Luminous Sand |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-37 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 58 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 41) = 1,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca hverja og aðra hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá skiptingu á milli bakstykkis og hægri ermi, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-108-117-117-126-126 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Prjónið nú allar 2 lykkjur brugðið saman til 1 lykkja brugðið = 72-72-78-78-84-84 lykkjur (= lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm. Nú eru prjónaðar kúlur hér, nákvæmlega þar sem brotið er uppá tvöfaldan kant í hálsmáli: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 3 lykkjur + 2 uppslættir í eina lykkju), prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina = 120-120-130-130-140-140 lykkjur. UMFERÐ 2 og 3: * Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 5 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 4: * Prjónið fyrstu/næstu 6 lykkjur (= 5 lykkjur + 1 lykkja brugðið) slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina = 72-72-78-78-84-84 lykkjur. UMFERÐ 5: * Prjónið 1 lykkju snúna slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Haldið áfram hringinn með stroffi (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 11 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli saman tvöfaldan og við frágang þá verður hann ca 5 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki hér, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 72-72-76-80-84-84 lykkjur (þ.e.a.s. fækkað er um 2 lykkjur í M og aukið er út um 2 lykkjur í XXL. Í stærð S, L, XL og XXXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út). Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Fyrsta prjónamerki: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi). Annað prjónamerki: Hoppið yfir næstu 10 lykkjur (= hægri ermi), setjið 2. prjónamerki hér. Þriðja prjónamerki: Hoppið yfir næstu 26-26-28-30-32-32 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki hér. Fjórða prjónamerki: Hoppið yfir næstu 10 lykkjur (= vinstri ermi), setjið 4. prjónamerki hér. Nú eru 26-26-28-30-32-32 lykkjur eftir í umferð eftir 4. prjónamerki (= bakstykki). Prjónið nú mynstur þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.3 yfir næstu 2 lykkjur, 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 20-20-22-24-26-26 lykkjur, A.3 yfir næstu 2 lykkjur, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram hringinn og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 16-18-20-20-20-22 sinnum (aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu – svarti uppslátturinn er útaukning fyrir laskalínu og endurtakið mynstur á hæðina) = 200-216-236-240-244-260 lykkjur. Nú er útaukning í stærð S, M og L lokið. Í stærð XL, XXL og XXXL er aukið út þannig: Haldið áfram hringinn eins og áður, en nú er einungis aukið út á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri í umferð) 2-4-4 sinnum = 248-260-276 lykkjur. Allar stærðir: Haldið áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki eftir kanti í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 42-46-50-50-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-62-68-74-80-84 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 42-46-50-50-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-62-68-74-80-84 lykkjur (= bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 128-136-148-160-180-188 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 3-3-3-3-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Færið umferðina til þannig að umferðin byrji 1 lykkju á eftir prjónamerki í annarri hliðinni (þ.e.a.s. á milli 4.-4.-4.-4.-6.-6. og 5.-5.-5.-5.-7.-7. lykkju sem fitjaðar voru upp í hlið. Haldið áfram hringinn með mynstur A.2 – passið uppá að byrja í réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið passi yfir mynstur frá berustykki. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 13 cm frá skiptingu í öllum stærðum – stillið af að síðasta umferð sé umferð án uppsláttar. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 15 cm með klauf í hvorri hlið að loka máli). Prjónið nú GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir 10 lykkjur í hvorri hlið, þ.e.a.s. 5 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 10 lykkjur í hvorri hlið, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki við prjónamerkin og prjónað er áfram fram og til baka yfir hvort stykki. FRAMSTYKKI: Prjónið fram og til baka með mynstri yfir miðju 54-58-64-70-80-84 lykkjur og GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir 5 ystu lykkjur í hvorri hlið. Þegar framstykkið mælist 5 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, sléttar lykkjur yfir næstu 54-58-64-70-80-84 lykkjur og aukið jafnframt út um 39-41-45-49-53-57 lykkjur jafnt yfir, 5 lykkjur garðaprjón = 103-109-119-129-143-151 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Nú er prjónað stroff þannig: 5 lykkjur garðaprjón, A.4 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.4 (þannig að stroffið byrjar og endar alveg eins) og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 10 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Prjónið bakstykki á sama hátt og framstykki. ERMI: Setjið 42-46-50-50-50-54 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-10-10 nýjum lykkjum undir ermi = 48-52-56-56-60-64 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= mitt undir ermi og það eru 3-3-3-3-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð hér og prjónið mynstur þannig: 1 lykkja slétt, A.2 eins og áður yfir næstu 46-50-54-54-58-62 lykkjur og endið með 1 lykkju slétt. Haldið áfram hringinn svona. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku svona með ca 3-2½-2-2-1-1 cm millibili alls 6-7-8-8-9-11 sinnum = 36-38-40-40-42-42 lykkjur. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 34-33-31-25-30-28-27 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú er eftir ca 10 cm stroff að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-22-22-24-26-26 lykkjur jafnt yfir = 58-60-62-64-68-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 44-43-41-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki – uppábrotið á að vera nákvæmlega þar sem kúlurnar eru. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Isabella wrote:
In de beschrijving van de noppen blijkt een fout te zitten. Dat is blijkbaar al een paar keer aangegeven. Waarom wordt dit niet aangepast? Ik denk dat Marlies op 3-4-2023 de juiste oplossing al heeft gegeven. Daar kom je helaas pas achter als je naald 2 van de noppen wilt gaan breien.
