?
18.05.2026 - 22:55DROPS Design svaraði:
Dag Katelijn,
Onderaan het patroon staat een maattekening waarin alle afmetingen staan voor iedere maat. Je zou deze het best kunnen vergelijken met een bestaand kledingstuk dat je goed zit en aan de hand daarvan de maat bepalen. Meer informatie over kledingmaten kun je ook op kledingmaat.nl vinden.
19.05.2026 - 20:40
White Sails#whitesailstop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Safran eða DROPS Magic. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-1 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBREININGAR ÚTAUKNING (á við um í hliðum á framstykki og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju innan við ystu 2 lykkjur frá hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um handveg og v-hálsmál): FRÁ RÉTTU: Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). FRÁ RÖNGU: Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur brugðið saman (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju, prjónið þessar 2 lykkjur snúnar brugðið saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka, hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Böndin á öxlum / hlýrar er prjónað á framstykki og síðan saumað við bakstykki. Að lokum eru hliðarsaumar saumaðir. BAKSTYKKI: Fitjið upp 100-112-122-136-150-166 lykkjur á prjóna 2,5 með DROPS Safran eða DROPS Magic. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-12-12-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 90-100-110-122-136-150 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 98-108-118-130-144-158 lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-8-10-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Eftir 4 umferðir garðaprjón eru felldar af 5-7-9-11-13-15 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu tveimur umferðum = 88-94-100-108-118-128 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 16-17-18-19-21-22 sinnum í hvorir hlið = 56-60-64-70-76-84 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-7-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir = 63-67-71-77-85-93 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 2,5. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3 cm. Fellið aðeins laust af. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 100-112-122-136-150-166 lykkjur á prjóna 2,5 með DROPS Safran eða DROPS Magic. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-12-12-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 90-100-110-122-136-150 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 42-47-52-58-65-72 lykkjur sléttprjón, A.1, 42-47-52-58-65-72 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 6 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 98-108-118-130-144-158 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 26-27-28-29-30-31 cm (stillið af að næsta umferð sé 3. eða 7. umferð í A.1), prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir ystu 6-8-10-12-14-16 lykkjur í hvorri hlið (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni og mynstri eins og áður). Eftir 4. umferðir garðaprjón er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: Fellið af 5-7-9-11-13-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið 42-45-48-52-57-62 lykkjur sléttprjón, setjið 2 næstu lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 næstu lykkjur slétt saman og setjið síðan þessar 43-46-49-53-58-63 lykkjur á hægri prjóni á þráð eða hjálparprjón = STYKKI-1. STYKKI-2: Prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni snúnar slétt saman, prjónið 41-44-47-51-56-61 lykkjur sléttprjón og 6-8-10-12-14-16 lykkjur í sléttprjóni. Snúið stykkinu, fellið af 5-7-9-11-13-15 lykkjur fyrir handveg, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni = 43-46-49-53-58-63 lykkjur. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli. Lykkjum er fækkað í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, en lykkjum er fækkað mismunandi fyrir handveg og v-hálsmáli. Lestu því kaflann HANDVEGUR og V-HÁLSMÁL áður en þú prjónar áfram. HANDVEGUR: Fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 16-17-18-19-21-22 sinnum. V-HÁLSMÁL: Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmál í hverri umferð (bæði frá réttu og frá röngu) alls 7-7-9-9-13-17 sinnum og síðan í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 15-17-17-18-17-17 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 5-5-5-7-7-7 lykkjur eftir fyrir bandi á öxl / hlýri. BAND Á ÖXL / HLÝRI: = 5-5-5-7-7-7 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, * færið lykkjurnar til að byrjun á umferð, herðið á þræði og prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til bandið /hlýri mælist ca 9-9-10-11-11-11 cm (5-5-5-6-6-6 cm tilheyrir framstykki og 4-4-5-5-5-5 cm tilheyrir bakstykki) – bandið /hlýri er saumað við bakstykkið, stillið e.t.v. að óskaðri lengd á bandi / hlýra. Klippið þráðinni, þræðið þráðinn í gegnum 5-5-5-7-7-7 lykkjur, herðið á þræði og festið vel. STYKKI-1: Setjið til baka 43-46-49-53-58-63 lykkjur frá STYKKI-1 á prjón 3. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli. Fækkið lykkjum alveg eins og í STYKKI-2 = 5-5-5-7-7-7 lykkjur eftir fyrir band / hlýra. Prjónið bandið / hlýra á sama hátt og á stykki-2. FRÁGANGUR: Saumið bandið á öxl / hlýra við bakstykki – yst í hvorri hlið. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitesailstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.