DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Peacock Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni og með hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-30
DROPS Design: Mynstur ai-376
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-400-400-450 g litur 16, blár

DROPS TALA NR 612: 6-6-6-7-7-7 st

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu strax eftir stroff í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8½-8½ cm millibili.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 89-95-95-101-107-113 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 6 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan í hvorri hlið. Nú er prjónaður rúllukantur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * snúið lykkjum á hægri prjóni ca 360 gráður þannig: leggið þráðinn framan við stykkið, stingið niður hægri prjóni undir stykkið og upp framan við stykkið, prjónið síðan 6 lykkjur slétt, * prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 91-95-99-103-107-111 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.

Setjið 1 prjónamerki að innanverðu við kant að framan mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 er prjónað 20-21-22-23-24-25 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Eftir fyrstu umferð í A.1 eru 111-116-121-126-131-136 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur, þ.e.a.s. þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið 2 umferðir merktar með stjörnu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki við háls, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.2 er prjónað 19-20-21-22-23-24 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 eins og áður og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 187-196-205-214-223-232 lykkjur í umferð.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.3 er prjónað 19-20-21-22-23-24 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.

Þegar stykkið mælist 10-10-11-11-12-12 cm frá prjónamerki við hálsmál, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.4 er prjónað 19-20-21-22-23-24 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 eins og áður og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.

Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.5 er prjónað 19-20-21-22-23-24 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 eins og áður og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið – þetta er gert án þess að prjóna lykkjur og prjónamerkin eru sett á milli 2 lykkja þannig:
Teljið 32-35-36-37-40-42 lykkjur (framstykki), setjið 1. prjónamerki, teljið 34-34-36-38-36-36 nýjar lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki, teljið 55-58-61-64-71-76 nýjar lykkjur (bakstykki), setjið 3. prjónamerki, teljið 34-34-36-38-36-36 nýjar lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki, það eru 32-35-36-37-40-42 lykkjur eftir í umferð á eftir 4. prjónamerki (framstykki). Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni, JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu), alls 7-9-10-13-14-15 sinnum = 243-268-285-318-335-352 lykkjur.

Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við háls. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 39-44-46-50-54-57 lykkjur (framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 69-76-81-90-99-106 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 39-44-46-50-54-57 lykkjur sem eftir eru (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 159-176-189-206-227-244 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Prjónið þar til stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm. Nú eru eftir ca 6 cm til loka máls. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-17-18-21-22-25 lykkjur jafnt yfir = 175-193-207-227-249-269 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð – frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-5-3-2½-2-2 cm millibili alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 35-34-33-32-30-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 41-40-39-38-36-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan þessa lykkju (þessi lykkja er núna kölluð klukkuprjónslykkja)
symbols = aukið út um 4 lykkjur í 1 klukkuprjónslykkju með því að prjóna 5 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjunum af vinstra prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju á vinstra prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, lyftið síðan lykkjunum af vinstri prjóni = 5 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur fleiri).
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
symbols = 1 mynstureining á hæðina
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Catherine wrote:

Bonjour ! Comment vriller les mailles ? A 360 ° ou 180°? Avec une aiguille auxiliaire ? Merci !

07.04.2024 - 18:47

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, cette vidéo montre comment tricoter la bordure du début. Bon tricot!

08.04.2024 - 08:19

country flag Léone MEUNIER wrote:

Bonjour, A la fin du rang de vrilles, il me reste 6 mailles au lieu des 5 que vous indiquez, plus les 5 mailles mousses de bordure. Je crains que cela crée un décalage pour le rang suivant. Je précise que j'ai monté 95 mailles.

21.04.2022 - 17:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Meunier, procédez ainsi: 5 m point mousse, 1 m end, répétez 14 fois la vrille sur 6 mailles (= 14x6= 84 m), il reste 5 mailles, terminez par 5 m point mousse, vous avez ainsi bien: 5+1+84+5=95 mailles. Bon tricot!

22.04.2022 - 07:29

country flag Graziella wrote:

Ok allora devo disfare. Grazie! ;-)

11.04.2022 - 21:29

country flag Graziella wrote:

Buongiorno, scusate ma chiedo ancora aiuto. Sono arrivata alla fine dello sprone e mi accingo a mettere i segnapunti per aumentare il raglan, ma con la taglia M mi trovo 194 maglie. Ho controllato ogni singola losanga e non mi sembra ci siano errori. Prima di disfare tutto vorrei avere una vostra opinione. Grazie!

11.04.2022 - 13:59

DROPS Design answered:

Buonasera Graziella, alla fine di A.2 deve avere 196 maglie sul ferro. Buon lavoro!

11.04.2022 - 21:24

country flag Yolanda wrote:

Es muy lindo tener la explicación, gracias voy a intentar hacerlo

04.04.2022 - 14:48

country flag Marieke wrote:

Klopt de kleur denimblauw? Op de afbeelding linkt het feller, bijvoorbeeld blauw nr 16? Alvast bedankt voor uw reactie

18.03.2022 - 09:35

DROPS Design answered:

Dag Marieke,

Dankjewel voor het doorgeven, de kleur klopte inderdaad niet en het is nu aangepast!

29.03.2022 - 10:26

country flag Graziella wrote:

Grazie, ho capito come fare ma secondo me c’è un errore nella spiegazione: “fino a quando rimangono 5 maglie e 5 maglie per il bordo a maglia legaccio”

15.03.2022 - 23:04

DROPS Design answered:

Buonasera Graziella, le 5 maglie che rimangono sono quelle per il bordo a maglia legaccio. Buon lavoro!

16.03.2022 - 22:50

country flag Graziella wrote:

Ho 89 maglie corrette. Ma perché 11 maglie? Allora alla fine del ferro del punto arrotolato dovrei avere 6 più 5 maglie del bordo. La spiegazione dice che dovrebbero rimanere 5+5 per il bordo. Vi risulta? \r\nGrazie

15.03.2022 - 19:29

DROPS Design answered:

Buonasera Graziella, se ha 89 maglie, toglie le 10 maglie (5 a ogni lato) del bordo e 1 maglia diritto, ottiene 78 maglie che diviso 6 fanno 13 ripetizioni di 6 maglie. Buon lavoro!

15.03.2022 - 20:59

country flag Graziella wrote:

Buonasera, mi trovo in difficoltà. Sto facendo il bordo arrotolato. Ho lavorato 5 maglie a legaccio per il bordo, 1 maglia a diritto e poi sequenze di 6 maglie arrotolate. Ma alla fine del ferro mi trovo con 6 e non 5 maglie più le 5 a legaccio. Mi potete essere di aiuto? Grazie

13.03.2022 - 18:35

DROPS Design answered:

Buonasera Graziella, è sicura di avere il numero di maglie corretto sui ferri? Quale taglia sta lavorando? Se si sottrae 11 maglie al numero di maglie di ogni taglia si ottiene un multiplo di 6, quindi il conteggio delle maglie è corretto. Buon lavoro!

15.03.2022 - 18:05

country flag Linda wrote:

Blueberry Cream

18.01.2022 - 14:42