Elisabeth Bakke skrifaði:
Hej igen, För oket: Enligt beskrivningen ska A1, A2 stickas 18 ggr på bredden + de fem framkantsmaskorna i varje sida. När A1 och A2 har stickats en gång på höjden är det 177 maskor (stl M) - men hur kan det bli det? Det är 84 maskor när jag börjar m omslagen enl A1 o A2 - och även om jag ökar m två maskor på varje omslag blir det bara 2 x 18 = 36 + 84= 110 maskor? Vad är det jag missar?
26.05.2022 - 19:00DROPS Design svaraði:
Hej Elisabeth. Så bra att du fick till det. Mvh DROPS Design
27.05.2022 - 09:53
Elisabeth Bakke skrifaði:
Hej, Det står beskrivet att första knapphålet maskas av på första varvet - sedan maskas de nästa knapphålen av m ca 8 cm (stl M). Min fråga: det står inget om att första knapphålet behöver göras två ggr eftersom halskanten ska vikas dubbel - men jag antar att det måste maskas av igen för första knapphålet innan oket påbörjas...?
23.05.2022 - 23:31DROPS Design svaraði:
Hej Elisabeth. Du maskar av det första knapphålet på första varvet efter halskanten, så du har inget knapphål på halskanten. Mvh DROPS Design
25.05.2022 - 07:01
Danielle skrifaði:
Hi, I love that sweater but is the pattern available to knit from the bottom with front/back panels and sleeves knitted apart. I've knitted a few of your patterns from top but found them very challenging. Thank you
17.05.2022 - 14:48DROPS Design svaraði:
Dear Danielle, we only have this pattern worked from top down, check at the bottom of the page (just above this) you will find a video as well as a lesson showing how to work a jumper top down, that might help you. You will also find all our patterns for jackets & cardigans worked bottom up here; and maybe this lesson could help you to adjust the patterns to work each piece separately. Happy knitting!
17.05.2022 - 15:48
Marion Gorczyca skrifaði:
Thanks so much for your help. Your answer made everything clear
14.05.2022 - 12:06
Marion Gorczyca skrifaði:
When I start the pattern for Medium I would have extra stitches at the end of the row? this does not seem correct ? what am I doing wrong
13.05.2022 - 15:11DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Gorczyca, work diagrams like this in M (=3rd size): 5 sts in garter stitch, A.1 (= 2 sts), repeat A.2 (= 4 sts) a total of 18 times (= 4x18=72 ), and finish with 5 sts in garter stitch = 5+2+72+5=84 sts. Can this help? Happy knitting!
13.05.2022 - 16:20
Solveig Skaug skrifaði:
Størrelse oppgis i XS til 2XL el. l. \r\nHva tilsvarer dette i brystvidde? Hun jeg skal strikke til er målt til 105 cm.
13.05.2022 - 13:14DROPS Design svaraði:
Hej Solveig, du finder måleskitsen på jakken nederst i opskriften. Medium har en brystvidde på 110 cm (om man overholder strikkefastheden som står i opskriften) :)
13.05.2022 - 13:31
M-L Gustafsson skrifaði:
Ska man sticka A1,A2, A1,A2 osv? Gjorde det och då blev det inte lika fram🤔Brukar ju st ”upprepa” på diagram. Inte så kul att repa detta garn…
12.05.2022 - 21:45DROPS Design svaraði:
Hej, Du stickar A1 én gång, så A.2 till du har 5 kantmaskor kvar :)
13.05.2022 - 08:57
Sanne Olsen skrifaði:
Skal jeg strikke A1 og A2 efter hinanden eller oven på hinanden? Hvis jeg gør det efter hinanden kommer der så ikke 4 ret efter hinanden ?
12.05.2022 - 15:55DROPS Design svaraði:
Hej Sanne, Du strikker A.1(2masker ret) én gang og så fortsætter du med A.2 som skal gentages (2 masker vrang, 2 ret) husk udtagningerne på første pind (nederste pind i diagrammet) God fornøjelse!
13.05.2022 - 08:13
Falling Fog Cardigan#fallingfogcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli og vösum. Stærð XS - XXL.
DROPS 232-30 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um berustykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, prjónamerki situr á milli þessa lykkja, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki (2 lykkjur fleiri við hvert prjónamerki = 8 lykkjur alls). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kant í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 8½-9-8-8-7½-7½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-72-76-76-80-84 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm. Fitjið upp 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið í lok 2 næstu umferða = 80-80-84-84-88-92 lykkjur. Prjónið stroff með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 8 cm (þ.e.a.s. 4 cm frá þar sem kantlykkjur að framan voru fitjaðar upp), skiptið yfir á hringprjón 6. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1, A.2 alls 17-17-18-18-19-20 sinnum á breiddina og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Það eiga að vera 2½ cm á milli hverra útaukninga í A.1 og A.2. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina er hægt að prjóna fleiri eða færri umferðir (prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur) á milli hverra útaukninga. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 168-168-177-195-205-215 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stykkið mælist 11-11-11-14-14-14 cm frá prjónamerki. Nú eru sett 4 prjónamerki án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Teljið 31-31-34-35-37-40 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, teljið 27-26-26-32-34-32 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, teljið 52-54-57-61-63-71 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, teljið 27-26-26-32-34-32 lykkjur, setjið 1 prjónamerki, nú eru eftir 31-31-34-35-37-40 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út þannig: Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 5-7-8-8-10-12 sinnum = 208-224-241-259-285-311 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 31-33-36-38-42-47 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 37-40-44-48-54-56 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, 62-68-71-77-83-95 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 37-40-44-48-54-56 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, 31-33-36-38-42-47 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 146-156-165-179-193-215 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 13-14-15-15-15-16 cm prjónið vasa í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið yfir fyrstu 14-14-14-16-16-18 lykkjur, prjónið síðan vasa yfir næstu 20-20-22-24-24-26 lykkjur þannig: Þær lykkjur sem eftir eru hvíla á prjóninum. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 20-20-22-24-24-26 lykkjur í 24 cm (þ.e.a.s. ca 12 cm djúpur vasi), stillið af að síðasta umferðin sé frá réttu, vasinn hefur nú verið prjónaður til loka, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 78-88-93-99-113-127 lykkjur, prjónið nú vasa yfir næstu 20-20-22-24-24-26 lykkjur þannig: Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 20-20-22-24-24-26 lykkjur í 24 cm (þ.e.a.s. ca 12 cm djúpur vasi), stillið af að síðasta umferðin sé frá réttu, vasinn hefur nú verið prjónaður til loka. Prjónið yfir síðustu 14-14-14-16-16-18 lykkjur eins og áður. Haldið áfram í sléttprjón og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 25-26-27-27-27-28 cm frá skiptingu. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 14-12-15-17-19-21 lykkjur = 160-168-180-196-212-236 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið stroff þannig (með byrjun frá röngu): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stroffið mælist 6 cm. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-67 cm, mælt frá öxl og niður. ERMI: Setjið 37-40-44-48-54-56 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykkinu á sokkaprjóna 6 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-46-50-56-62-641 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 6-6-6-8-8-8 lykkja sem prjónaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (2 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 16-10-7-4-3-2 cm millibili alls 2-3-4-7-9-10 sinnum = 39-40-42-42-44-44 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-34-34-33-31-29 cm frá skiptingu, aukið út um 9-8-10-10-12-12 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 5 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman vasana í hvorri hlið. Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fallingfogcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.