Maybritt Leonard skrifaði:
Jeg har spørgsmål til diagrammet A2, altså der hvor man skal strikke 5 masker i Patent masken. Synes forklaringen er enormt forvirrende. Håber I kan hjælpe. Er der evt en video at se?
24.04.2024 - 21:33DROPS Design svaraði:
Hej Maybritt, ja øverst i opskriften klikker du på Videoer, scroller dig ned til video nr 4 så ser du hvordan vi gør :)
26.04.2024 - 09:29
Gudrun skrifaði:
Ich bin ein wenig irritiert was die Anfertigung der Ärmel betrifft: Ohne Abnahmen weiterstricken, bis der Ärmel eine Länge von 35-34-33-32-30-28 cm ab der Teilung hat Das würde bedeutenb das der Ärmel bei der kleinsten Größe am längsten ist?.
22.12.2022 - 06:22DROPS Design svaraði:
Liebe Gudrun, ja genau, die Ärmel sind kürzer in die grösseren Grösse, da die Passe auch länger wird - am besten ziehen Sie den Pullover an und stricken Sie die Ärmel bis 6 cm übrig vor den gewünschten Länge sind, dann striciken Sie das Bündchen; Viel Spaß beim stricken!
22.12.2022 - 09:00
Anna Lisa skrifaði:
Buongiorno. Alla fine della sezione COLLO, nella traduzione italiana, si dice: "Continuare in tondo su tutte le maglie. Lavorare 1 giro diritto in cui aggiustare il n° di maglie a 80-84-88-92-96-100. Lavorare 1 ferro rovescio dal rovescio del lavoro". L'ultima frase è corretta? Se ho già unito in tondo, lavoro sul rovescio? Grazie mille
15.07.2022 - 18:24DROPS Design svaraði:
Buongiorno Anna Lisa, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo e inoltrato la sua osservazione al settore design. Buon lavoro!
16.07.2022 - 16:08
Myrna Laupland skrifaði:
I am still a little confused about Purl 1 row from the wrong side while working on the round. Should I Purl the row on the right side or knit it? Thank you again
18.06.2022 - 05:02DROPS Design svaraði:
Dear Myrna, I am not sure exactly which part you're talking about. But the neck is worked back and forth, only then joined in the round and continued knitting in the round. Happy knitting!
18.06.2022 - 10:33
Myrna Laupland skrifaði:
Blue Peacock jumper —. Neck: when do I join into the round? I did the 3/4” p1, ‘k1 back and forth. Now do I join here and knit 1 round in a circle, then turn to Purl from wrong side? Or do I Knit 1 row, then Purl 1 row on wrong side then join into a circle? Thank you
16.06.2022 - 22:26DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Laupland, you first work 2 cm in rib then bind off 1 stitch at the beginning of next 2 rows (working as before) and then join to continue in the round. Happy knitting!
17.06.2022 - 07:52
Susanne skrifaði:
Har i glemt opskriften eller kommer den senere ? Jeg ser kun optakt og diagrammer..
28.02.2022 - 19:43DROPS Design svaraði:
Hej Susanne. Tack för info, nu finns hela oppskriften (du måste nog uppdatera sidan för att se den). Mvh DROPS Design
01.03.2022 - 11:51
Conny skrifaði:
Blue embrace
15.01.2022 - 10:57
GUYOT skrifaði:
MYOSOTIS
14.01.2022 - 16:32
@ena_teje skrifaði:
Mara
13.01.2022 - 16:41
Blue Peacock#bluepeacocksweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni og með hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-29 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka, eftir það er stykkið sett saman og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-86-86-92-98-104 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 6 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Nú er prjónaður rúllukantur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, * snúið lykkjum á hægri prjóni 360 gráður þannig: Leggið þráðinn framan við stykkið, stingið hægri prjóni niður undir stykkið og upp framan við stykkið, eftir það er prjónað 6 lykkjur slétt, * prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, endið með 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 2 cm, fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 78-84-84-90-96-102 lykkjur. Prjónið áfram hringinn yfir allar lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 80-84-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið A.1 alls 20-21-22-23-24-25 sinnum í umferð. Eftir fyrstu umferð í A.1 eru 100-105-110-115-120-125 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur, þ.e.a.s. þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið 2 umferðir merktri með stjörnu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki í hálsi. Prjónið A.2 alls 20-21-22-23-24-25 sinnum. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 180-189-198-207-216-225 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.3 yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm. Nú er A.4 prjónað alls 20-21-22-23-24-25 sinnum í umferð. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað þannig: A.5 er prjónað 20-21-22-23-24-25 sinnum í umferð. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og prjónamerkin eru sett á milli 2 lykkja þannig: Teljið 28-30-32-33-36-38 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki, teljið 34-34-36-38-36-36 nýjar lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki, teljið 56-61-62-65-72-77 nýjar lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki, teljið 34-34-36-38-36-36 nýjar lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki, það eru 28-30-32-33-36-38 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (hálft bakstykki). Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð, alls 7-9-10-13-14-15 sinnum = 236-261-278-311-328-345 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 35-39-42-46-50-53 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 70-79-82-91-100-107 lykkjur (framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 35-39-42-46-50-53 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-169-182-199-220-237 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-17-18-21-22-25 lykkjur jafnt yfir = 168-186-200-220-242-262 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-5-3-2½-2-2 cm millibili alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 35-34-33-32-30-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 41-40-39-38-36-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman kant í hálsmáli innan við kantlykkju. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluepeacocksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.