Demelsa skrifaði:
Hola, en el CUELLO cuando dice "cuando el resorte mida 4 cm, aumentar... " se refiere a 4 cm a partir del marcador que se ha puesto a los 3 cm del principio? Es decir, cuando la labor total mide ya 7cm? O es cuando mide 4cm desde el principo?
26.01.2022 - 00:04DROPS Design svaraði:
Hola Senora Demelsa, se refiere a 4 cm a partir del principio. Saludos!
26.01.2022 - 07:55
Catherine skrifaði:
I love the design of this sweater, just wondering how I can do my increases without getting those holes? It would be my preference to not have those wholes in the increases. Thank you! :)
18.01.2022 - 23:41DROPS Design svaraði:
Hi Catherine, To avoid holes after increasing, work the yarn overs twisted (work in the back loop). Happy knitting!
19.01.2022 - 08:01
Lisa Lindhjem skrifaði:
Hei! Jeg strikker genseren crisp cranberry. Også lurte jeg på hva man gjør for å få den rette \"raglanen\". Fordi når jeg gjør det som står i oppskriften (kaste om pinnen og neste runde strikke vridd vrang så man \"ikke får hull\") men skal det ikke være hull? For når jeg gjør som oppskriften sier så blir det ikke sånn som bildet viser, og har prøvd å lese flere ganger. Men skjønner ikke hvordan man får sånn type raglan. tusen takk for hjelp! - Lisa;)
21.12.2021 - 01:31DROPS Design svaraði:
Hej Lisa. Vi har nu lagt ut en rättelse på denna oppskrift. Kasten ska inte stickas vridd utan det ska bli hål, tack för info! Mvh DROPS Design
23.12.2021 - 10:53
Gunnhildur Lilja Guðmundsdóttir skrifaði:
Er villa í talningu fyrir prjónamerki fyrir laskann ? Í stærð M á að vera með 66 lykkjur á prjónunum en þegar sett eru auka 4 prjónamerki fyrir laskann er einungis gert ráð fyrir 60 lykkjum.
08.12.2021 - 17:41DROPS Design svaraði:
Blessuð Gunnhildur. Þú telur 12 lykkjur og setur prjónamerki í 13 lykkju (laskalínulykkja), telur 8 lykkjur og setur prjónamerki í 9 lykkju (laskalínulykkja), telur 23 lykkjur og setur prjónamerki í 24 lykkju (laskalínulykkja), telur 8 lykkjur og setur prjónamerki í 9 lykkju (laskalínulykkja) síðan eru 11 lykkjur eftir = 66 lykkjur. Gangi þér vel.
09.12.2021 - 12:38
Gunnhildur skrifaði:
Það er villa í talningu fyrir prjónaþerki fyrir laskann. Þar er gert ráð fyrir 60 lykkjum í stað 66 lykkja í stærð M og því gengur talningin ekki upp.
08.12.2021 - 17:40
Johanna skrifaði:
Op de foto lijkt de trui decoratieve gaatjes te hebben bij de raglanmeerderingen. In de werkbeschrijving staat echter dat de omslagen gedraaid recht gebreid moeten worden om gaatjes te voorkomen. Klopt dit?
12.11.2021 - 07:29DROPS Design svaraði:
Dag Johanna,
Inderdaad, er zitten gaatjes in de raglanlijnen op de foto. Bedankt voor het doorgeven, ik heb het doorgestuurd naar de ontwerpafdeling ter controle.
09.12.2021 - 13:46
Mara skrifaði:
Vinglögg Sweater
05.08.2021 - 20:47
Johanna skrifaði:
Burgundy Vibes
05.08.2021 - 14:44
Carly skrifaði:
I love the classic yet cozy vibes of this sweater. This is 💯
03.08.2021 - 22:45
Crisp Cranberry#crispcranberrysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, blöðruermum og breiðum köntum í stroffprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 226-37 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-1 (á við um stroff í hálsi): Aukið út 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 2 lykkjur brugðið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ATH: Í stærð S, M, XL og XXL stendur fjöldi mynstureininga í stroffi á oddatölu – í þessum stærðum verður þess vegna að auka út í 2 mynstureiningum á eftir hvorri annarri í lok umferðar í fyrsta skipti þegar aukið er út. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju sléttprjón (laskalína), í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í útaukningsumferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING-2 (á við um mitt undir ermum): Aukið út á undan prjónamerki þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón (= 1 lykkja fleiri). Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 42-45-45-48-51-51 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með DROPS Snow. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm, setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan) – stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Þegar stroffið mælist 4 cm, aukið út um 7-8-8-8-9-9 lykkjur með því að auka út aðra hverja 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 49-53-53-56-60-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-7-8-8 cm, aukið út þær 2 lykkjur brugðið sem eftir eru til 3 lykkjur brugðið = 56-60-60-64-68-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-8-9-9 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 58-66-66-70-74-74 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 9. Setjið nú 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi prjónamerki eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu – ATH: Lykkjurnar eru ekki prjónaðar þegar prjónamerkin eru sett. Teljið 10-12-12-12-13-13 lykkjur (= ca ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínulykkja), teljið 8-8-8-10-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínulykkja), teljið 19-23-23-23-25-25 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínulykkja), teljið 8-8-8-10-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= laskalínulykkja). Nú eru 9-11-11-11-12-12 lykkjur eftir í umferð á eftir síðustu laskalínulykkju (= ca ½ bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalínulykkjurnar – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 10-11-13-14-14-16 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 138-154-170-182-186-202 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki í kanti í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 22-24-26-28-29-32 lykkjur eins og áður (= ca ½ bakstykki), setjið næstu 26-30-34-36-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 43-47-51-55-57-63 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 26-30-34-36-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir síðustu 21-23-25-27-28-31 lykkjur (= ca ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 98-106-114-122-130-142 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 17-17-17-16-16-16 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8-8-8-9-9-9 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 26-30-34-36-36-38 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9 – prjónið að aukið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 32-36-40-42-44-46 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-6-8-8 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Þegar ermin mælist 6 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki. Endurtakið úrtöku á undan prjónamerki þegar ermin mælist 9 cm frá skiptingu og á eftir prjónamerki þegar ermin mælist 12 cm frá skiptingu = 28-32-36-38-40-42 lykkjur. Þegar ermin mælist 16 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju á undan prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Þegar ermin mælist 18 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju á eftir prjónamerki. Aukið út til skiptis á undan og á eftir prjónamerki í öðrum hverjum cm alls 10-8-6-6-6-6 sinnum (5-4-3-3-3-3 sinnum hvoru megin við prjónamerki) = 38-40-42-44-46-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-39-38-37-35-34 cm frá skiptingu (það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 5-5-5-6-6-6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 26-28-30-32-32-34 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-5-5-6-6-6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 46-44-43-43-41-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #crispcranberrysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.