Hanne skrifaði:
Det står at bolen strikkes rundt på rundpinne, men i oppskriften står det at bakstykket strikke frem og tilbake først, og deretter forstykket frem og tilbake. Og at delene skal syes sammen etterpå.
31.03.2022 - 11:25DROPS Design svaraði:
Hei Hanne, Ja, du har rett at bolen er strikket i deler, fram og tilbake etter bærestykket er delt for ermehullene. Sidesømmene er sydd til slutt. God fornøyelse!
01.04.2022 - 06:58
Sabine Adam skrifaði:
Vielen Dank!
22.03.2022 - 22:20
Sabine Adam skrifaði:
Vielen Dank für Ihre schnelle Antwort! Hestetømmekant oder Hestetømmeaflukning stammt aus einer dänischen Strickanleitung und es handelt sich glaube ich um das Arbeiten eines Randes (kant = Kante), wie ich in YouTube gesehen habe. Ich wüsste gerne, wie das auf Deutsch heißt. Viele Grüße
18.03.2022 - 21:46DROPS Design svaraði:
Liebe Sabine, es handelt sich dabei um den I-Cord-Rand, mit dem abgekettet wird. Im Deutschen nennt sich die I-Cord auch Strickkordel. Auf unserer Homepage finden Sie unter Videotutorials -> Strickvideos -> Abketten das Video "Wie man mit einem Kordel-Rand (I-Cord-Rand) abkettet". Viel Spaß beim Stricken!
22.03.2022 - 20:14
Sabine Adam skrifaði:
Danke, aber das soll ein Strickmuster sein..........
18.03.2022 - 15:25DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Adam, was meinen Sie hier? Es gibt kein Diagram für dieses Modell, es wird - wie in der Anleitung geschrieben - mit Rippenmuster (1 Masche rechts verschränkt / 2 Maschen links) oder glat rechts gestrickt. Oder misverstehe ich Ihre Frage?
18.03.2022 - 15:27
Sabine Adam skrifaði:
Guten Tag, können Sie mir sagen, was 'Hestetømmeaflukning' oder 'Hestetømme' (dänisch) auf Deutsch bedeutet? Vielen Dank. Sabine Adam
17.03.2022 - 23:07DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Adam - nach Google Übersetzer bedeutet das "Pferdeentleerung".
18.03.2022 - 09:38
Sonja skrifaði:
Hübsches Modell. Watercolors
08.02.2022 - 19:50
Nina skrifaði:
En rigtig stor trøje Navn BEDST
17.01.2022 - 17:10
Drahomíra Rezlerová skrifaði:
Pruhované rolo
16.01.2022 - 16:47
Dawn Mist#morningdawnsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu á öxlum og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-50 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Byrjið frá réttu við prjónamerki mitt að aftan, prjónið 6-6-7-7-7-8 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 12-12-14-14-14-16 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 18-18-21-21-21-24 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 24-24-28-28-28-32 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-30-35-35-35-40 lykkjur slétt (hér verður þú að auka einnig út fyrir öxl eins og útskýrt er í uppskrift – útauknar lykkjur eru ekki taldar með), snúið, herðið á þræði og prjónið 36-36-42-42-42-48 lykkjur brugðið (munið eftir útaukning fyrir öxl). Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að prjónamerki mitt að aftan (munið eftir útaukningu fyrir öxl). Upphækkun hefur nú verið gerð til loka og aukið hefur verið út alls 2 sinnum fyrir öxl (8 lykkjur). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. ÚTAUKNING-1 (frá réttu): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (frá röngu – á einungis við þegar upphækkun er prjónuð): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 57-60-63-66-69-72 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-2-1-0-3-2 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62-66-66-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan) – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið berustykkið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 7. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan). Að auki eru sett 2 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvort prjónamerki er sett í lykkju. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir öxl og prjónamerkin verða að hafa annan lit en prjónamerki mitt að framan til að aðgreina þau. Fyrra prjónamerki: Byrjið mitt að aftan, teljið 13-14-15-16-16-17 lykkjur (½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju. Seinna prjónamerki: Teljið 26-28-30-32-32-34 lykkjur frá 1. prjónamerki (framstykki), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 13-14-15-16-16-17 lykkjur eftir á bakstykki eftir 2. Prjónamerki. Látið þessi 2 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út hvoru megin við þessi prjónamerki. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lestu útskýringu að ofan. Takið vel eftir að útaukning á öxlum er gerð samtímis sem 3 síðustu umferðir í upphækkun eru prjónaðar – lestu því einnig kaflann ÚTAUKNING Á ÖXL og ÚTAUKNING-2 (þegar prjónað er frá röngu). Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í útaukning á öxl. ÚTAUKNING Á ÖXL: Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eru auknar út 4 lykkjur fyrir öxl þannig: Aukið út á UNDAN og á EFTIR lykkju með 1. og 2. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Haldið svona áfram og aukið út alveg eins í hverri umferð alls 13-15-16-18-22-24 sinnum = 106-118-126-138-154-166 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 1 umferð þar sem lykkjum með prjónamerki er fækkað = 104-116-124-136-152-164 lykkjur. Klippið þráðinn. Haldið lykkjum á bakstykki (lykkjum á milli fyrra og seinna prjónamerki) á prjóni og setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð fyrir framstykki. Nú eru 52-58-62-68-76-82 lykkjur fyrir bakstykki og 52-58-62-68-76-82 lykkjur fyrir framstykki. BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm meðfram kanti frá skiptingu, fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið = 54-60-64-70-78-84 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (þau eru notuð þegar ermar eru prjónaðar). Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm mælt meðfram kanti frá skiptingu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 11-11-13-13-17-17 lykkjur jafnt yfir = 65-71-77-83-95-101 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúna slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 16 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur af þræði frá framstykki á hringprjón 7 og prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Ermin er prjónuð ofan frá og niður. Byrjið við prjónamerki á framstykki, prjónið upp 22-24-26-27-28-29 lykkjur upp að öxl og 22-24-26-27-28-29 niður að prjónamerki á bakstykki = 44-48-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7½-6½-5-4½-4½-3½ cm millibili alls 6-7-8-9-9-10 sinnum = 32-34-36-36-38-38 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 46-45-44-43-41-40 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-3-6-4-7 lykkjur jafnt yfir = 36-36-39-42-42-45 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna, prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist alls 52-51-50-49-47-46 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt, en prjónið fyrst upp lykkjur frá bakstykki og upp að öxl, síðan niður að prjónamerki á framstykki. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma, en skiljið eftir neðstu 18 cm = klauf. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morningdawnsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-50
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.