06.01.2024 - 14:09Castelli wrote:
Bonjour Je commence le pull ref:232-37, je ne peux pas réaliser le tour 4. Avant le tour 1 on parle de nopes. OK ça, je sais faire. Hors dans les tours 1 , 2 et 3 ce ne sont pas des nopes. Tour 4, tricoter ensemble les 6 premières mailles , impossible à réaliser. pouvez vous m'expliquez le point svp? D'avance merci.
03.04.2023 - 14:45DROPS Design answered:
Bonjour Mme Castelli, pour tricoter ces nopes, suivez bien les tours 1 à 4, au 1er tour, on va augmenter en tricotant plusieurs fois la même maille (chaque nope sera espacée de 3 mailles), vous tricotez ensuite les tours 2 et 3 ocmme indiqué (on tricote ici toutes les mailles des tours, pas seulement celles des nopes) et, au 4ème tour, on diminue les mailles augmentées au 1er tour pour former les nopes. Dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter 5 mailles ensemble à l'endroit, procédez de la même façon mais avec les 6 mailles de chaque nope. Bon tricot!
11.04.2023 - 11:06Marlies wrote:
In de beschrijving van dit patroon zit een fout, denk ik. Bij naald 1 bolletjes in de boordt moet staan: NAALD 1: * 1 recht, maar laat de steek niet van de naald af glijden, maak 1 omslag, 1 recht in dezelfde steek, 1 omslag, 1 recht in dezelfde steek (= 3 steken + 2 omslagen in 1 steek), 1 averecht, 1 gedraaid recht, 1 averecht , 1 gedraaid recht, 1 averecht*, brei van *-* tot het einde van de naald = 120-120-130-130-140-140 steken.
03.04.2023 - 09:12Maria Karlsson wrote:
Jag förstår inte denna beskrivning. Den är för mig väldigt otydlig. Jag har stickat havskanten och första möstervarvet på oket, men hur gör jag på varv 2 och tre.? Det står bara”” ”fortsätt så runt”. Hurdå fortsätt SÅ ? Förstår inte diagrammet, då det inte stämmer överens med matskandaler och det inte står något om vad man gör i mellanrummet mellan diagrammen. Dessutom står det fel i teckenbeskrivningen. Det står samma sak på 2 tecken.
21.03.2023 - 17:19DROPS Design answered:
Hei Maria. Diagramteksten er oppdatert, takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. Når du har strikket 1. omgang slik det står i oppskriften og etter diagrammene, fortsetter du på samme måte når du skal starte på 2. omgang. Når du følger forklaringen er det beskrever hva du skal strikke mellom diagrammene. I f.eks str. S har du 72 masker etter halskanten, så strikker du 1 m rett + A.1 (2 m) + A.2 (4 m) + A.3 (2 m) + 2 m rett + A.1 (2 m) + A.2 (20 m) + A.3 (2 m) + 1 m rett = 36 masker, så gjentas alt dette 1 gang til = 36+36= 72 masker. mvh DROPS Design
27.03.2023 - 10:23Doris Soehe wrote:
Ich stricke dieses Modell in Gr. S und verstehe nicht was gemeint ist mit " das Muster in der Höhe wiederholen". Ich habe das Diagramm einmal fertig, es fehlen mir aber noch 4 Raglanzunahmen bis ich auf 200 Maschen komme. Im welcher Weise (in welchem Musterverlauf) soll ich weiter stricken nach Ende des Diagramms. Neu beginnen ab Reihe 1 des Diagramms oder die Fortsetzung selbst ausrechnen nach Reihe 24 Danke für Ihre Antwort.
18.01.2023 - 10:53DROPS Design answered:
Liebe Frau Soehe, jetzt stricken Sie das Lochmuster wie zuvor mit (1 Runde mit Lochmuster, 1 Runde rechts, 1 Runde mit Lochumster, 3 Runden rechts) und gleichzeitig nehmen Sie wie zuvor in jeder 2. Runde zu. dh ab der 13. Reihe im A.2/A.3 wiederholen, bis die Zunahmenanzahl erreicht wird. Viel Spaß beim stricken!
18.01.2023 - 16:51Heidi Poelmans wrote:
Ik kom niet uit met de noppen... Ik heb 72 steken maar kom nooit tot 120 steken. Niet zoals beschreven in patroon en niet als ik bijhorend filmpje volg. Doe ik zelf iets fout...
16.10.2022 - 12:54DROPS Design answered:
Dag Heidi,
Het lijkt inderdaad of het aantal steken niet klopt na de eerste naald. Maar als je het patroon volgt kom je, als het goed is, na naald 4 weer uit op 72 steken. Ik zal het even doorgeven aan de ontwerpafdeling om te controleren en eventueel aan te passen.
26.10.2022 - 09:42Joyce Clews wrote:
When I try to print this pattern it only prints up to Diagram section/header and wont print the charts etc. This is happening with all the patterns I’ve tried to download? I tired turning it into a PDF and downloading but I then get the first page greyed out and “Accept terms and conditions” over the pattern. Also it only downloads up to the Diagram section and no charts
01.08.2022 - 09:10Conny wrote:
Cuddly hideaway
15.01.2022 - 11:11