Lucretia Thompson skrifaði:
I begin with 88 stitches on the 1st round of yoke (per neck edge) size xl. The count for the 1st round of yoke equals 84 (16+10+32++10+16) which leaves 4 stitches on the needles. Help please.
19.02.2025 - 21:19DROPS Design svaraði:
Hi Lucretia, Each marker is inserted into a stitch, which means the stitch count is 16 + 1 + 10 + 1 + 32 + 1 + 10 + 1 + 16 = 88 stitches. Happy knitting!
20.02.2025 - 06:22
Arezo skrifaði:
Hei! Hva betyr at man skal markere midt bak når man har strikket halskant? Hvor ligger «midt bak»? :)
13.03.2023 - 23:19DROPS Design svaraði:
Hei Arezo, Midt bak er begynnelsen av omgangen. Merket er der for å måle fra videre. God fornøyelse!
14.03.2023 - 07:05
Anne skrifaði:
Hei Hihan kohdalla lienee virhe; hihan silmukat kerätään puikolle nro 4. Mielestäni isommille eli 5,5. Kiitos selkeästä ohjeesta muuten!
28.03.2022 - 19:31
Mischa skrifaði:
Is het mogelijk om een gekrompen wollen trui na te maken aan de hand van het tellen van de steken? Of is dit heel moeilijk. Het gaat om een iets getailleerde, dames trui met ronde hals en lange raglanmouwen.
21.12.2021 - 20:26DROPS Design svaraði:
Dag Mischa,
Je kan het beste de maten opmeten van een kledingstuk dat je goed zit en dan een proeflapje maken met de nieuwe wol. Op basis van de stekenverhouding en de afmetingen kun je uitrekenen hoeveel steken je op moet zetten. Als de trui gekrompen is weet je niet meer wat de oorspronkelijke maten en stekenverhouding waren, lijkt me.
23.12.2021 - 15:28
Kelly skrifaði:
Hallo, ik ga nu aan de mouwen van de ash valley beginnen. Klopt het dat een mouwen met een kleinere naald gebreid moeten worden dan het lijf?
07.12.2021 - 11:18DROPS Design svaraði:
Dag Kelly,
Dat klopt inderdaad niet, deze brei je ook met naald 5,5 mm. Bedankt voor het doorgeven, zodat het patroon aangepast kan worden.
07.12.2021 - 16:53
Melanie skrifaði:
Hallo, Ich verstehe bei der Halsblende nicht, "1 Markierer am Rundenbeginn an der hinteren Mitte anbringen" wo ich nun den Markierer anbringen soll. Soll ich also einen Markierer beim Rundenanfang anbringen und soll ich bis zur Hälfte stricken und dann einen zweiten Markierer anbringen? Vielen Dank!
22.11.2021 - 19:49DROPS Design svaraði:
Liebe Melanie, nach der Halsblende setzen Sie eine Markierung, diese benutzen Sie später um die Arbeit zu messen, die Runden beginnen in der hinteren Mitte, dh bei der Passe wird die Arbeit mit die 1. Hälfte vom Rückenteil anfangen und mit der 2. Hälfte vom Rückenteil enden. Viel Spaß beim stricken!
23.11.2021 - 08:18
Cécile skrifaði:
BOUTIQUE KALIDOU FRANCE : FABEL 651 COLORIS SUPPRIME ALORS QUE EN STOCK DANS VOS ENTREPOTS SUR VOTRE SITE ???
28.10.2021 - 10:02
Ash Valley#ashvalleysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S – XXXL.
DROPS 226-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 68 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 17. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 17. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 68-72-74-80-82-86 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 4-4-6-8-14-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 72-76-80-88-96-108 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Hoppið yfir fyrstu 12-13-14-16-18-21 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 10 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 24-26-28-32-36-42 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju, hoppið yfir næstu 10 lykkjur, setjið eitt prjónamerki í næstu lykkju, nú eru eftir 12-13-14-16-18-21 lykkjur í umferð. Prjónið nú sléttprjón hringinn, jafnframt í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 17-19-20-22-24-26 sinnum = 208-228-240-264-288-316 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 29-32-34-38-42-47 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 46-50-52-56-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-64-68-76-84-94 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-50-52-56-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-10-10-10 lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 29-32-34-38-42-47 lykkjur (= ½ bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 132-148-156-172-188-208 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-14-16-18-18-20 lykkjur jafnt yfir = 146-162-172-190-206-228 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 46-50-52-56-60-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-60-62-66-70-74 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í 8-10-10-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið það fylgja með í stykkinu. Það á að fækka lykkjum hvoru megin við prjónamerkið. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-3-3-2-1½-1½ cm millibili alls 3-5-5-7-8-9 sinnum = 48-50-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-38-37-35-34-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-4-4-6 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-56-58-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 44-42-41-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ashvalleysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.