Wilma Broos skrifaði:
Ben aan het breien gegaan van deze trui maar als je het patroon volgt, kom je toch een fout tegen. De hals is 1 recht en 1 averecht, dan moet je 1 recht en 2 averecht gaan breien, dan merk je dat je verder het patroon ga volgen dat die aangegeven 1 recht en 2 averecht niet goed zijn om het patroon te maken dat je naar elkaar toe geknepen afgeronde onderkanten krijgt, daar heb je 2 rechte steken voor nodig, om te krijgen wat het patroon vraagt, wil u er even naar kijken? Dank u wel.
12.06.2022 - 11:35
Béatrice skrifaði:
Bonjour , L empiècement tricoté jusqu'à 5 cm (taille s) est beaucoup trop petit. Sur la photo, on voit que l arrondi est beaucoup plus long que le col de 4cm? Ne faut il pas tricoté 10 cm?
08.04.2022 - 23:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Béatrice, lorsque vous avez tricoté les 5 premiers cm pour l'empiècement, vous devez tricoter le diagramme a.1 puis continuer avec l'aiguille circulaire 9 et tricoter A.2, puis continuer jusqu'à 9 cm et tricoter A.4, et continuer ensuite jusqu'à 25 cm de hauteur totale depuis le rang de montage et alors diviser pour les manches. Bon tricot!
19.04.2022 - 14:30
Lauren Beal skrifaði:
Between A2 and A3 is it all stockinette stitch on 128 stitches for the Large size?
09.03.2022 - 21:02DROPS Design svaraði:
Hi Lauren, Yes, you work stockinette between the 2 diagrams. Happy knitting!
10.03.2022 - 07:05
Lauren Beal skrifaði:
Instructions reference working A6 but there is no A6 diagram. There is however an A4 diagram without ANY reference to it in the pattern instructions. What is intended?
08.03.2022 - 17:37DROPS Design svaraði:
Dear Lauren, there seems to be a mistake; it should be A.4 instead of A.6. We will correct it as soon as possible. Thank you. Happy knitting!
08.03.2022 - 21:18
Helena Rautiainen skrifaði:
Hei ! Ihana malli ja tilasin juuri langat samanvärisenä kuin mallilla on päällä. Onko ohjeeseen pieni virhe eksynyt, kun hihan ohjeessa puhutaan A.6 kuviosta, sellaistahan ei ole. Tarkoittanee A.4 kuviota ?;)
22.02.2022 - 19:27
Helena Rautiainen skrifaði:
Hei Tarkoittaako hihan ohjeessa A.6 kuitenkin kuviota A.4 ? En löydä kuviota A.6? Malli on ihana ja tilasin juuri langat ja samanvärin kuin mallilla on päällä :)\r\nHelena
22.02.2022 - 09:15DROPS Design svaraði:
Näyttää olevan virhe; sen pitäisi olla A.4 A.6:n sijaan. Korjaamme sen mahdollisimman pian. Kiitos. Onnea neulomiseen!
08.03.2022 - 21:23
Marie skrifaði:
Bra bilder. Här ser man oket o halsen tydligt. Toppen.
18.02.2022 - 17:44
Ritva Lehtinen skrifaði:
Hi, this Harvest Wreath is very beautiful pattern. I would like to knit it using thinner yarn, for example some DK weigjt yarn (for example Lima) which is about two times thinner than Wish. Is it possible to knit with DK weight yarn if I knit the pattern making double all the increases?
18.02.2022 - 11:22DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lehtinen, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, you might have to recalculate the whole pattern with your tension - or look at our jumpers worked in a yarn group B (use filters if required) . Thanks for your comprehension, happy knitting!
18.02.2022 - 14:23
Bea skrifaði:
Så klassiskt vacker. Den vill jag verkligen sticka!
18.01.2022 - 22:54
Olga skrifaði:
Cleo
16.01.2022 - 18:49
Harvest Wreath#harvestwreathsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-45 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 56 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 32) = 1,7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca hverja og aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsi og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 56-60-62-64-68-70 lykkjur á hringprjóna 7 með DROPS Wish eða DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-32-34-36-36-46 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 88-92-96-100-104-116 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat). BERUSTYKKI: Prjónið nú stroff þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 5-5-5-6-6-6 cm.. Byrjið við umferð með ör og prjónið A.1 (= 22-23-24-25-26-29 mynstureiningar með 4 lykkjum) umferðina hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið eitt prjónamerki hér, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá prjónamerki, prjónið þannig: Stærð S og XXL: Prjónið A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) þar til 4-4 lykkjur eru eftir í umferð (= 14-20 mynstureiningar með 6-5 lykkjum), prjónið fyrstu 4-4 lykkjur í A.2. Stærð M, L, XL og XXXL: Prjónið A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) þar til eftir eru 2-0-0-1 lykkjur í umferð (= 15-16-20-23 mynstureiningar með 6-6-5-5 lykkjum), prjónið 2-0-0-1 lykkjur sléttprjón. Allar stærðir: Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, hafa verið auknar út 30-30-32-40-42-46 lykkjur og það eru 118-122-128-140-146-162 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 9-9-9-10-10-10 cm frá prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: Stærð S, M, L og XXXL: Prjónið A.3 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) þar til eftir eru 1-3-2-0-2 lykkjur í umferð (= 13-17-18-20-20 mynstureiningar með 9-7-7-7-8 lykkjum), prjónið 1-3-2-0-2 lykkju sléttprjón. Stærð XXL: Prjónið A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) þar til eftir eru 6 lykkjur í umferð (= 20 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið fyrstu 6 lykkjur í A.3. Allar stærðir: Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, hafa verið auknar út 26-34-36-40-42-40 lykkjur og það eru 144-156-164-180-188-202 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist= alls 25-27-29-31-33-35 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 22-24-25-27-29-31 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 28-30-32-36-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 44-48-50-54-58-63 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 28-30-32-36-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 22-24-25-27-29-31 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT. FRAM- OG BAKSYKKI: = 100-108-116-128-136-146 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-44-48-48-52-54 lykkjur jafnt yfir = 140-152-164-176-188-200 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið nú stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 28-30-32-36-36-38 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-36-40-46-46-48 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 6-6-8-10-10-10 lykkjur (= 3-3-4-5-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi (á einungis við um stærð L, XL, XXL og XXXL – lykkjum er ekki fækkað í stærð S og M). Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið eftir stærðum þannig: Stærð S og M: Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 14-12 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 15 cm að loka máli (þ.e.a.s. 7 cm gatamynstur + 8 cm stroff). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 35-35 lykkjur, þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju í S og fækkið um 1 lykkju í M. Stærð L, XL, XXL og XXXL: Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3-1-1-1 cm millibili alls 2-2-2-3 sinnum = 36-42-42-42 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 10-9-8-8 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 15 cm að loka máli (þ.e.a.s. 7 cm gatamynstur + 8 cm stroff). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1-0-0-0 lykkju = 35-42-42-42 lykkjur. Allar stærðir: Prjónið nú mynstur A.4 hringinn (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 7 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist ermin ca 21-19-17-16-15-15 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-9-9-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 44-44-44-52-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 29-27-25-24-23-23 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #harvestwreathsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-45
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.