Renata skrifaði:
Vorrei fare il bordo a coste 1/1, invece che a maglia rasata. Questo cambia qualcosa nello svolgimento successivo? Grazie.
02.03.2025 - 22:14DROPS Design svaraði:
Buongiorno Renata, le conviene avviare più maglie per il bordo, dal momento che la lavorazione a coste tende a stringere il lavoro. Buon lavoro!
03.03.2025 - 08:57
Sigrid skrifaði:
Tere, Leidsin mustris vea. Kohe kehaosa alguses on kirjas “…koo 3 ringi parempidises koes. Koo 1 ring pahempidi (= murdejoon), siis koo 3 cm parempidises koes.” Inglise keeles on mustri selgituses 3 cm (mitte ringi), 1 ring pahembidi ja uuesti 3cm parempidi. Ma tegin nagu eesti keeles kirjas 3 ringi ja siis murdejoon. Nii jäi mul alumine osa üles rulluma.
04.05.2024 - 17:53
Amanda skrifaði:
I currently working this pattern and was doing a read through, wondered why the sleeve length is shorter in the larger sizes (making a size XL). At first I figured it was to make the split in the sleeve longer, but then I realised the overall length is also shorter. Any clarity would be much appreciated
17.10.2022 - 21:58DROPS Design svaraði:
Hi Amanda, The sleeve lengths are shorter in the larger sizes due to longer yoke and wider shoulder measurements. Happy crafting!
18.10.2022 - 07:08
Cathrine Sandberg skrifaði:
Den kunne jeg tenkt meg å strikke :)
18.03.2022 - 12:44
Val skrifaði:
Bonbon
19.01.2022 - 15:14
Bea skrifaði:
Väldigt fint spetsmönster. Ser utmanande ut. Kul!
18.01.2022 - 22:47
Purlyplatypus skrifaði:
Ivory lace
14.01.2022 - 07:15
Ana skrifaði:
Muy bonito
13.01.2022 - 22:01
@ena_teje skrifaði:
Frutos del bosque
13.01.2022 - 16:40
Honey Joy#honeyjoysweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með býkúpumynstri / gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-38 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp með mynstri á framstykki og sléttprjóni á bakstykki. Lykkjur eru felldar af fyrir handveg, síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 156-168-184-200-220-240 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð brugðið (uppábrot). Prjónið síðan 3 cm sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 78-84-92-100-110-120 lykkjur (í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Fyrsta umferð er prjónuð í sléttprjóni þannig: Prjónið 17-20-20-24-25-30 lykkjur, aukið út 5-5-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir næstu 44-44-52-52-60-60 lykkjur, prjónið út umferðina. Nú eru 83-89-99-107-119-129 lykkjur á framstykki og 78-84-92-100-110-120 lykkjur á bakstykki (alls 161-173-191-207-229-249 lykkjur í umferð). Næsta umferð er prjónuð þannig: 17-20-20-24-25-30 lykkjur í sléttprjóni, A.1, A.2 er prjónað alls 3-3-4-4-5-5 sinnum, A.3, A.4, sléttprjón út umferðina. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm frá uppábroti, fellið af fyrir handvegi – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynsturteikningu og fellið af þannig: Byrjið 1-2-4-4-7-9 lykkjur á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 2-4-8-8-14-18 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 1-2-4-4-7-9 lykkjur á undan næsta prjónamerki, fellið af 2-4-8-8-14-18 lykkjur fyrir handveg og prjónið sléttprjón út umferðina. Setjið 81-85-91-99-105-111 lykkjur frá framstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið bakstykkið eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: = 76-80-84-92-96-102 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm frá uppábroti, fellið af miðju 30-32-34-34-36-38 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 21-22-23-27-28-30 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppábroti. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 81-85-91-99-105-111 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 16-18-16-20-18-21 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-50-51-52-54-56 cm frá uppábroti, fækkið um 3-3-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir miðju 33-33-35-35-37-37 lykkjur = 78-82-86-94-98-104 lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru miðju 22-24-26-26-28-30 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 21-22-23-27-28-30 lykkjur eftir á öxl. ATH: Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað við hálsmál, prjónast í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm frá uppábroti. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 40-42-44-46-48-50 lykkjur á sokkaprjóna 5 með DROPS Air. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið 1 umferð brugðið (uppábrot). Prjónið síðan 3 cm í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6-8-5-8-5-7 cm frá uppábroti, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 12-13-14-14-15-16 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48-48-46-45-43-41 cm frá uppábroti. Setjið lykkjur á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón fram og til baka frá miðju undir ermi, þar til ermin mælist 49-49-49-48-48-47 cm, þ.e.a.s. það er klauf ca 1-1-3-3-5-6 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg innan við ystu lykkju á framstykki/bakstykki. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Brjótið inn kantinn neðst á fram- og bakstykki að röngu og saumið kantinn niður, en passið uppá að saumurinn dragist ekki saman. Brjótið inn kanta neðst á ermum að röngu og saumið niður á sama hátt. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við öxl og prjónið upp frá réttu ca 80-84-88-92-96-100 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan og deilanlegt með 2) á stuttan hringprjón 4. Prjónið sléttprjón í 3 cm, prjónið 1 umferð brugðið (uppábrot) og prjónið 3 cm sléttprjón. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5 og fellið aðeins laust af. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #honeyjoysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.